Freyr - 01.05.1949, Page 38
182
FRE YR
Sigríður Ólafsdóttir
Stökkum í Rauðasandshreppi skrifar: Síð-
astliðið vor bar hér ær með 8 daga millibili.
Hún var hér í eldi, en ærin strauk þangað,
sem hún átti áður heima, þar bar hún fyrra
lambinu en hrafninn hjó það svo að það gat
ekki lifað. Sótti ég ána, vandi lamb undir hana
en það þoldi ekki mjólkina og dó eftir fjóra
sólarhringa. Á áttunda degi eftir fyrsta burð
eignaðist hún lamb aftur, svipað á stærð og
hið fyrra. Þetta lamb lifði og var vænn dilkur
í haust.
V erkamannalaun
við bústörf í Englandi voru 90 shilling á viku
(48 vinnustundir) frá því í júlí 1948, en talið
er að þau muni hækka upp í 94 shillinga á
næstunni. Til þess að þetta geti orðið þarf að
senda út opinbera tilkynningu og innkalla mót-
mótmæli gegn hækkun, en samningar, til þess
að mótmæli gegn hækkun komi fram, ef nokk-
ur eru. Samfara kauphækkuninni er gert ráð
fyrir að bændur krefjist hækkaðs afurðaverðs,
sem svarar áhrifum kauphækkunar á fram-
leiðsluverðið.
Dansk Husdyravl
segir frá geit, í Flemalle-Grand í Belgíu, sem
telja má ágætis mjólkurgeit. Fyrsta mjalta-
skeiðið var nythæð hennar að meðaltali 3 kg
á dag en hin síðari ár hefir hún verið 6—7 kg
á dag. Geitin er 11 ára og talin afbragð ann-
arra skepna svo að í frásögur er fært. Blaðið
varpar fram spurningunni um hvort ekki muni
að því stefnt að gera kýrnar of stórar og liggi
þá næst að athuga hvort geitahaldið muni hag-
kvæmara en nautgriparækt.
FRE YR
— búnaðarblað — gefið út af Búnaðarfélagi íslands
og Stéttarsarabandi bænda.
Ritstjóm, afgreiðsla og innheimta:
Lækjargötu 14 B, Reykjavík. Pósthólf 1023.
Sími 3110.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Kristjánsson.
Utgáfunefnd: Einar Olafsson, Pálmi Einarsson,
Steingrímur Steinþórsson.
Verð kr. 25.00 á ári. Gjaiddagi fyrir 1. júlí
Prentsmiðjan Edda h.f.
í Skriðufelli, en hún hlaut I. verðl. á héraðs-
sýningunni að Þjórsártúni sumarið 1948. Perla
er jarpskjótt — 151 cm á hæð.
Eigandi: Jóhann Ólafsson, Skriðufelli, Ár-
nessýslu.
Býflugnarœkt
er ekki óveruleg búgrein í ýmsum löndum.
f Noregi er talið að séu um 50 þús. býkúpur, í
Svíþjóð um 300 þúsund, í Danmörku og Sviss
svipað. Býflugnarækt er ómissandi í sambandi
við frærækt af belgjurtum og fleiri plöntum.
f Danmörku fékk býflugnaræktin um 3 mill-
jónir kg af sykri, en sykur er fóður býflugn-
anna — á síðasta ári, en býflugurnar skiluðu
um 5 milljónum kg af hunangi. Stærsti vinn-
ingurinn við býflugnaræktina er þó fenginn í
árangri fræræktarinnar.
Nú er búið aö flytja býflugur til Græn-
lands og á að reyna ræktun þeirra þar. Hér
á landi vitum vér ekki til þess að býflugna-
rækt hafi verið reynd nema lítilsháttar á Ak-
ureyri, (Jónas Þór, verksmiðjustj.) en ætla
mætti að hún gæti þrifist hér, einkum þar sem
iyngheiðar eru, en lynghunang þykir framúr-
skarandi vara.
Forsíðumyndin
á síðasta blaði Freys (nr. 7—8) er af Perlu
En það er með býflugnarækt eins og annað,
að hún gengur ekki vel nema beitt sé kunn-
áttu við allt, er hana varðar.