Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Blaðsíða 19
DV Helgarblaö
Aðstandendur Face North Fannar Leósson, Ragnhildur Gudmundsdóttir, Jóna-
tan Einarsson og Árni Elliot i faðmi allra þátttakendanna. Undirbúningur fyrir
keppnina iár hefur m.a. falist iþvi að þáttakendur Itafa horft saman á raunveru
leikaþáttinn Americas Next Top Model, en þar er mikið liægt að Ixra um fyrir
sætustarfið.
íslenska hönnun því fyrirsætumar
munu einungis koma fram í íslenskri
hönnun á sýningunni á miðvikudag.''
Catwalk-æfingar
Undirbúningurinn fyrir keppn-
ina, sem er í raun ein stór tískusýning
þar sem hver þátttakandi er með
þijár innkomur, hefur að mestu falist
í því að læra að ganga á sviði, eða svo-
kallað „catwalk".
„Þetta er alls engin fegurðarsam-
keppni. Við erum að þjálfa upp fólk
til þess að það geti unnið við fyrir-
sætustörf erlendis en til þess verður
viðkomandi að kunna að ganga á
sviði og pósa og því er mikil áhersla
lögð á það," segir Fannar. Tuttugu og
sjö fslendingar taka þátt í keppninni,
þar af sex strákar. Sjö danskar stúlkur
eru einnig skráðar til leiks.
„Við erum í samstarfi við danska
umboðsskrifstofu sem sendir þessar
stúlkur í keppnina en ætlunin er að
keppnin verði skandinavískari með
tímanum. Það er dýrt fyrir hvem og
einn að fara til útlanda til að freista
gæfunnar þannig að svona viðburður
er auðvitað mun sniðugri fyrir alla
aðila. Fyrirsætunum gefst kostur á að
kynna sig á einu bretti fyrir nokkrum
umboðsskrifstofúm og umboðsskrif-
stofumar fá að skoða fullt af vænleg-
um módelum. Þar að auki ná íslensk-
ir hönnuðir að kynna hönnun sína
þannig að þetta er í raun bara alls-
herjar tískuviðburður sem við gemm
okkur vonir txm að geti vaxið með
árunum."
Raunverulegt atvinnutækifæri
Þegar Fannar er spurður að því
hvort hann væntí þess að eitthvað
komi út úr þessu, þ.e.a.s. hvort hann
telji að einhver komist á samning er-
lendis, þá segir hann það ekki vera
spumingu um hvort heldur frekar
hversu margir.
„Við völdum þessa 27 einstak-
linga úr 600 manna hópi og þeir
lofa allir mjög góðu. Eftir keppnina
í fyrra sendum við þrjár fyrirsætur
út og í maí fara þrjár í viðbót,
þannig að hér er um raunverulegt
atvinnutækifæri að ræða fyrir þá
sem hafa virkilegan áhuga og hæfi-
leika."
Áhugafólk um tísku ætti ekki að
láta Face North-keppnina fram hjá
sér fara en hún fer, eins og áður sagði,
fram næsta miðvikudagskvöld og
opnar húsið klukkan hálf níu.
Fyrirsætumar sýna famað frá Elm,
Spaksmannsspjörum, Rögnu Fróða,
Dead, Ásta Creative Clothes, Henson,
66° norður og Listaháskólanum.
Miðasala er nú þegar hafin í Hafnar-
húsinu.
m (lÍGO r, r\-
W E A i A r-rnovi Uy C -*i R
Legódagar
til 20. apríl
25%
afsláttur