Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1947, Side 11

Freyr - 01.09.1947, Side 11
FRE YR 269 Frá heimilisiðnaðardeild Kvenfélagssamðands ís- lands. hefti framrás napurra næðinga. Sýning skógræktarinnar og sandgræðslunnar var fjölbreytt, glögg og hrópandi til vor. Klæð- um og græðum land vort á ný! Eflum gæði þess með auknum gróðri! Það starf gefur máske ekki arð í dag eða á morgun, en komandi kynslóðir munu lofa verk þeirra manna, sem gera eyðimörkina að frjósömum gróðurlöndum. MjólJcuriðnaðurinn. Innan þessarar deildar var að sjá bæði gamalt og nýtt. Það eru stígin risaskref frá tíma rennitroganna og byttanna, eða bullustrokksins og mjólkurfatanna, sem allt var gert úr tré, til nútíma véla þeirra, sem teknar eru til notkunar í þágu mjólkuriðnaðairins, svo sem Titan sMl- vindunnar og nýtízku tækja úr ryðfríu stáli, sem notuð eru á mjólkurbúunum. Árangur þeirrar starfsemi, sem fram- kvæmd er með hjálp þessara fullkomnu tækja, eru fyrsta flokks iðnvörur úr mjólk. Sýningshorn af þessum vörum frá mjólk- urbúunum voru þarna, og fjöldi manna fékk tækifæri til þess að sannprófa hvernig mjólkurosturinn frá Mjólkursamlagi KEA mysuosturinn frá Mjólkursamlagi Skag- firðinga, eða Baulumerkta smjörið úr Borgarnesi, er á bragðið. Tölurnar er greindu frá mjólkurmagn- inu, sem til mjólkurbúanna hefir borist um undanfarin 18 ár, síðan fyrsta mjólk- urbúið hóf starfsemi sína, gáfu glöggt til kynna, að stórstíg þróun hefir orðið á þessu sviði hér á landi. Hliðstæð þróun í meðferð mjólkurinnar á heimilunum mundi auðsæ, ef tækifærið hefði boðið ástæðu til þess að tákna hana með tölum eða á annan veg. Sjúkdómar og mein í jurtum og dýrum. Tvær deildir fjölluðu um þessi efni. — Jurtakvillar eru það algengir, að ástæða

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.