Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2005, Síða 54
54 LAUGARDACUR 16. APRÍL 2005 Helgarblað DV Orri fer til Slóvakíu íslendingar taka þátt í alþjóðlegu verkefrú Ijósmyndara. Viðfangseinið er breytt ásýnd menningar og mannlífs í Evrópu. Háskólinn í Sunderland kom verkefninu af stað en samstarfsaðilar eru Finnland, Holland, Þýskaland, Spánn, Slóva- kía, Tékkóslóvakía og Litháen. Þjóð- minjasafhið leiðir okkar þátt. Valinn er íslenskur ljósmyndari og sendur til Slóvakíu og mun hann dvelja þar í tvo mánuði við tökur. Auglýst var eftir ljósmyndurum og sendu fimmtán aðilar inn um- sókn. Valnefnd skipuð Ingu Láru Baldvinsdóttur, Einari Garibaldi Ei- ríkssyni, Einari Fal Ingólfssyni, Kristínu Hauksdóttur og Guðmundi Ingólfssyni valdi fimm ljósmyndara: Bjargeyju Ólafsdóttur, Maríu Kjart- ansdóttur, Orra Jónsson, Sigurð Jök- ul Ólafsson og Spessa. Dómnefnd í Slóvakíu fór síðan yfir umsóknir og valdi Orra Jónsson sem fulltrúa ís- lands í verkefninu. Orri lærði ljósmyndun í New York og hefur haldið einkasýningar á íslandi og erlendis og tekið þátt í samsýningum. Myndir Orra og um- flöllun um þær hefur ehmig birst f ýmsum tímaritum. Þekktasta efrii Orra eru litmyndir af eyðibýlum innanhúss. Orri er fjölhæfm lista- maður því hann er einnig slagverks- leikari og söngvari í dúóinu Slowblow. íslenska valnefhdin átti líka að velja einn úr hópi fimm hollenskra tunsækjenda. Þar var valinn Rob Homstra, en hann er nýútskrifaður í ljósmyndun frá Listaakademíunni í Utrecht. Bók með ljósmyndum Hornstra, Communism and Cowgirls, kom út árið 2004. Úrval ljósmynda sem unnar em í verkefn- inu í þátttökulöndunum verður sýnt í Museum Folkwang í Essen í Þýska- landi snemma árs 2006 og síðan á farandssýningu sem sett verður upp hjá samstarfsaðilum í verkefninu. Uppboði 741 hjá Bruun Rasmussen lauk síðla í gær og þá höfðu nær átta hundruð gripir verið slegnir. Þar á meðal fjöldi verka eftir íslenska myndlistarmenn, bæði eldri og yngri. Gríðarmikill áhugi var á uppboðinu, meðal ^annars sökum þess að þar var safii danska leikar- ans Ove Sprögoe slegið hæstbjóðanda, en Ove var mikill listaverkasafnari og átt fi'nt safn af Flux- us-verkum og Cobra-málurum. Meðal mynda í hans eigu var eitt verka Errós úr Geimfaraserí- unni frá 1978 sem var metið á 330 þúsund, en fór á nær 458 þúsund. Önnur mynd eftir Erró, Skylab Shower frá 1975, fór á 273 þúsund, nokkuð undir mati. Sú þriðja úr röð sem kennd er við Grosz, þýska málara þriðja áratugarins, fór á 430 þúsund. Gamalt kompaní Fyrirtækið Bruun Rasmussen er eitt virtasta uppboðshús á Norðurlöndum. Það heldur úti kröftugum heimasíðum fyrir sín mörgu útibú og er bæði hægt að kaupa verk þar á gangandi upp- boðum á neti og taka þátt í sérstökum uppboð- »-um um síma. A uppboðsverð leggst uppboðs- gjald og við flutning milh landa virðisaukaskatt- ur. Hjá Bruun gefst kostur á að kaupa verk af öUu tagi. Á miðvikudag var t.d. hægt að kaupa þar verk eftir marga helstu meistara síðustu aldar, Picasso, Magritte, Appel, Tapies svo dæmi séu nefnd. íslensk bylgja Óvenju mikið var af verkum eftir Ólaf Elíasson á uppboðinu á miðvikudag, einkum verk firá ár- unum 1992 tU 1995, aUs fimm verk metin frá tæp- um 170 þúsundum og upp úr. Verk eftir hann eru fá tíl hér á landi frá þessum tíma. Landslagsljós- mynd frá íslandi fór á tæpan 165 þúsund kaU, en -eldri verk í poppuðttm stfl á vel yfir hálfa mUjón. Málverk eftir Svein Þórarinsson fór á 270 þús- und, og Jón Stefánsson, sá margfalsaði málari, fór langt yfir mati á tæp 600 þúsund. Mest var af verkttm íslenskum eftir Júlíönu Sveinsdóttur. Fimm olíuverk eftir hana voru á uppboðinu, flest fóru vel yfir mati, sum fóru á tvöföldu mati, önnur á þriðjungi. Meðalverð á verkum hennar virðist vera um mitt fjórða hund- rað og rís svo hærra, upp undir hálfa miUjón. Góðkunningjar Aragrúi verka eftir vini og samverkamenn Svavars Guðnasonar áttu myndir á uppboðinu: Asger Jom, Eijler BUle, Robert Jakobsen, Carl Henning Pedersen, en þeirra verk em verðlögð dýrt en geta verið frá ólfloim tímum. AUir þessir myndlistarmenn vom afar afkastamiHir og Dan- mörk var þeirra heimamarkaður þótt hróður þeirra bærist víða. Talvert var af verkum eftir Appel. Það var málverk eftir Asger Jorn frá 1969 sem fór á nær 20 miUjónir íslenskar. Þá var hlutur verka eftir Fluxus-menn áber- andi á uppboðinu, en verð á þeim er furðulágt miðað við mikilvægi þeirrar hreyfingar í mynd- listarheimi Norður Evrópu á síðustu öld. GamaU vinur Dieter Roth, Addi Kopcke, átti nokkur verk sem fóm fyrir lítið. Stórt olíuverk eftir Jan Voss, sem hingað kom margsinnis með vinum sínum í Súm, fór á háu verði, langt ofan við spáverð. Þá vom verk í boði eftir færeysku meistarana, Mikines og Heinesen. Þá em ónefnd verk eftir yngri meistara: Warhol, Dine og Raushenberg sem á miðvikudag var seldur á verði sem í Amerfloi þætti fyndið. Myndeftlr Errófórá hálfa míljón. BORGARLEIKHUSIÐ Loikfélag Roykjavikur • Listabraut 3, 103 Roykjavík STÓRA SVIÐ DRAUMLEIKUR e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ. Su 24/4 kl 20, Fi 28/4 kl 20 - UPPSELT, SUSustu sýningar HIBYLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir I kvöld kl 20, Su 17/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20, Fo 22/4 kl 20, Lau 30/4 kl 20, Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20 - Fáar sýnlngar afUr e. Coline Serreau Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20, Lau 7/5 kl 20 e. Astrid Lindgren / samstarfi viS A þakinu Aðalæfing Mi 20/4 kl 18 - UPPSELT. Frumsýning Fi 21/4 kl 14 - UPPSEIT, Lau 23/4 kl 14, Su 24/4 kl 14, Su 1/5 kl 14 Su 1/5 kl 17 Börn 12 ára og yngri fá frítt i Borgarleikhúslð I fylgd fuliorðlnna - gildir ekki á barnasýningar NÝJA SViB/UTLA SVIÐ/ÞRIDJA HÆÐIN TERRORISMI e. Presnyakov bræður Mi 20/4 kl 20, R 28/4 kl 20, Fí 5/5 kl 20 BBE iliJ e. Krístínu Ómarsdóttur Su 17/4 kl. 20, Fö 22/4 Slíustu sýningar AUSA eftir Lec Hall / samstarfi við LA. Fi 21/4 kl 20 - SUSasta sýnlng - Ath: Mlðaverð kr. 1,500 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur. I kvöld kl 20 - UPPS, Su 17/4 kl 20, - UPPS. Mi 20/4 kl. 20 - UPPS. Fi 21/4 kl 20 - UPPS. Fö 22/4 kl 20 - UPPS. Lau 23/4 kl 20 - UPPS. Su 24/4 kl 20 -UPPS. Lau 29/4 kl 20 - UPPS. Lau 30/4 kl 20 - UPPS. Su 1/5 kl 20 - UPPS. Fi 5/5 kl 20 eftir Harold Pinter Samstarf: A SENUNNI.SÖGN ehf. og LA Su 24/4 kl 20, Fi 28/4 kl 20 - Aukasýningar RIÐIÐ INN I SOLARLAGIÐ e. önnu Reynolds. í samstarfí við leikhópinn KLÁUS. í kvöld kl 20, Fö 22/4 kl 20, Lau 23/4 kl 20 AUGNABLIKIÐ FANGAÐ DANSLEIKHUSIÐ fjögur tlmabundin dansverk R 21/4 kl 19:09 Prumaýnlng Su 24/4 kl 1909, Su 1/5 kl 1909 Aðeins þessar 3 sýningar Míðasölusími 568 8000 • midasalafrjiborgarleildius.is Miðdsald á netinu www.borgtirleikhus.is Miðasalart i Borgarleilthúsinu er opin: 10 18 mánudaga og |niðjudaga, 10 20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga Fjórir tilnefndir til verðlauna Ár hvert er safnað gögnum um myndlistarmenn á Norðurlöndum sem vinna í málverki og úr valdir rúmlega tuttugu sem taldir em þess verðugir að fá hln svokölluðu Camegie-verðlaun. Valhópurinn setur siðan saman sýningu sem fer um Norðurlöndin og em fern verð- laun veitt. Em þau umtalsverð. Fyrstu verðlaun em milljón sænskra króna, önnur 600 þúsund, þriðju og fjórðu 400 þúsund. Þá er yngri listamanni veittur styrkur að upphæö krónur 100 þúsund sænskar. Þessi verðlaun hafa verið veitt sex sinnum og nú hefur val- nefiid birt nöfn 21 myndlistar- manns sem verða á sýningunni þetta árið, en hún fer á kreik í haust. Það var nefrid undir stjórn Lars Nittve sem valdi en þar sat Halldór Bjöm Runólfsson listfræðingur. Fjórir listamenn vom valdir frá ís- landi til þátttöku og eiga þeir þar með mögifleika á verðlaunum. Stóð valið á milli 115 lista- manna. Þeir Steingrímur Eyfjörð, Jón Óskar, Eggert Pétursson og Finnbogi Pétursson voru valdir og er hlutfall íslenskra óhemju hátt um þessar mundir. Állir em þeir meö sýningar og verkefni í gangi. Steingrímur Ey- fjörð sýnir á Myndasögumessunni til 24. aprfl og opnar í maí tvær sýn- ingar á Akureyri. Jón Óskar hefur Finnbogi Pétursson. Eggert Pétursson. Steingrfmur Eyfjörð. nýlokið sýningu í 101 Gallery í Reykjavík og sýnir nú á Galleria Krista Mikkola í Helsinki. Stein- grímur Eyfjörð og Jón Óskar eiga þar að auki verk 1 einkasafni 101 Gallery. Eggert Pétursson sýnir á i8 galleri á Listamessunni í Brassels sem hófst í vikunni og Finnbogi Pétursson á tvö hljóðverk á Lista- hátíð í Reykjavík í sumarbyrjun. Verðlaunahafar verða kynntir í júnflok og fer afhending verðlauna fram þann 29. september 2005 í Henie Onstad Kunstsenter fyrir utan Osló. Sýningin feröast sfðan milli höfuðborga Norðurlandanna ásamt Lundúnum og Nice haustið 2005 til vorsins 2007. í Reykjavlk verður sýningin í Listasafni Reykja- vfloir, Hafriarhúsinu frá 10. júní til 20. ágúst 2006. Samtímis sýningar- haldinu verður gefin út vegleg bók um þennan hóp listamanna sem á að auka hróður þeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.