Freyr - 01.07.1949, Side 23
FREYR
229
takanlega stundum, snerta þessa lind, er
streymir frá fóstru mannkynsins úti í
sveitinni til barnanna í höfuðborginni alla
daga ársins, þegar veður eða færi ekki
hamla.
★
Þann 18. maí var fjölmenni boðið til
þess að skoða Mjólkurstöðina nýju, sem
tók til starfa daginn eftir, þann 19. maí.
Voru þar ræður fluttar og gestum gefinn
kostur á að heyra hvað þessi miklu húsa-
kynni, ásamt öllum útbúnaði, höfðu kost-
að af erfiði og fjármunum, hvernig ýmsir
annmarkar og torfærur urðu á veginum
er ná skyldi að settu marki og hvernig
hinir ýmsu áfangar voru yfirstignir.
í eftirfarandi atriðum er þeim gefið orðið,
sem fremstir hafa staðið í fylkingu við
framkvæmdir þessar og framvegis eiga að
hafa forystu í starfseminni. Birtist því hér
útdráttur úr ræðu forstjóra Mjólkursam-
sölunnar, er hann hélt við opnun stöðvar-
innar. Þá er ræða sú, sem formaður Mjólk-
ursamsölunnar hélt og loks er lýsing á
tækniútbúnaði stöðvarinnar eftir hinn
tæknilega ráðunaut hennar.
Útdráttur úr ræðu
Árna Benediktssonar, forstjóra.
Ég býð ykkur, gestir, velkomna hingað til
þess að skoða í dag Mjólkurstöðina, sem
nú er fullbúin til starfrækslu og byrjað
verður að vinna í á morgun til útsendingar
á föstudag.
Æskilegt hefði verið að geta sýnt ykkur
stöðina á þeim tíma, sem vinnsla fer fram,
en það var ekki talið framkvæmanlegt.
Arni
Benediktsson
forstjóri
Því skal nú skýra frá nokkrum atriðum
varðandi byggingu hennar og fyrirkomulag.
Mjólkurstöðvarhúsið, eða aðalbyggingin,
er að flatarmáli 1130 m'2 en að rúmmáli
13.000 m3. í kjallara eru mjólkurvinnslu-
vélar, skyrgerð, tveir kæliklefar fyrir smjör,
skyr og geymslur. Á fyrstu hæð eru aðal-
vinnusalirnir, þar er mjólkurinnvigtun, á-
fyllingar og flöskuþvottavélar, kæligeymsla
fyrir mjólk á flöskum og brúsum og skrif-
stofa Mjólkurstöðvarinnar. Á annarri hæð
er rjómavinnsla og smjörpökkun. Þar verð-
ur líka mjólkur-niðursuða. Vélar, henni
tilheyrandi, eru að mestu settar upp en þó
ekki svo, að hæga verði að sýna þær nú.
Þar er kaffistofa fyrir starfsfólkið og her-
bergi bílstjóra, skrifstofur Mjólkursam-
samsölunnar og fundarsalur stjórnar og
fulltrúaráðs.
Á efstu hæðinni er ekki annað en sam-
komusalur.
Byggingarkostnaður á húsinu ásamt at-
hafnasvæði, porti vestan aðalbyggingar og
skúrum sunnan við það, þar sem komið er
fyrri hitunartækjum og kötlum, hefir orð-