Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1949, Síða 12

Freyr - 01.07.1949, Síða 12
218 PRE YR Hvanneyri 19^8. Ljósm,.: O Þórðarson. að gerast leiðbeinendur á sviði landbúnað- arins á komandi tímum. Sem greint er hófst kennsla í framhalds- deild haustið 1947. Skilyrði til eiginlegs há- skólanáms í búfræðum voru þar eiginlega engin. Bókakost vantaði. Vinnustofur og rannsóknaráhöld skorti. Kennarar bænda- skólans voru þar og einum var bætt við í tilefni þessa framhaldsnáms. Viljann og viðleitnina vantaði ekki, nemendur komu þangað, 8 að tölu, og svo var starfið hafið. Að litlu var hægt úr að bæta á því sviði, er snerti bókakost og kennsluáhöld, en kennslukraftar voru fengnir í hinum ýmsu sérgreinum, frá Atvinnudeild Háskólans, Búnaðarfélagi íslands og víðar að. Kennsl- an var framkvæmd sem eins konar þegn- skaparvinna, án endurgjalds, en nemend- urnir 8 færðu sér hana í nyt og lögðu allt kapp á að tileinka sér fræðigreinarnar og fundu auövitað engan mun á hvort þar var unnið án endurgjalds eða ekki, því allir munu hafa lagt hug sinn allan í starfið. Tvo vetur og eitt sumar hefir námið varað. Að sumrinu gafst nemendum kostur á að kynna sér starfsemi á tilraunastöðv- um, og sæðingarstöð hér á landi, og þriggja vikna för til útlanda opnaði þeim útsýni til búskaparlegra þátta, sem spunnir eru við aðrar kringumstæður en ráðandi eru hér á landi. Fóru þeir um Norðurlönd undir leiðsögn skólastjórans. Og svo — þann 26. maí — fengu 8 ungir sveitapiltar viðurkenningu fyrir því að

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.