Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1947, Page 12

Freyr - 01.09.1947, Page 12
270 FRE YR er til þess að ráða bót á þeim og til þess eru ýms ráð, sem greint var frá með mynd- um og skýringum í deild jurtasjúkdóm- anna. Sjúkdómar búfjárins hafa um aldarað- ir verið búendum mikið áhyggjuefni, og ráða gegn þeim verið leitað hér löngu áð- ur en þeim, er jörð yrkja, var ljóst, að ástæða væri til að lækna þau mein, sem þjá gróandann. Reynsla síðustu ára hér á landi er beisk, að því er snertir sauð- fjársjúkdóma, og kvillar í nautpeningi virðast einnig fara vaxandi. Þess vegna voru og eru þau ráð vel þegin, sem miða að því að hefta útbreiðslu sjúkdóma eða takmarka hana að minnsta kosti. Á sýningu dýralæknanna gat að líta það, sem notað hefir verið, það sem not- að er og nota ber, til þess að vinna bug á búfjármeinum. — í þessum deildum voru sýnd læknislyf og þess stundum getið, hvernig þau bæri að nota. Tæki af ýmsu tagi, og hagnýting þeirra, vöktu hjá mörg- um áhorfandanum útsýn yfir hluti eða efni, sem ráða mætti til bóta. Má í því sambandi nefna haftið, sem sett er á kúna þegar hún lætur illa á meðan mjaltað er. Þegar haftið hefir verið sett á og hún pyntir sjálfa sig, ef eigi stendur kyrr, þá velur kusa auðvitað þann kostinn að halda kyrru fyrir á meðan mjaltað er. Þetta er bara eitt dæmi frá vettvangi þessarar deildar. Kjötiðnaðurinn. E:gi verður um það deilt, að þeir sem sýninguna sóttu og báru saman gömlu og nýju kjötbúðina, sem þarna voru hlið við hlið, hlutu að viðurkenna þann reginmun, sem var á hinu forna og því nýja. Það er ástæða til þess að efast um hvort nokkur iðnaður hér á landi stendur þess- um framar, og það er ljúft að viðurkenna, að leita mætti víða um lönd, áður en fundinn yrði fullkomnari útbúnaður til geymslu kjötmetis, til vinnslu þess og Innan deildar S.Í.S. átti klœdaverksmiðjan Gefj- Un veglegan þátt.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.