Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.1949, Qupperneq 17

Freyr - 01.05.1949, Qupperneq 17
F R E Y R 161 Jrigi — hinum undursamlega leik lífsins, með uppvexti, lífi og dauða. Háttstilling náttúrunnar missir oft áheyrnar við hljóm silfursins. En köllun bóndans, sem engu síður en köllun læknisins er mikilvægust köllun mannlífsins — ætti að vera sam- fara glöð, einlæg þakklátssemi gagnvart örvandi gróðrarregninu, undrum og stór- merkjum vorgróðans“. Á þá leiðina, sem þetta sænska sveitaskáld tjáir, mættum við ísl. bændur gjarna hugsa. Það getur svo sem hugsast, að einhverj- um, sem línur þessar lesa, finnist ég vera hótfyndinn — að ég telji mig sjálfan hafa verið óskeikulan í mínu búmanns- og ræktunarstarfi. En þannig er því ekki háttað með mig, því lengi fram eftir bú- skaparæfi minni hljóp ég á hundavöðum íákænsku og fljótfærni í ræktun og ýms- iim búháttum. En hitt hefi ég alltaf reynt, að læra af árekstrum og afglöpum mín- nm og annarra. Það er nú hæpið, að gerðar verði háar kröfur til stórra búskaparlegra átaka af mér eða öðrum þeim gamalbændum, sem c’veljum nú á vonarvöl hins sjöunda ára- tugar. En hitt gæti hugsast, að við hinir eldri gætum bent þeim yngri og litið reyndu bændum á sitthvað það, er við íeljum búskaparlegar staðreyndir. Ég drep hér aðeins á ræktunina — tún- ræktina, því það, hversu vel og skilnings- glöggt bóndinn snýst við jarðræktinni, tel ég undirstöðu búskaparlegrar gæfu hans og meira þó — því bóndinn, sem rétt hugs- andi ræktar mold jarðar sinnar, bætir og fegrar sitt umhverfi, hann er líka sinn eigin og annarra mannbótamaður. Það er vissulega rétt. sem eitt vitrasta skáld okk- ar nútfma íslendinga segir: „Uppskeran bætir þinn ytri hag, umhyggjan mildar þitt hjarcalag“. Hin sanna ræktunarhyggja á að gera okkur meiri og betri menn, þroskaða og andlega hamingjusama. Eins og ég hefi áður á minnzt hér að framan, er ég búinn að fást við búskap í 40 ár og betur þó. Landbúskapurinn hefir verið lífsstarf mitt, ég byrjaði andlega og efnalega lítils megnugur og það sem verra var — mig skorti trúna á sjálfs míns getu, til hins vandasama búmannsstarfs. „Tíu krcnur og trúin á landið, er allt sem ég á“, segir Guðm. Ingi einhversstaðar, er hann gengur út á vormorgni og sáir í svarta moldina. Mig vantaði, til að byrja með, trúna á sjálfan mig, trúna á landið, sem Guðm. Ingi átti. Hann átti þessa auðlegð i upphafi, er mig skorti. En þetta breytt- ist — trúin kom og þrek mitt óx — en erfiðleikarnir voru margir og stórir fram- an af. Ég lýsi þeim ekki nú og líkl. tryðu sumir ekki þeirri sögu. En hitt vil ég segja ykkur, ungu bændur, að stæði ég nú á þrítugu og ætti margra kosta val til lífs- starfsins — ætti völ á metorðalíkl. hags- munagjöfulum hægðarstörfum, mundi ég ekki hika augnablik við að ganga fram hjá þeim öllum og ganga aftur út í hið erf- :ða en þó eftirsóknarverða búmannsstarf. Og að síðustu örfáar setningar sagðar af bóndahug gamals uppgjafabónda, til ykkar, ungu búmanna og búmannsefna þessa blessaða lands: Þið verðið að líta með virðingu á starf ykkar — þið verðið að treysta vilja ykkar og atorku. Þið verð ið að trúa á moldina, sýna henni fullan skilning og trúnað. Og síðast en ekki sízt: Þið verðið að trúa því og treysta, að þeg- ar þið af ítrustu getu og vilja gjörið vel, þá sé guð með ykkur í bústarfinu. Þá get- ið þið verið vissir um hamingju í starfi, fyrir ykkur og framtíðina.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.