Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Page 37
jDV Sjónvarp
MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 37
Moby hefur alltaf verið umdeildur. Hann þykir ýmist vera of harður eða of linur,
of söluvænn eða of sérlundaður allt eftir því hvaða tímabil við erum að tala um og
hver það er sem dæmir. Trausti Júlíusson skrifar um nýju Mobyplötuna, Hotel,
sem kemur í verslanir í dag.
„Það sem heillar mig við hótel er
að þegar þú færð þér hótelherbergi
þá líður þér undantekningarlaust
eins og þú sért fyrsti maðurinn sem
gengur inn í þetta herbergi" segir
Moby þegar hann er spurður út í
nafnið á nýju plötunni, Hotel sem
kemur út í dag, „en samt veistu ein-
hvers staðar inn í þér að sex klukku-
tímum fyrr var par að stunda kynlíf
á rúminu, einhver var að segja upp
kærustunni sinni eða að fara á kló-
settið. Fólk gerir mjög persónulega
hluti á hótelum, en samt eru þetta
alveg nafnlausir staðir. Á 24 tíma
fresti er allt þurrkað út. Það hljóm-
ar kannski furðulega en á einhvern
hátt finnst mér þetta vera hliðstætt
við tilveru mannsins."
Engin utanaðkomandi hljóð-
brot
Hotel er áttunda plata Moby.
Hún kemur í kjölfar 18 sem kom út
fyrir þremur árum. Sú plata þótti
helst til of lík meistaraverkinu Play
sem kom út 1999 og seldist í yfir 10
milljónum eintaka. Hotel er
kannski engin bylting, en hún er
bæði persónulegri og heilsteyptari
en 18. Eins og allar plötur Moby er
hún að langmestu leyti tekin upp
heima í herbergi. Moby spilar á öll
hljóðfærin á henni nema trommu-
settið sem Scott Frassetto lemur.
Moby syngur líka flest lögin, en á
móti honum syngur söngkonan
Laura Dawn. Tónlistin er í þessum
áferðarfagra og fágaða stíl sem ein-
kennir Play og 18, en Hotel er enn-
þá mýkri ef eitthvað er. Hún er líka
fyrsta Moby-platan sem engin ut-
anaðkomandi hljóðbrot eru notuð
á. Samplerinn fékk frí.
The Vatican Commandos,
pönkið, danstónlistin og
rokkið
Moby hefur mjög víða komið við
tónhstarlega. Hann heitir réttu nafni
Richard Melville Hall og er fæddur
11. september 1965 í Darien í Conn-
ecticut. Hann fékk viðurnefnið
Moby vegna skyldleika við Herman
Melville sem skrifaði Moby Dick.
Moby var í pönkhljómsveitinni The
Vatican Commandos þegar hann
var unglingur í Darien. Hann flutti
til New York eftir endasleppt há-
skólanám og byrjaði að spila sem
plötusnúður, en fór síðan að búa til
sína eigin tónlist. Seint á níunda ára-
tugnum gaf hann út nokkrar smá-
skífur með teknótónlist.
Hann vakti mikla athygli í Bret-
landi árið 1991 fyrirlagið Go sem var
danslag byggt á upphafslagi Twin
Peaks-þáttanna. Á fyirí hluta tíunda
áratugarins var hann einn af leið-
togum danstónlistarsprengjunnar.
Hann gaf út urmul af smáskífum,
nokkrar stórar plötur og gerði end-
urhljóðblandanir fyrir listamenn á
borð við Michael Jackson. Pet Shop
Boys, Erasure, Orbital og Brian Eno.
Með plötunni Animal Rights sem
kom út 1996 kúventi hann hins veg-
ar yfir í rokkið með heldur lélegum
árangri, en sló svo í gegn með Play
sem kom út árið 1999. Hún fór að
vísu hægt af stað og menn höfðu
almennt ekki mjög mikla trú á
henni, en eftir að Moby hafði selt öll
lögin af henni í auglýsingar þá sló
hún í gegn og var ein af mest seldu
plötum ársins 2000.
Bowie er kóngurinn
Tónlistin á Hotel sækir töluvert í
tónhst áranna í kringum 1980; - í
sveitir eins og Joy Division, New
Order og Echo & The Bunnymen.
Það er meira að segja útgáfa af New
Order-laginu Temptation á plöt-
unni sem Laura Dawn syngur. Hún
er ljúf og róleg. Mörg laganna á
Hotel þykja líka minna á tónlist
David Bowie. Þegar Moby er spurð-
ur um Bowie-áhrifin þá stendur
ekki á svari:
„David Bowie er uppáhalds 20.
aldar tónlistarmaðurinn minn.
Hann og George Gerschwin. Ég
ætía mér ekki að gera tónlist til
heiðurs uppáhalds tónlistarmönn-
unum mínum, en það endar stund-
um þannig án þess að ég hafi ætlað
mér það.“
Lagið Spiders er samt gert til
heiðurs Bowie, bæði tónlistin og
textinn. „Málið er að Bowie fékk
hjartaáfall og það hljómar kannski
hræðilega en ég fór að ímynda mér
hvernig heimurinn væri ef Bowie
hefði dáið.“ Moby og David Bowie
eru vinir og nágrannar í New York.
Moby fer ekki leynt með aðdáun
sína á honum:
„Ég veit ekki um neinn annan
20. aldar tónlistarmann sem hefur
haft meiri áhrif á popptónlist og
menningu heldur en David Bowie.
Það má fuhyrða að engar af þeim
plötum sem við dáum í dag hljóm-
uðu eins og þær gera án tilvistar
David Bowie." Og hann bætir við.
„Ég hef hitt prinsa og aðalsfólk, en
ég hef aldrei hitt neinn sem er jafn
stórfenglegur og Iman og David
Bowie. Ég lít á þau sem kóngafólk
heimsins sem við lifum í.“
Róandi lyf fyrir hlustirnar
Hotel-platan er markaðssett á
óvenjulegan máta. Moby og
plötufyrirtækin sem gefa hann út
(V2 í Bandaríkjunum og Mute
annars staðar í heiminum) hafa
tekið upp samstarf við hótelkeðjur
víða um heim, t.d. W-keðjuna í
Bandaríkjunum og Malmaison-
keðjuna í Bretlandi um að kynna og
selja plötuna. Hún verður seld í
gjafaverslunum hótelanna, en líka
boðin í mini-barnum inni á hverju
herbergi. Moby sphar svo á sér-
stökum tónleikum á einhverjum
hótelanna.
Platan verður fáanleg bæði ein-
föld og tvöföld. Seinni diskurinn í
tvöfalda pakkanum heitir Hotel
Ambient og hefur að geyma 11
instrúmental sveimlög. Hún var
gerð undir áhrifum frá ambient-
tónlistinni sem David Bowie og Bri-
an Eno gerðu á áttunda áratugnum.
Moby hefur kenningu um til-
gang aukaplötunnar:
„Á minn eigin óskammfeilna
hátt trúi ég því að það bæti heiminn
að fylla hann af hljóðlátri sveimtón-
list. Það er eins og róandi lyf fyrir
hlustirnar." Kannski rétt hjá hon-
um, en sveimtónlistin passar í öllu
falli ágætlega inn í hótel konseptið.
Fín í lyfturnar...
Moby-plötur
Það þekkja allir hina ofurvinsælu
Play sem kom út árið 1999 og systur-
plötu hennar 18 sem kom út fyrir
þremur árum. En Moby hefur gefið út
allskonar tónlist á ferlinum. Hér koma
þrjá Moby-plötur sem færri þekkja:
Moby (1992)
Fyrsta Moby-plat-
an er (raun safn af
smáskífulögum sem
hann gerði á árunum
1988-1992. Þettaer
danstónlist, hrá og
frumstæð eins og
hún var gjarnan á þessum árum,en
hæfileiki Mobys til að búa til gtípandi
melódíur er þegar kominn (Ijós. Hér
eru nokkur mjög flott teknó-lög, þ.á
m.Next IsThe E,Electricity,Ah-Ah og
smellurinn Go sem fór óvænt inn á
Topp tíu í Bretlandi árið 1991. Það lag
er unnið upp úr þemalagi Twin Peaks-
þáttanna.
Everything Is
Wrong (1995)
Fyrsta stóra Moby
platan sem vakti at-
hygli út fyrir raðir
hörðustu teknó-
hausanna. Þetta er
danstónlistarplata,
en hér er Moby farinn að prófa sig
áfram með fleiri afbrigði af danstón-
listinni. Fyrir þá Moby-aðdáendur sem
ekki þola Play er þetta sennilega besta
platan. Hér eru snilldarlög eins og Atl
That I Need IsTo Be Loved, Every Time
You Touch Me, Feeling So Real og
blúslagiðWhat Love.
Animal Rights
(1996)
Moby skellir sér (
gftarrokkið. Það er
erfitt að hlusta á
þessa plötu án þess
að brosa út í annað.
Þetta er tilraun til að búa til hrátt og
kraftmikið jaðarrokk með smá teknó-
áhrifum, en Moby er alls ekki að ráða
við þetta. Gltarsándið er t.d. alveg von-
laust. Moby hefur alltaf gert það sem
honum sýnist og verið óhræddur við
að prófa nýja hluti.en Animal Rights
er tilraun sem ekki virkaði. Hún er
stundum nefnd sem ein af misheppn-
uðustu plötum sögunnar.
Eitt af því sem pirrar suma í sambandi við Moby er að
hann á það til að vera mótsagnakenndur. Hann hefur mikinn
áhuga á póhtík, hann er sannfærður dýravinur og græn-
metisæta og hann hefur beitt sér gegn stríðsrekstrinum í írak
og gegn Bush forseta. Hann gerði t.d. lagið MLFW (Make Love
Fuck War) með Public Enemy gegn Íraks-stríðinu og eins og
fleiri tónhstarmenn studdi hann duglega við bakið á John
Kerry fyrir forsetakosningarnar í fyrra.
Margselur lög sín
í plötubækhngnum með Everything Is Wrong-plötimni
eru lflca ritgerðir eftir Moby þar sem hann reynir að sannfæra
lesendur um að það sé allt á rangri leið í heiminum, m.a.
vegna ágengni og sóunar tihitslausra stórfyrirtækja. Á sama
tíma sér hann ekkert athugavert við að selja og jafhvel marg-
selja lögin sín í auglýsingar sem a.m.k. í sumum tilfellum eru
að auglýsa ffamleiðslu þessara sömu gírugu og siðlausu stór-
fýrirtækja.
Bók, bolir og matsölustaður
Það er samt kannski ósanngjarnt að væla yfir því þó Moby
selji lögin sín. Hann er enn dyggur og mjög örlátur stuðnings-
maður Dýravemdunarsamtakanna PETA og svo hefur hann
jú alveg rétt á að þroskast eða skipta um skoðanir eins og
aðrir.
En Moby er ekki bara í tónhstinni. Hann rekur matsölu-
staðinn Teany Cafe
sem er staðsettur á
Rivington Street á
Manhattan og
hönnunarsjoppuna
The Littíe Idiot sem
selur m.a. boh og
kort. Hún er við
Eldridge Street.
Ekki vitlaust að tékka á þessu ef maður á leið til New
York. Eftir nokkra daga kemur líka út bókin Teany Book sem
Moby gerir í samvinnu við Kehy Tisdale. Hún inniheldur m.a.
sögur, teikningar og uppskriftir.
þý and.Koll