Freyr - 01.09.1947, Síða 3
REYKJAVÍK, SEPTEMBER 1947
n <:)/>//na dan.ýýni/iy/n
i9Jr7
Laugardaginn 28. júní var opnuð í
Reykjavík sú langmerkasta sýning, sem
haldin hefir verið hér á landi, Landbúnað-
arsýningin.
Aðdragandi og undirbúningur þessarar
sýningar tók langan tíma og mikla fyrir-
höfn, og í framkvæmdinni var við ýmsa
örðugleika að etja, sem að sumu leyti áttu
upptök sín í því, að hér á landi eru flestir
viðvaningar í þeim sökum, er snerta svona
fyrirtæki, enda við að búast, þar eð fram-
kvæmdir af þessu tagi eru fágætar hér,
en örðugustu agnúarnir, sem við var að
glíma, stöfuðu þó af verkbanni, sem skall
á meðan á undirbúningi stóð, og eigi var
um garð gengið fyrr en nokkru eftir að
sýningin var opnuð. Olli það truflunum
svo að fyrirkomulag þess hluta sýningar-
innar, sem var utan aðalskála, varð allt
annað en gert hafði verið ráð fyrir á
skipulagsuppdrætti. Þá olli það og því, að
á sýninguna komu aldrei vélar og verk-
færi og ýmsir aðrir munir, sem lágu í
skipum á höfninni og í birgðaskemmum,
og fengnir höfðu verið hingað til lands í
þeim tilgangi fyrst og fremst að hafa
þarna til sýnis.
Seint á árinu 1945 kom sýningarmálið
fyrst til umræðu og var af ýmsum fyrir-
hugað, að af sýningu gæti orðið sumarið
1946, en fyrir ýmsra hluta sakir reyndist
það ókleift þá, og var framkvæmdum því
frestað þar til í sumar, eða eitt ár.
Ákvörðun um að hrinda málinu í fram-
kvæmd, var gerð á fundi hjá Búnaðar-
félagi íslands, að fenginni heimild til fjár-