Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1947, Qupperneq 38

Freyr - 01.09.1947, Qupperneq 38
296 FREYR Ný verksvið. Eclvald Friðriksson heitir eftirlitsmaður mjólk- urmeðferðar. sem um var getið í síðasta blaði, en ekki Friðrik Þorvaldsson eins og þar stóð. ★ Hrútasýningar. Hrútasýningar verða haldnar á þessu hausti á svæðinu frá Núpsvötnum að Hvalfirði. Á sýning- unum munu mæta þeir Halldór Pálsson, sauð- fjárræktarráðunautur og Hjalti Gestsson, búfjár- ræktarráðunautur Búnaðarsambands Suðurlands. ★ Búskapur og flugvélar. Sumum þótti skotið framhjá marki fyrir tveim- ur árum síðan, þegar Jón Þorbergsson á Laxamýri, vildi láta athuga skilyrði fyrir möguleikum til flutnings á frosnu kjöti á erlendan markað. í rauninni bar hugmyndin vott um framsýni og markvissa starfstilhögun. Frá öðrum löndum koma nú fregnir daglega, um notkun flugvé’a í þjónustu landbúnaðarins. í Ameriku, Rússlandi og víðar, er sáð úr flug- vélum í stórum stíl. Skordýraeitri er dreift úr lofti yfir stór svæði, frá flugvélum. Verksmiðjur eru byrjaðar að framleiða flugvélar, sem ætlaðar eru til landbúnaðarþarfa. Áætlað er að ekki líði mörg ár, áður en hálf miljón flugvéla verða notaðar í þágu landbúnaðar- ins í Norður-Ameríku. ★ Vothey. í Svíþjóð nam votheysgerðin á árunum 1936 til 1939 ekki meiru en þvx að meðaltali, að hver kýr fékk 50—60 kg. vothey á ári. Árið 1946 fékk hver kýr í Svíþjóð 270 kg. vothey. Votheysgerðin hefir þannig fimm-faldast á síðustu 10 árum þar í landi. FREYR — búnaðarblað •— gefið út af Búnaðarfélagi íslands og Stéttarsambandi bænda. Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Lækjargötu 14, Reykjavík. Pósthólf 1023 Sími 3110. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Kristjánsson. Ritnefnd: Einar Ólafsson, Pálmi Einarsson, Steingrímur Steinþórsson. FR E YR er blað landbúnaðarins. Verð kr. 25.00 á ári. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Prentsmiðjan Edda h.f. Pólsk egg. Finnska „Hufrudstadsbladet“ segir frá því. að í Póllandi hafi verið framleidd 1,2 miljarðar egja árið 1946 og á árinu 1947 sé þess vænst að fram- leiðs’an nemi 1,5 miljörðum. Er þá búist við að flytja út 100 miljónir, en af því mun helmingur seldur til Englands og afgangurinn til Sviss, Ítalíu, Belgíu og fleiri landa. r ■ l'- -sr ■ ★ Danskar vélar. Danmörk hefir um langt skeið selt alls konar vélar til mjólkxxrbúa vitt um heim, og hlotið frægð fyrir gæði þeirra. Útflutningur annarra véla, sem notaðar eru í þágu landbúnaðarins og búvöruframleislunnar, er einnig talsverður. Þannig eru nú seldar danskar kvarnir í Brasilíu, þrcskivé’ar og kvarnir í Argen- tínu, og frá Indlandi eru komnar beiðnir xxm langt um fleiri þreskivélar en Danir hafa tök á að fram- leiða. ★ Búfjársjúkdómar. í Skaraborgar leni í Svíþjóð eru hafnar kerfis- bundnar rannsóknir viðvíkjandi arfgengnum hrossasjúkdómum. •— Rannsóknir þessar varða hófkvilla, húðveiki af ýmsu tagi, beinasjúkdóma hreyfingargalla, lungnaveiki og kvilla í getnaðar- færum, sem valda ófrjósemi. ★

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.