Freyr - 01.09.1947, Page 19
FRE YR
277
Húsið á Landbúnaðarsýningunni.
á bakhlið. Hiklaust ber að velja þá stækk-
un, ef stækkunar er þörf, fremur en að
hækka ris og koma fyrir lofti, enda húsið
ekki skipulagt með loftplássi sem mögu-
leika, og yrði því þá að vera á annan veg
gjört.
Ég vil að lokum vekja athygli á glugga-
hlerunum. Ýmsir munu halda því fram,
að þeirra sé lítil þörf frá hagrænu sjón-
armiði. Þeir sem veittu athygli glugga-
hlerunum á húsinu á landbúnaðarsýn-
ingunni, sáu glögglega hve drjúgan þátt
þeir áttu í því, að gefa húsinu hlýjan og
hugljúfan blæ. Það má heldur ekki gleyma
þeirri hlið málsins.
Hvað kostar svo þetta hús? Því er erf-
itt að svara. Verð á byggingarvörum er
mjög reykult og víða er sú óráran í lands-
fólkinu, að mælikvarðinn „dagsverk“ er
því nær óþekkt stærð. Þó mun þess gæta
minna í sveitum. Teiknistofa landbúnað-
arins hefir metið steinhús til lána á kr.