Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1947, Page 10

Freyr - 01.09.1947, Page 10
268 FRE YR listiðnaðar, allt var gert úr ull, sem vaxið hefir á íslenzku sauðfé við íslenzk skilyrði. Þar gat að líta glöggan vitnisburð um hagleik og listfengi íslenzkra kvenna, hvort sem munirnir voru prjónaðir, heklaðir, saumaðir, ofnir, eða á annan hátt fram- leiddir með höndum og hugviti. Og svo var það íslenzka línið, sem áreið- anlega var eitt eftirtektarverðasta atriði sýningarinnar. Það er hægt að rækta lín á íslandi, það sannar árangur sá, sem frú Rakel Þorleifsson hefir öðlazt við ræktun líns um undanfarin ár. Hér er ekki úr- komusamara að jafnaði en á írlandi, hita- stigið er ef til vill eitthvað lægra hér en þar, en árangur línræktar virðist svo góð- ur hér, að vel er viðeigandi að rækta það. Hvort skilyrði til þess að fá línið gert að vefnaðarvöru, eru hin ákjósanlegustu, er annað mál, en það er auðvitað svo nátengt hörræktinni (hör = lín, lat. linum) að ef gengizt yrði fyrir línrækt hér á landi, mundi óhjákvæmilegt annað en athuga í því sambandi hvernig skilyrði eru til þess að fá gerða dúka úr hráefninu. Skógræktin og sandgrœðslan. Land vort er gjörrúið og gróðurvana á stórum svæðum. Eitt sinn var sums staðar vel gróið, sem nú er örfoka. Menn og mál- leysingjar, og harðúðug veðrátta, hafa lagst á eitt um að rýja og plokka þar, sem fyrr var skógur, kjarr, mörk, holt, eða grasi- vafðar lendur. Það er hlutverk vorra tíma að græða sárin — klæða landið. Meginefni sýningar skógræktarinnar og sandgræðsl- unnar fjallaði um eyðilegginguna annars vegar og uppbygginguna hins vegar. Vind- urinn brýtur barðið. Þar verður að hefta sandfokið. Garðar eru gerðir og melgrasið er stutt í viðleitni þess í því að binda jarðveginn. Það er hægt að klæða landið á ný með grasi og með birki, reyni, eða öðrum trjágróðri. Það er hægt, og það er þarft verk að gróðursetja runna og tré og láta gróður þennan mynda skjólbelti, er Kœliborö og vörur kjöt- verzlananna.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.