Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.1949, Qupperneq 35

Freyr - 01.05.1949, Qupperneq 35
FREYR 179 H úsmæðraþáltur UPPÞVOTTUR ÁN ÞURRKU Diskastóll í notkun. Eftir hverj a máltíð — eða að minnsta kosti einu sinni á dag — þarf að þvo upp, það er að segja að gera hrein matarílátin sem notuð eru við matreiðslu og borðhald, ásamt tilheyr- andi útbúnaði. Þetta er hlutverk húsmóðurinnar eins og svo margt annað — já eins og flest annað innan- húss, nema ef svo vel vill til að hún á hálf- vaxna dóttur, sem fús er til þess að rétta hjálparhönd til þess starfs. Það getur verið að húsbóndinn rétti hjálp- arhönd við sérstök tækifæri eða að börnin aðstoði við þetta starf, en oftast mun það hús- móðurinnar. Þetta starf tekur sinn tíma eins og svo mörg önnur og um það er að öðru leytl að segja, að það er eins þýðingarmikið og mörg önnur. Við það er tengd heilbrigðis- og Sp. 21. Mundi vera 'oetra að hafa einn stóran stromp á fjárhúsi en marga minni og hve stór- an stromp þyrfti þá á 100 kinda fjárhús? Jón. Svar: Sé ekki farið að dæmi skólastjórans á Hólum, sem að ofan getur, má ætla að einn strompur stór sé betri en margir litlir. Loft- ræstingin er öruggari og betri með því fyrir- komulagi, en góð loftræsting í fjárhúsi er nauð- synleg. Um hæfilega strompvídd fyrir ákveðinn hóp sauðfjár þekkjum vér engin fyrirmæli. Á Hólum í Hjaltadal er þakhryggur á fjár- húsi opinn, 8 þuml. rifa á 100 kinda húsi. hreinlætisráðstöfum fyrir heimilið, sem ekki má vanrækja og þess vegna þarf þetta verk að vera vel af hendi leyst, einnig af því, að hér er um að ræða meðferð verðmæta, sem auð- veldlega fara forgörðum ef ekki er aðgæzla og vandvirkni með í starfi. Það eru til uppþvottavélar, en þær verða auðvitað aldrei hvers manns eign og fyrir hin minni heimili verður annarra úrræða að leita til þess að uppþvotturinn verði ekki eins tíma- frekur, og til þess að meira hreinlæti sé við hann haft en oft vill verða við venjuleg skil- yrði. Á ýmis ráð hefir verið bent og margt reynt, er gæti gert þetta starf auðvelt, fljótlegt og hreinlátt. Mikilsverð hjálp í þessu tilliti er diskastóllinn. Diskastólinn má gera úr tré, laghentur mað- ur getur gert hann og allir trésmiðir. Myndin gefur nokkra hugmynd um gerð hans. Á milli þess sem hann er notaður, má leggja hann saman og geyma í skáp, því að þá fer lítið fyrri honum. Myndin sýnir diskastól þar sem diskarnir eru í röð á efri hæð en bollar á neðra þrepi. Þegar þvegið er upp ber að láta lítilsháttar sápu eða sóda í uppþvottavatnið svo fita og öll óhreinindi losni vel af diskum og hnífum. í litlum bala, eða skál, við iilið uppþvottaskál- ar, ber að hafa brennbrennheitt vatn. Hverj- um þvegnum hlut er stungið niour í það sem snöggvast til þess að skola sápuvatnið af og til þess að hluturinn hitni hæfilega svo að vatn-

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.