Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.1949, Qupperneq 28

Freyr - 01.05.1949, Qupperneq 28
172 Kartöfluupptökuvélar .... 23 195 218 Kornuppskeruvélar 6 1 7 Kornkvarnir 1 1 Kornhreinsunarvélar .... 3 3 Þreskivélar 17 4 21 Mjaltavélar ? ? 660 Mjólkurkælar 57 57 Skilvindur 3927 155 4082 Strokkar 220 220 Dieselmótorar f. súgþurrku 100 100 Heyblásarar 216 216 Saxblásarar 7 7 Útungunarvélar 26 26 Brýnslutæki f. sláttv.ljái .. 725 Þess ber að geta í sambandi við ofan- greindar tölur, að nokkrar þeirra eru nokk- uð óvissar. Má í því sambandi nefna bil- ana. Þeir ganga kaupum og sölum og þeir ganga úr leik. Að því er snertir skilvindur og strokka, og nokkrar aðrar vélar, er óvíst hvort þær tölur standast próf. Um mjaltavélar er að segja, að auðvitað voru þær til árið 1945 og hafa ekki allar 660 vélar verið fluttar inn til landsins á umræddum þremur árum, en ekki hefir tekizt að ná í tölurnar sundurliðaðar. Ým- islegt fleira mætti um vélaeignina segja, en hér ta!a tölurnar og getur því hver sem vill skapað sér skoðanir um hagnýtingu þeirra og hagkvæm not í framtíðinni. Og enn bætist við. Innflutningur véla mun ekki verða minni á þessu ári en að undanförnu og koma nú ýmsar stórar vélar, sem rækt- unarsamböndin hefir mjög vanhagað um. FÓÐURKÁL Frey hafa borizt margar fyrirspurnir varðandi fóðurkál, ræktun þess og hag- nýtingu. Ef svara skyldi til hlýtar þyrfti að verja til þess nokkru rúmi, en hér skal aðeins í fáum orðum drepið á viss atriði, sem vert er að minnast þegar menn hefja ræktun þessarar nytjajurtar, sem nú vinn- ur sér hylli í grannlöndum okkar í mikl- um mæli, mest á kostnað rófna, til fóðurs handa kúm. Um áratugi hafa rófurnar verið aðal- fóður kúnna í sunnanverðri Skandínavíu og allt norður á sama breiddarstig og ís- land liggur á, en þar eð rófnarækt er langtum vinnufrekari en fóðurkálsræktun- hefir mikið kapp verið lagt á það hin allra síðustu ár að kynbæta fóðurkálið og rækta það til fóðurs. Þykir það ekki nema meðal uppskera þótt af hektara fáist 6—7 þús- und fóðureiningar eða sem svarar 3—4 kýrfóður, miðað við vetrarforða íslenzkra kúa. Til þess að þetta geti orðið þarf auð- vitað að bera á samkvæmt kröfum jurtar- innar, en um áburðarmagnið getur í Frey nr. 21—22, 1948. Rétt er talið að sá 0,8—1,0 kg. af fræi á hverja 1000 fermetra lands því að þegar plönturnar eru þéttar í röð- unum verði stönglarnir ekki eins grófir og annars. Norðmenn ráðleggja helzt að láta vaxa þétt og sé vafasamt hvort ástæða sé til að þynjia í röðunum, en bilið milli raða skal vera 50—60 cm. Fræið er hægt að fá frá Sambandi ísl. samvinnufélaga í gegn um kaupfélögin eða búnaðarfélögin. Því er bezt að sá um eða eftir miðjan maí en má líka sá því í júní, helzt í myldinn jarðveg og rakan. Því

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.