Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1947, Blaðsíða 18

Freyr - 01.09.1947, Blaðsíða 18
276 FRE YR sóknir voru gerðar, heldur alls staðar þar, sem hitastig verður lágt utan dyra á ein- hverjum tíma ársins. Aðgerðir þær, sem framkvæmdar voru sumarið milli tveggja rannsóknartímabila í Norrlandi, sýndu glöggt, að gamlar bygg- ingar geta batnað stórum, ef einangrun er aukin, og ömurleg fjós geta orðið sæmileg eða góð með því að einangra veggi og þök og setja strompa á mæni. Hér skal ósagt látið, hve mörg íslenzk peningshús má endurbæta eins og Svíar gerðu, eða á svipaðan hátt, en þegar byggja skal nýtt er gott að hugfesta þetta, að rannsóknir í Svíþjóð ’inni köldu sýndu niðurstöður, sem áreiðanlega er hægt að læra mikið af, einnig hér á íslandi. Ein- angrun er aldrei of góð. Hún þarf að vera svo góð að hægt sé að loftræsta svo að búfénu líði vel og það gefi góðar afurðir. Léleg peningshús valda vanlíðan hjá skepnunum, rýrum afurðum og vesölum búskap. H úsið á Landbúnaðarsýningunni Teiknistofa landbúnaðarins sýndi nokkra uppdrætti á landbúnaðarsýningu þeirri, sem nýlega var haldin í Reykjavík. Meðal þeirra var uppdráttur að fyrirmyndar íbúðarhúsi í sveit. Á sýningunni var part- ur af framhlið hússins í fullri stærð, aðal- stofa hússins með húsbúnaði, eldhús með „innréttingum" og loks líkan af húsinu, ásamt peningshúsum og skiplagi af bæj- arsvæðinu. Þar sem ýmsir hafa óskað eftir að kynn- ast húsi þessu nánar, birtast hér uppdrætt- ir ásamt nokkrum skýringum. Húsið er hæð með lágu risi. í því er rúmgóð dvalarstofa fyrir heimilisfólk og gesti, sem að garði ber. Svefnherbergi eru þrjú. Eitt þeirra liggur að litlum sérinn- gangi og er einnig gengið þaðan í bað- herbergi. Þetta herbergi er hugsað fyrir hjón og í því eru stórir innbyggðir fata- skápar. Línskápur er í ganginum. í innri forstofu er skápur fyrir yfirhafnir og höf- uðföt. Hin svefnherbergin eru minni en þó gott pláss fyrir tvö rúm og tvo innbyggða fataskápa í hvoru. Úr framenda forstofu liggja tvær dyr samhliða, önnur í eldhús, en hin í borðstofu. Eldhús og borðstofa eru að nokkru samliggj andi, en þó aðskil- in með lágu (1.10) m.) skilrúmi. Hægt er að hafa fullhátt skilrúm, ef þess er sér- staklega óskað, en ekki er ástæða til að mæla með því. í eldhúsi eru borð og skáp- ar svo sem venja er til, leirtauskápur inn- byggður til hliðar við matvælabúr. Úr eldhúsi er gengið í bakdyragang, en þaðan í geymslu og þvottahús. Ef miðstöðvar- ketill er í húsinu yrði honum komið fyrir í þvottahúsi og gólf lækkað um 70 sm. niður fyrir gólf i íbúðarherbergjum. Vel má þó hita hús þetta með góðri miðstöðv- areldavél í eldhúsi. Eí' þörf er fyrir meiri geymslu, herbergi til mjólkurvinnslu í heimili, smíðaher- bergi eða annað nauðsynlegt starfspláss, má lengja húsið og fæst þá sín vistarveran hvorum megin við bakdyragang. Framhlið- in hefir þá lengst til hægri og þar komið fyrir einum glugga til viðbótar og öðrum

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.