Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Page 42
42 LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ2005L
Helgarblað DV
%
íslensku leiklistarverðlaunin, Gríman,
voru afhent á fimmtudag við hátíðlega
athöfn í Þjóðleikhúsinu. Um eins konar
árshátíð leikarastéttarinnar er að ræða
þar sem þeir sem stóðu upp úr á síðasta
ári voru verðlaunaðir. Verðlaunin dreif-
uðst nokkuð jafnt að þessu sinni en leik-
ritið Draumleikur hlaut þó verðlaun
fyrir sýningu ársins auk þess sem Bene-
dikt Erlingsson var valinn leikstjóri árs-
ins fyrir sama verk.
Jóhann Sigurðsson
Leikarinn góðkunni varígóðum
félagsskap á Grímunni.
Ester og Pétur Ben
Sungu lag fyrir viðstadda
áöur en þau opnuðu
umslagið og veittu verðlaun.
\ *| Þjóðleikhússtjórinn Tinna
l J Gunnlaugsdóttir sagöi það við hæfi að
IL B halda Grlmuna iÞjóðleikhúsinu, þar sem
atvinnuieikhús á Islandi hófgöngu sína.
Valgeir Slcagfjörð, Kristbjör
Kjeld og dóttir hennar. Sken
sér konunglega á Grímunni innt
um kollega sína og vini.
Sungiðog leikið
Flutt voru atriði úr
völdum sýningum
vetrarins.
Hverjirfengu
Grímuna 2005?
Útvarpsverk ársins- Englabörn eftir
Hávar Sigurjónsson.
Lýsing ársins - Björn.Bergsteinn
Guðmundsson fyrir Úlfhamssögu.
* Dansverðlaun ársins - Erna Ómars-
dóttir.
Búningar ársins- Filippía Elísdóttir
fyrir Sweeney Todd.
Leikmynd ársins- Grétar Reynisson
fyrir Draumleik.
Danssýning ársins - Screensaver.
Bestl leikari í aukahlutverki -
Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Kodda-
manninn.
Besta leikkona í aukahlutverki -
Guðrún S. Gísladóttir fyrir Mýrarljós.
Barnaleikrit ársins - Klaufar og
konungsdætur.
Tónllst ársins - Eivör Pálsdóttir -
Úlfhamssaga.
Leikskáld ársins - Kristín Ómarsdótt-
ir fyrir Segðu mér allt.
Heiðursverðlaun Grímunnar-
Jón Sigurbjörnsson.
Leikari ársins í aðalhlutverki - Ólafur
Egill Egilsson fyrir Ólíver!
Leikkona ársins í aðalhlutverki -
Hanna María Karlsdóttir fyrir Héra
Hérason.
Leikstjóri ársins- Benedikt
Erlingsson fyrir Draumleik.
. Ahorfendaverðlaun ársins - Ólíver!
Sýning ársins- Draumleikur.
Gríman, verðlaunahátíð íslensku leikhúsakademíunnar, voru
afhent við hátíðlega athöfa á fimmtudagskvöldið. Athöfain fór
fram í Þjóðleikhúsinu að viðstöddu fjölmenni og voru þau
Hjálmar Hjálmarsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir kynnar kvölds-
ins. Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti Jóni Sigur-
björnssyni, leikara og leikstjóra, heiðursverðlaun Grímunnar. Skii-
aði forsetinn af þessu tilefai djúpum og einlægum þökkum frá
landsmönnum öllum og hafði á orði að fáir listamenn hafi komið
eins víða við á ferli sínum og Jón.
Jón sem hefar bæði starfað við óperur, kvikmyndir og leikhús á
sínum ferli þakkaði þann mikla heiður sem honum var sýndur
með þessum verðlaunum og var tíðrætt um varðveislu íslensku
tungunnar og náttúru. Að því loknu sló hann á létta strengi. Alls
voru 17 verðlaun veitt þetta kvöldið. Sýning ársins var Draumleik-
ur en Benedikt Erlingsson var einnig valinn leikstjóri ársins fyrir
sömu sýningu. Leikarar ársins í aðalhlutverkum voru svo valin þau
Ólafur Egill Egilsson fyrir Ólíver og Hanna María Karlsdóttir fyrir
Héra Hérason._______________________________________________
I Benedikt Erlingsson Var I
kampakátur með verðlaunin og
sagðist ætla að geyma þau úti I
glugga þarsem allir gætu séð.
Ur syningum
vetrarlns Flutt voru bro
úr mörgum af
eftirminnilegum
sýningum slðasta leikárs