Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 16. APRlL 2005
Helgarblað DV
1
Davið hætti á Kárahnjúkum
Idolid hefur feerr honum nxg
:æLifæri til nö syngja og skemmta
landsmömwm i náinnl framtíö.
Davíð Smári Harðarson vissi ekki fyrir hvað hann ætlaði að
verða frægur en tókst það að minnsta kosti um stunclarsakir.
Akvað smágutti að verða frægur
Fáir keppendur í Idolinu komu
jafnmikið á óvart og þéttliolda
„truck driverinn“ Davíð Smári.
Hann ók frá Kárahnjúkum í prufu á
Akureyri og fljótlega eftir það voru
kuldinn og vosbúðin upp á regin-
fjölium að baki en við tók ljósadýrð
sviðsins í Smáralind og kastljós fjöl-
miðla. Sannarlega viðbrigði það fyr-
ir þennan tæplega tuttugu og fimm
ára pilt, ættaðan að vestan, kominn í
báðar ættir af þrekvöxnum hákarla-
skipstjórum, stórmennum og prest-
um vestur á fjörðum. Þeir kölluðu
ekki allt ömmu sína frekar en piltur-
inn sjálfur en fáir áttu von á því að
þessi þéttvaxni bflstjóri stæði á svið-
inu í Smárlind föstudag eftir föstu-
dag. „Nei, mér datt það aldrei í hug
og hugsaði þetta í köflum. Ef ég
næði í tíu manna úrslit væri ég harla
ánægður. Það tókst og þá setti ég
mér annað takmark og svo koll af
kolli," segir hann brosandi, nýkom-
inn úr upptökum á þætti á Stöð 2.
Söngurinn skiptir miklu
Hann segir það hafa gegnið vel
og verið mjög gaman. Útskýrir að
söngurinn skipti hann ofsalega
miklu máli, við það vilji hann vinna í
framtíðinni. „Idolið gefur mér tæki-
færi til þess og síðan er að sjá hvern-
ig ég vinn úr því. Ég er á fullu að
vinna að plötunni minni þessa dag-
ana og það er náttúrulega draumur
sem ég átti ekki von á að rættist. Ég
hefði hlegið fyrir nokkrum mánuð-
um síðan ef einhver hefði sagt mér
að ég af öllum mönnum yrði að
vinna að pötu með fallegum ballöð-
um," segir hann og skellihlær.
Davíð Smári er alinn upp í
Reykjavík, Noregi, Stykkishólmi og
aftur sunnan heiða. Hann flutti með
foreldrum sínum, Maríu Davíðs-
dóttur hjúkrunarfræðingi og Herði
Harðarsyni fiskeldisífæðingi ásamt
yngri bróður úr Hólminum í Garða-
bæ og þar gekk hann í fjölbrauta-
skólann í bænum.
Ólst upp við hlátur og gleði
Davíð er ánægður með foreldra
sína sem studdu hann heilshugar á
meðan á keppninni stóð. „Þau voru
alveg æðisleg og tóku þátt í þessu
með mér af h'fi og sál. Bæði eru þau
létt og kát og pabbi stóð við áheit sitt
um að mæta túberaður og í dragi en
ég hafði lúmskt gaman af. Þegar
hann lofaði því ef ég kæmist í þriggja
manna úrsht, átti ég ekki von á að
hann þyrfti að standa við það en
þegar ég komst lengra og lengra átt-
aði ég mig á að það gæti allt eins
orðið að hann sæti í salnum í dragi
eitt kvöldið," segir hann glottandi og
úrskýrir að ekki hafl mátt á milli sjá
hvort hefði verið skemmtilegra að
komast svona langt eða fylgjast með
foreldrunum. „Pabbi hafði jafh
gaman af þessu og ég, hann er
þannig en ég ólst upp við mikinn
hlátur og gleði," bætir hann við.
Söngurinn er í ættinni en Hörður
faðir hans syngur með Óperukórn-
um og afabróðir hans var Rögnvald-
■•iseijei nduKsdottir . Eggæticl
veg hugsad mér að verða starfanc
söngkona, það vxii frábært að fá
gera það sem manni fmnst einna
skemmtilegast en hins vegarheld
kalli ekkert a mic,
egna lífsreynslunnar
íörnuleit.
Draumur sem varð að veruleika
„Ég er rosalega ánægð með þetta
og kom eiginlega sjálfri mér á óvart,"
segir Lisebet Hauksdóttir en hún
endaði í fjórða sæti í Idol Stjörnuleit.
Lísa, eins og hún er betur þekkt, er
Ólafsfirðingur og stolt af því og hún
segir forréttindi að hafa fengið að
alast upp á svona litlum stað. „Ég er
ahn upp á fallegasta stað landins,"
segir Lísa hlæjandi. „Það var frábært
að vera barn á Ólafsfirði þar sem all-
ir þekkja alla, alhr hjálpast að og
einnig sérstaklega í sambandi við
það hvað maður var frjáls. Bara það
að geta leikið sér úti sem krakki um
allan bæ, án þess að þurfa að hafa
áhyggjur af brjálaðri umferð eða ein-
hverju slíku, geta æft allar íþróttir,
labbað eða hjólað sjálfur á og af æf-
ingu, þurfa ekki að bíða eftir
stressuðum foreldrum að sækja
mann og skila manni í pössun eitt-
hvert annað er eitthvað sem ég á eft-
ir að meta svo lengi sem ég hfi."
Opin og appelsínugul
Mamma hennar Lísu heitir
Jónína og starfar sem þjónustufull-
trúi Sparisjóðsins á Ölafsfirði en
pabbi hennar, Haukur, er húsa-
smíðameistari og forstöðumaður
íþróttamiðstöðvarinnar. Lísa segir
samband hennar og foreldranna
mjög gott. „Samband okkar er mjög
náið og við stöndum saman í súru og
sætu. Þau eru sko mínar fyrirmyndir
í hfinu, það er nokkuð ljóst," segir
hún og bætir við að hún eigi tvo
bræður, Kristján sem er þrítugur og
Hjalta Má sem er 18 ára. „Þeir eru
báðir algjörir töffarar og við náum
hka rosalega vel saman eins og öh
fjölskyldan. Við erum öh mjög opin
og appelsínugul," segir hún bros-
andi.
Lísa segist hafa sungið síðan hún
man eftir sér en líf hennar hafi þó
snúist að mestu leyti um íþróttirnar,
hún hafi stundað fótbolta, blak,
sund, golf, skák, gönguskíði, svig-
skíði, skíðastökk, körfu, badminton
og fleira. „ÖU mín uppvaxtarár var ég
mjög mikið í íþróttum og ég held að
ég hafi keppt í flestu sem í boði var.
Ég elska þetta kikk, að þurfa að
stefria að einhverju, æfa fyrir það og
taka svo á því, lenda í sigrum og tapi
og taka á því. Það er ekki verra að í
leiðinni veit maður að heUsan er í
góðum gír. Ég fór samt líka snemma
að syngja og græddi á því þar sem
annar bróðir minn borgaði mér aUtaf
fyrir að hætta," segir hún hlæjandi
en bætir við að hann sé þó voðalega
stoltur af henni í dag.
Gældi við 10 manna hópinn
Árið 1997 flutti Lísa frá Ölafsfirði
fil Akureyrar og skeUti sér í Verk-
menntaskólann þar. Hún útskrifað-
ist þaðan árið 2000 og síðan lá leiðin
í Kennaraskólann á Laugarvatni þar
sem hún lærði íþróttafræði. „Ég út-
skrifaðist árið 2003 með B.Sc. eða
sem íþróttafræðingur og flutti svo til
Austurríkis þar sem ég starfaði sem
skíðakennari í Ölpunum. Þegar ég
kom svo heim, í ágúst síðastliðnum,
lá leiðin beint í Idohð," segir hún og
bætir við að hún hafi auk þess starf-
að í fiski, sjoppu, sundlaug, íþrótta-
Helgi Þór Arason er staöráðinn í aö notfæra sér skvndifrægðina
sem Idol Stjörnuleit færði honum.
Ástfanginn og ánægður með lífið
„Ég upplifði Idolið fyrst og fremst
sem ótrúlegt ævintýri og geri enn,“
segir Helgi Þór Arason. Helgi Þór
heiUaði ungar íslenskar stúlkur upp
úr skónum með ljósum lokkum, blá-
um augum og frábærri sviðsfram-
komu í Idol Stjörnuleit og mun ör-
ugglega halda áfram að heiUa sem
þáttarstjórnandi í stefnumótaþætt-
inum Djúpu lauginni á Skjá einum
því þótt hárið sé orðið dökkt er hann
ennþá jafn sætur.
Lifði flökkulífi sem barn
Helgi Þór kom frá ísafirði tU að
reyna fyrir sér í Idolinu. Hann fædd-
ist í Reykjavík en hefur búið síðustu
átta árin á ísafirði. „Það hefur verið
dálítið flökkulíf á mér. Pabbi var í
þannig vinnu að við urðum að flytja
mikið og vorum meðal annars eitt ár
í Bandarlkjunum. Þegar Idolið byrj-
aði flutti ég suður og er búinn að
vera hér síðan," segir Helgi og bætir
við að hann hafi ákveðið að hætta í
skólanum til að fylgja Idolinu eftir.
Pabbi hans, Ari Már Pálsson, býr í
Ástralíu en hann og mamma hans
skfldu þegar Helgi var átta ára.
„Pabbi flutti fyrst suður og kynntist
konunni sinni þar," segir Helgi og
bætir við að hann og mamma hans
hafi búið mikið tvö ein síðan foreldr-
ar hans skildu. Mamma hans er köU-
uð ína og Helgi segir þau tvö mikla
félaga. Þótt hann sé á þeim aldri sem
margir unglingsstrákar láti mæður
sínar fara í taugarnar á sér segir
hann það ekki eiga við um samband
þeirra. „Við mamma erum náttúru-
lega búin að vera svo mikið saman
og mér finnst hiín æði en hún býr
með fínum manni á ísafirði," segir
hann og viðurkennir aðspurður að
það hafi ekki aUtaf verið létt að þurfa
að rífa sig reglulga upp með rótum
þegar fjölskyldan hafi verið að flytja
hingað og þangað um landið. „Ég
var kannski á versta aldrinum, 6 og 8
ára, og margir hafa sagt að það sé
ótrúlegt að ég sé eins og ég er miðað
við að hafa þurft að flytja svona oft.
Maður var aUtaf að kveðja vinina
sem maður var nýbúinn að kynnast
en ég hef aUtaf verið opinn og lét
þetta lítið á mig fá. Ég held að ég hafi
aUtaf verið dálítið þroskaður miðað
við aldur enda eru flestir vinir mínir
mun eldri en ég,“ segir Helgi og bæt-
ir við að hann eigi eina hálfsystur,
sem býr í Reykjavflc auk þess sem
Naomi, sambýliskona föður hans,
eigi tvo syni sem búa hjá þeim í Ástr-
alíu.
Klúðraði Idolinu
Helgi segist aUs ekki sjá eftir að
hafa tekið þátt í Idol Stjörnuleit.
Hann viðurkennir þó að hafa byrjað
í keppninni upp á grínið enda hafi
hann ekki haft mikla trú á að komast
langt. í dag er hann því ánægður þó
að hann segist hafa klúðrað síðasta
skiptinu sem hann kom fram. „Þetta
var ótrúlegt ævintýri út í gegn og líka