Freyr

Volume

Freyr - 01.05.1949, Page 24

Freyr - 01.05.1949, Page 24
168 FRE YR „Bændadagur" Grímur Gíslason skrifar í Frey 1,—2. tbl. 1949, rökfasta og skemmtilega grein undir fyrirsögninni: „Bændadagur.“ Auk þess sem G. G. skrifar hugljúfar hugleiðingar um gildi bóndans og bóndakonunnar og ann- ara er að landbúnaði vinna og um tilgang og þýðingu sérstaks hátíðardags fyrir það fólk, er aðalefni greinar hans um það, hvaða dagur skuli valinn til að verða þess hátíðisdagur. Ég mun einnig leggja orð í belg um sama efni. G. G. bendir á að tveir kunnir bænd- ur, þeir Jón á Reynistað og Jón á Laxamýri hafi stungið upp á slíkum degi, annar nefn- ir sumardaginn fyrsta, en hinn sláttulokin. Hvorugur sá dagur líkar mér vel og læt ég nægja þau rök er G. G. færir fyrir því. Þá stingur G. G. upp á aö slík hátíð sé haldin síðasta sumardag, eða um vetur- nætur. Ekki lýst mér bezt á þann tíma fyrir almennann hátíðisdag fyrir bændur og búa- lið, og skal ég þar nefna til foráttu langa og dimma nótt, og vondra veðra von á þeim tíma um nokkuð stóran hluta landsins. Þá vil ég minnast hér á einn dag, sem mér finnst svo sjálfsagður, sem „bænda- dagur,“ að mér finnst þar enginn komast til jafns við og það er 24. júní, Jónsmessu- dagur. Tel ég þeim degi til gildis umfram aðra daga tvo höfuðkosti, og þeir eru: Sú helgi sem ríkt hefir yfir þeim degi frá ómunatíð, um öll norðurlönd og þá einkan- lega hjá því fólki er í sveitunum býr og landbúnað stundar. Ég mun ekki að svo stöddu ræða þetta atriöi nánar, ég ætla þeim það, sem fróðari eru um hin sögu- legu atriði þessa máls en ég er. Hitt atriðið, sem ég tel Jónsmessudegin- um til gildis, sem hátíðisdagur bænda, er hinn langi sólargangur. — Nóttlaus vor- aldarveröld þar sem víðsýnið skín — og að allt umhverfis okkur þá, sem í sveitunum búa, er að ná fyllstum blóma, og þó ekki fyllilega; enda er rósin fegurst þegar hún er að springa út, hún verður aldrei fegri fullsprottin. Allt iðar af lífi, fjöri og frjó- semi umhverfis. Á þeim tíma eru líka nokk- ur þáttaskipti í starfsemi okkar bænda, þá eru vorveris öll afstaðin, þá eru ærnar bornar og b';öa rúnings, þá er sláttur ekki byrjaður nema á einstöku stað á nýlegum sáðsléttubleftum og öðrum túnblettum, sem eru í framúrskarandi góðri rækt, og þá er sláttuvélin látin taka þá bletti á þurrk- dögum þeg ir veðurspá er góð, ef ekki er til staðar súr! íeysverkun í góðu formi, svo að eigi safnist hey fyrir. Ýmsir finna kannske Jónsmessudeginum það til foráttu, að þá eru margir hátíðis- dagar í námunda, s. s. 17. og 19. júní, við eigum að njóta sveitasælunnar þessa daga, án strits. Við eigum að halda alla þessa daga hátíðlega; en 24. júní á umfram allt að vera hátíðisdagur okkar, sem i sveitunum búum, einmitt af þeim ástæð- um, sem ég hefi hér að framan talið. Það eru okkar björtustu og beztu dagar og þá eru nokkur þáttaskipti í starfsemi okkar bænda. Ef okkur finnst ofrausn í því að veita okkur og því fólki, sem með okkur vinnur að landbúnaðar'störfum, svona marga frídaga með skömmu millibili, þá skulum við hugsa til þess, hvað þetta fólk vinnur marga sunnu- og hátíðisdaga árið um í kring, án þess að fá helgidagakaup fyrir, og oft án kaups. Já, það er einmitt þessi veglegi dagur, sem við eigum að veita þá vegsemd, að verða okkar hátíðisdagur; á þeim degi getum við vænzt þess, að sizt hamli veður okkar hátíðahöldum, og ein-

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.