Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Page 46
46 LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005
Sport DV
Jslandsmótið í kraftlyftingum verður háð á Grand Hóteli í dag. Þar munu Benedikt
Magnússon og Auðunn Jónsson há þungavigtareinvígi sem skráð verður í sögu-
bækur og heims- og íslandsmet verða í hættu.
Á blaðamannafundi á Pítunni í Skipholti á föstudaginn, ræddi
pV Sport við Hjalta „Úrsus" Árnason aflraunafrömuð, sem er í
forsvari fyrir mótið í dag. Hjalti lofar að mótið verði allhrikalegt
og því til sönnunar bendir hann á einvígi þeirra Auðuns og
Benedikts, sem munu há baráttu um sigurinn í þyngsta flokkn-
um, þar sem heimsmet eru í hættu og menn tala í tonnum.
Hrlkalegir Benedikt Magnússon og Auöunn Jónsson munuhá sögulegt einvlgi á íslandsmót-
inu i dag. DV-mynd Vilhelm
Auðunn Jónsson hefur verið ein-
ráður í kraftlyftingunum á íslandi í
yfir 10 ár og hefur í raun ekki fengið
mikla keppni í greininni fyrr en nú,
því undrabarnið Benedikt Magnús-
son hefur vakið mikla athygli und-
anfarið fyrir mikla tilburði í kraft-
lyftingunum, ekki síst í réttstöðu-
lyftunni. Frægt varð á dögunum
þegar hann lyfti 400 kílóunum fjór-
um sinnum í röð fyrir æflngafélaga
sinn Magnús Ver Magnússon til að
sanna fyrir honum æfingatölur sín-
ar úr æfingaferð í Bandaríkjunum
fyrir nokkru. Benedikt er aðeins lið-
lega tvítugur að aldri og því eru
honum allir vegir færir og vart hægt
að kalla dreng „efnilegan" sem er
„Ég lítþannig á að
þetta íslandsmót
verði móðir allra
móta og það er
skemmtilegt að þetta
skuli einmitt vera 20
ára afmælismót
KRAFT. Það hefur ekki
gerst oft áður að tveir
svona öflugir menn
keppi á móti hvor öðr-
um
að nálgast heimsmetið í réttstöðu-
lyftu.
Auðunn aldrei sterkari
Auðunn á besta árangur allra ís-
lendinga í krafdyftingum, eða 1050
kíló, sem hann tók á íslandsmótinu í
fyrra. Auðunn sagði í samtali við DV
að hann hefði aldrei verið sterkari og
setur stefriuna á 1100 kfló í saman-
lögðu um í dag. „Æfingamar hjá mér
hafa gengið mjög vel og ég er alveg á
því róli sem ég ætlaði mér fyrir mót-
ið. Byrjunartölurnar mínar eru eitt-
hvað í kringum 1065 klló, en þær
geta verið rokkandi ef maður er ekki
alveg í gírnum eða nær sér ekki á
strik í einhverri greininni. Mitt
markmið fyrir þessa keppni er að
skila 1100 ldlóunum, en svo verð ég
bara að sjá hvernig Benni kemur inn
í þetta og ganga út frá því. Ég hef að
minnsta kosti aldrei verið þyngri og
aldrei verið sterkari," sagði Kópa-
vogströllið Auðunn Jónsson.
Tek það sem þarf
Benedikt Magnússon er með ein-
falda hernaðaráædun fyrir mótíð í
dag. „Ég ætía bara að elta Auðunn.
Hann tekur eitthvað aðeins meira
en ég í hnébeygjunni og bekknum
og ég ætía að reyna að hanga í hon-
um þar, en svö á ég réttstöðuna inni
og ég ætía einfaldlega að taka það
sem ég þarf í henni. Eg hef fulla trú á
þessu, ég er mjög sterkur í dag og ég
veit að ég get tekið 455 kíló í rétt-
stöðulyftu," sagði Benedikt, sem
hefur þegar tekið 410 kfló í réttstöð-
unni á æfingu, sem er ekki langt frá
heimsmetinu. Það er 423 kfló, en
Benedikt er farinn að horfa lengra
en það og segist munu verða fyrsti
maðurinn í sögunni til að lyfta 1000
pundum í réttstöðulyftu.
Móðir allra móta
Hjalti Úrsus er yfir sig spenntur
fyrir mótinu í dag og gerir ekki ráð
fyrir neinu hálfkáki. „Þeir Auðunn
og Benni stefna báðir á að fara í 1100
kflóin í samanlögðu á mótinu og svo
er Boris búinn að setja stefnuna á
tonnið. Það eru líka að koma þarna
inn ungir og gríðarlega efnilegir
strákar, svo að þetta verður rosalegt
mót. Það hafa einir 19 keppendur
skráð sig til leiks og þar af þrjár
konur. Ég lít þannig á að þetta ís-
landsmót verði móðir allra móta og
það er skemmtilegt að þetta skuli
einmitt vera 20 ára afmælismót
KRAFT. Það hefur ekki gerst oft áður
að tveir svona öflugir menn keppi á
móti hvor öðrum og þeir eiga vafa-
lítið eftir að egna hvorn annan í
stórafrek á laugardaginn. Þetta ein-
vígi þeirra hefur orðið til að vekja
enn meiri áhuga á sportinu og ég á
von á því að sjá mikið af fólki á
keppninni," sagði Hjalti. Mótið fer
eins og áður sagði fram á Grand
Hóteli í dag og hefst keppni klukkan
tólf á hádegi.
baldur@dv.is
Þjálfarar í
tveggja
mánaða
bann
Tveir íslenskir knattspymu-
þjálfarar hafa orðið uppvfsir að
því að svindla á leikskýrslu í
leikjum liða sinna í f deildarbik-
arkeppni KSÍ í knattspymu.
Báðir notuðu ólöglegan leik-
mann í leikjum sinna liða en í
stað þess að skrá viðkomandi
leikmenn á leikskýrsluna not-
uðu þeir nafri leikmanns sem
ekki tók þátt í leiknum. Þetta
kom fram á heimasíðu KSÍ í gær.
Stjórn KSÍ ákvað á fundi sínum
14. aprfl að úrskurða umrædda
þjálfara í tveggja mánaða leik-
bann, þá Nóa Björnsson þjálfara
Leifturs/Dalvíkur og Jón Steinar
Guðmundsson þjálfara Bolung-
arvíkur. í báðum tilfellum
stendur bannið frá 14. aprfl til
og með 13. júní og gildir í öllum
leikjum innan vébanda KSÍ.
Jafnffamt em félögin sektuð um
30.000 kr. Eftir leik Leifturs/Dal-
víkur og Fjaröabyggðar í deild-
arbikarkeppni KSI18. mars sl.
kom í ljós að Leiftur/Dalvík
hafði skráð Kolbein Arinbjamar-
son á leikskýrslu þrátt fyrir að
hann tæki ekki þátt í leiknum.
Hið sanna er að Saso Durasovic
lék leikinn og var nafh hans ekki
skráð á leikskýrsluna. Saso var á
þeim tíma leikmaður KS. Eftir
leik Bolungarvíkur og Selfoss í
deildarbikarkeppni KSÍ13. mars
sl. kom í ljós að Bolungarvík
hafði skráð Rögnvald Magnús-
son á leikskýrslu þrátt fyrir að
hann tæki eklci þátt í leiknum.
Hið sanna er að Halldór Skarp-
héðinsson lék leikinn og var
nafn hans ekki skráð á leik-
skýrsluna. Halldór var á þeim
tíma leikmaður BÍ. Geir
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
KSÍ, sagði í samtali við DV í gær
að svona mál hefði ekki komið
upp áður. „Það var sett inn
ákvæði um þetta í reglugerð á
síðasta ári þar sem við höfðum
heyrt ávæning af því að svona
lagað viðgengist. Það er mjög
alvarlegt mál að opinber plögg
séu ekki rétt og í þessum
tveimur málum lá ljóst fyrir að
það var vísvitandi staðið rangt
að máium. Refsiramminn í
__ kringum brot af þessu
tagi er allt að eitt ár en
' - ég tel að með þessu
tveggja mánaða banni
gefi sambandið skýr
"'x,, skilaboð um að
þetta sé ekki
hluti af okkar
starfiogeigi
ekki að finnast
í hreyfing-
unni," sagði Geir.
Stjarnan tryggði sér oddaleik í undanúrslitum úrslitakeppni kvenna í handbolta með því að vinna ÍBV
Fjórum mörkum undir, fjórar mínútur eftir - unnu samt
Stjörnustúlkur unnu einn mesta
karaktersigur í langan tíma í hand-
boltanum þegar þær tryggðu sér
oddaleik gegn ÍBV í Ásgarði á
fimmtudagskvöldið en úrslitaleikur
liðanna um sæti í úrslitunum gegn
Haukum fer einmitt fram í Eyjum í
dag.
ÍBV-liðið var sex mörkum yfir
þegar 15 mínútur voru eftir og virtist
vera að tryggja sér sæti í úrslitunum.
Stjörnuliðið gafst samt aldrei upp,
ekki einu sinni þegar liðið var fjór-
um mörkum undir og aðeins fjórar
mfnútur eftir af leiknum. Stjarnan
skoraði í framhaldinu fimm síðustu
mörk leiksins á sama tíma og fimm
sóknir Eyjaliðsins fóru forgörðum.
Kristín Guðmundsdóttir skoraði
að lokum sigurmark Stjörnuliðsins
þegar aðeins fjórar sekúndur voru
eftir eftir glæsilega stoðsendingu frá
Rakel Dögg Bragadóttur sem ásamt
Heklu Daðadóttur gerbreytti sókn-
arleik liðsins á lokakaflanum. Kristín
sást ekki fýrstu 45 mínútur leiksins
en skoraði þrjú mikilvæg mörk í lok
leiksins, Rakel Dögg kom inn í sókn-
ina þegar tæpar 14 mínútur voru eft-
ir og kom að sex af síðustu sjö mörk-
um liðsins, átti þá fjórar stoðsend-
ingar, fiskaði eitt víti og eina send-
ingu inni á línu sem gaf víti. Þá skor-
aði Hekla Daðadóttir úr þremur vít-
um á síðustu fjórum mínútunum
þar af einu sem hún þurfti að tvítaka
en Stjarnan hafði fyrir þann tíma
klikkað á fjórum vítaköstum.
Þetta var ótrúlegur stemnings-
sigur hjá Stjörnunni því það þurfti
mikla trú og andlegan styrk til að gef-
ast ekki upp þegar 15 mínútur voru
eftir af leiknum. Liðið var þá sex
mörkum undir og Florentina Grecu,
ffábær markvörður ÍBV, varði þá enn
eitt vítið og Eyjaliðið fór í sókn.
Sigurvegari oddaleiksins í dag
mætir Haukum í úrslitaeinvíginu
um íslandsmeistaratitilinn en
Haukaliðið vann báða leikina gegn
Val með samtals 23 marka mun.
Sóknir Stjörnunnar
síðustu 15 mínúturnar:
Sóknir: 15
Mörk: 10
Tapaðir boltar. 1
Varin skot: 4
önnur misheppnuð skot: 0
SóknirÍBV
síðustu 15 mínúturnar:
Sóknir: 15
Mörk: 3
Tapaðir boltar: 5
Varin skot: 5
önnur misheppnuð skot: 2
Gáfust aldrei upp Kristín Jóhanna Clausen og félagar Ikvennaliði Stjörnunnar unnu upp
fjögurra marka mun Islandsmeistara ÍBVá siðustu fjórum mínútunum. Tap hefði þýtt sumarfrí
fyrir Stjörnuna ennú leika liðin úrslitaleik í Eyjum i dag.