Freyr - 01.07.1949, Side 24
230
FHSYE
ið um 8 milljónir króna, en vélar og hit-
unartæki koma til viðbótar og nemur verð
þeirra 2 milljónum kr.
Vestar á lóðinni er hús, sem í er mjólkur-
buð, nokkrar íbúðir, ásamt brauðgerð og
bilskúrum, kostar um 2 y2 milljón krónur.
Stærð þessara bygginga er, að meðtöldum
skúrum og ketilhúsi, að gólf-flatarmáli
1.332 m- en aö rúmmáli 9.300 m3. Allar
framkvæmdir, sem Mjólkursamsalan hefir
látið gera á lóðinni, hafa því kostað um
12i/2 milljón krónur.
Margir aðilar hafa lagt ráð á og staðið
að framkvæmdum. Teikningarnar gerði
Þórir Baldvinsson, arkitekt, en allt fyrir-
komulag hefir verið samkvæmt ráðlegging-
um og tillögum erlendra firma, með sér-
þekkingu í þessum efnum, bæði í Ameríku
og á Norðurlöndum.
Almenna byggingarfélagið tók að sér að
reisa allar byggingar og hefir framkvæmda-
stjóri þess, Gústav Pálsson, haft yfirum-
sjón með verkinu, en ýmsir ágætir meist-
arar í hinum ýmsu greinum byggingariðn-
aðarins hafa annast einstaka þætti, hver á
sínu sviði.
Danskt firma, Paach & Larsen, Peter-
sen, Horsens, annaðist smíði og útvegun á
öllum vélum og tækjum viðvíkjandi mjólk-
urvinnslunni, að undanskildum hitunar-
tækjunum. Hefir nefnt firma séð um upp-
setningu þeirra.
Hitunartækin voru keypt hjá Bastian &
Allon í London, með milligöngu Axels
Kristjánssonar, forstjóra Rafha í Hafnar-
firði. Hefir vélsmiðjan Héðinn annast upp-
setningu þeirra. Lyftur og loftræstingar-
tæki hefir vélsmiðjan Hamar útvegað og
látið setja upp.
Afköst stöðvarinnar, til gerilsneyðingar,
eru 8.000 lítrar á klukkustund en til áfyll-
ingar á flöskur 10—12 þúsund lítrar á
klukkustund.
í mjólkurgeymslunum er rúm fyrir 30
þúsund litra mjólkur, en til viöbótar þessu
magni er hægt að geyma í kæliklefunum
allt að 40 þúsund lítra, áfyllt í flöskum.
Mjólkurstöðin nýja
Ræða sr. Sveinbjörns Högnasonar for-
manns stjórnar Mjólkursamsölunnar.
Það er stjórn Mj ólkursamsölunnar mik-
ið gleðiefni að geta sýnt ykkur, gestum
okkar hér í dag, Mj ólkurstöðina fullbúna
til starfrækslu. Og er það ætlunin, að hún
verði þegar tekin í notkun næsta dag.
Framkvæmd þessi er, frá því fyrsta, bú-
in að kosta mörg orð, mikinn tíma, marga
fyrirhöfn og mikla peninga einnig, eins og
þið þegar hafið heyrt frá forstjóra Sam-
sölunnar áður.
Sumir voru jafnvel, í gamni að vísu,
farnir að telja hana til eilífðarmála, — og
víst hefðum við, allra manna frekast, —
óskað að geta fengið hana fyrr, — og miklu
fyrr, — til notkunar. En þó hefir okkur
verið ljóst, að mestu máli skipti, að hún
yrði sem fullkomnust og vönduðust, sem
tök væru á, þegar hún yrði fullbúin. Á það
hefir líka mesta herzlan verið á lögð alla
tíð, að svo mætti verða, og að hún svaraði
sem bezt kröfum tímans, sem til hennar
eru og verða gerðar. Og við vonum þá
einnig, þegar hún er nú komin og fullger,
eins og bezt hefir verið hægt að gera hana
úr garði af sérþekkingu og tækni nútím-