Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Side 36
36 LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005
Helgarblað DV
minningab
»**■'*:
ÓA. <- **•
tíHcr *«> »«*^
w sssríSSaa:
Bergþór Már Arnarson ætlar að berjast
áfram fyrir auknum rannsóknum á arf-
gengri heilablæðingu sem sambýliskona
hans, Hafdís Lára Kjartansdóttir, lést úr í
febrúar. Hann hefur fengið margar af
helstu poppstjörnum landsins til liðs við
sig og verður með risatónleika í Vetrar-
garði Smáralindar á sumardaginn fyrsta
til styrktar rannsóknum á þessum skelfi-
lega sjúkdómi.
Bergþór Hefurfengið Vetrargarð
inn lánaðan til þess að halda tón-
leika fyrir látna unnustu sina.
,Ætli maður sé nokkuð búinn að
vinna úr sorginni," segir Bergþór Már
Amarson eftirlifandi maki Hafdísar
Láru Kjartansdóttur sem lést úr arf-
gengri heilablæðingu 16. febrúar
síðasliðinn. Hafdís var 27 ára þegar
hún lést en móðir hennar hafði látist
xir þessum sama sjúkdómi rétt rúm-
lega þrítug eins og fleiri
fjölskyldumeðlimir þeirra. „Ég hef
sökkt mér í það að reyna að láta
drauma Hafdísar rætast," segir Berg-
þór Már sem nú skipuleggur risastóra
tónleika í Vetrargarði Smáralindar að
kvöldi sumardagsins fyrsta til styrktar
rannsóknum á þessum hræðilega
sjúkdómi sem hrjáir nokkrar íslensk-
ar fjölskyldur. Bergþór starfar sem
fulltrúi hjá Smáralind þar sem hann
einmitt sá Hafdísi í fyrsta skipti fyrir
rúmu ári síðan. Þau urðu fljótlega yfir
sig ástfangin, hófu sambúð og voru
byrjuð að skipuleggja brúðkaup.
Bergþór er ákveðinn í að halda áfiram
baráttu Hafdísar fyrir auknum rann-
sóknum á sjúkdómnum sem varð
henni að falli, en hún hafði sjálf aflað
fjármuna til þess að stuðla að aukn-
um rannsóknum. „Hafdís gekk alltaf
með þessa tónleikahugmynd í mag-
anum. Hún ætlaði reyndar að halda
ball í Stapanum með einhverjum
hljómsveitum. Mig langaði að Úára
þetta mál fyrir hana og gera mitt til
þess að stuðla að áframhaldandi
rannsóknum. Sumardagurinn fyrsti
var afmælisdagur móður hennar sem
dó iíka úr þessum sjúkdómi," segir
Bergþór sem hefur gengið vel að fá
fólk til að styrkja þetta brýna málefni.
Góður liðstyrkur
Meðal þeirra sem koma fram á
tónleikunum eru Hreimur úr Landi
og sonum sem ætíar að vera sóló
með kassagítarinn, sönkonan Hera,
hljómsveitirnar Á móti sól og Skíta-
mórall, Páll Rósinkranz og Páll Ósk-
ar með Moniku sinni spila líka á
tónleikunum auk írisar Lindar og
Edgars Smára. Bergþór segir alla
hafa tekið vel í að leggja málefninu
lið. Smáralind lánar Vetrargarðinn
og 365 ljósvakamiðlar sjá um ljósin.
Miðar á tónleikana eru seldir í þjón-
ustuborði Smáralindar og hjá
Traffík í Keflavík. „Ég hef fengið Elí-
as Ólafsson yfirlækni á Landspítaln-
um til tala um sjúkdóminn með mér
við fjölmiðla. Hann hefur sérfræði-
þekkingu á þessum skelfilega sjúk-
dómi sem var valdur að dauða Haf-
dísar," segir Kjartan. Hann er enn í
góðu sambandi við börn Hafdísar
sem bjuggu með þeim þegar Hafdís
dó. „Þau búa nú hjá föður sínum
hér í bænum. Það er mjög gott sam-
komulag á milli okkar og ég hitti
þau mjög oft. Það vill svo til að þau
búa í sömu götu og sonur minn
þannig að þau hitta hann reglulega,
enda voru þau miklir vinir," segir
Bergþór. Auk þess að halda tónleik-
ana safnar fjölskylda Hafdísar
styrktarlínum sem birtast munu á
skjávarpa fyrir ofan sviðið á meðan
á tónleikunum stendur. Bergþór
vonast til þess að geta safnað dá-
góðri upphæð sem verður varið tíl
styrktar rannsóknum á þessum
sjaldgæfa ættarsjúkdómi.
Ætlaði að gifta sig í sumar
Bergþór kynntíst Hafdísi í gegn-
um samstarfskonu sína sem var vin-
kona Hafdísar. Kjartan
minnist þess að Hafdís hafi
sent honum SMS-skilaboð
stuttu eftir að þau hittust og
tilkynnt honum að hún væri
búin að hitta mann sem hún
ætíaði að giftast. Hafdís og
Bergþór hreiðruðu um sig í
nýrri íbúð um mitt síðasta ár,
trúlofuðu sig í október og
voru þau byrjuð að skipu-
„Hafdís gekk alltaf
með þessa tónleika-
hugmynd í magan-
um"
leggja brúðkaup sem átti að fara
fram í sumar. „Þetta small bara hjá
okkur strax og við hittumst. Þetta var
alveg ffábær tími sem við áttum
saman," segir Bergþór. Hann hafði
eins og allir aðrir átt von á því Hafdís
fengi lengri tíma hér á jörð, þótt
hann væri meðvitaður um sjúkdóm
hennar.
Hafdís og
■ Bergþór 1/oru
mjög ástfangin
og ætluðu að
gifta sig i sumar.
( , ,)
• / . 84*
. i ú ... : \
Stórstjörnur styrkja málefnið Bergþor
er þakklatur hve vel hefur gengið að fá
folk til að ieggja málefninu lið.
■ ■ "V
•• f -
Til minningar um Hafdísi
Hafdís Lára Kjartansdóttir lést að
kvöldi 16. febrúar eftir að hafa fengið
skyndilega heilablæöirigu nokkrum
klukkustundum áður. Hafdís hefði
orðið 28 ára þann 19. rnars. Þessi unga
stúlka úr Keflavík lést í blórna lífsins
frá ungum börnum sínum og mannin-
um sem hún ætlaöi aö gil'tast í sumar.
Hún hafði barist lengi fyrir auknum
rannsóknum á arfgengri heilablæð-
ingu sem sett hefur mark sitt á
fjöískyidu hennar. Hún var 14 ára þeg-
ar hún fékk að vita að hún bæri gall-
aða genið og tjórum árum stðar lést
móðir hennar, 32 ára gömul, úr sjúk-
dómnum. Hafdís bar með sér von um
að einn daginn myndi finnast lækning
við þessum skelfilega sjúkdómi.