Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1949, Blaðsíða 27

Freyr - 01.07.1949, Blaðsíða 27
FRBYR 233 ar lágu fyrir, og gerður samningur við Al- menna byggingarfélagið, 12. sept. 1942, um að reisa byggingarnar. Hóf það fram- kvæmdir haustið 1942 og voru byggingarn- ar að mestu tilbúnar, til að setja niður vél- ar í þær, fyrri hluta árs 1945. — En þegar til útvegunar vélanna kom varð allt örð- ugra og þyngra undir fótinn. Meðan styr- jöldin stóð var ekki í annað hús að venda, í þeim efnum, en aö leita til Ameríku, og var fulltrúi Mjólkursamsölunnar, Stefán Björnsson, mj ólkurfræðingur, sendur þang- að haustið 1941, til að velja og útsjá vél- ar þær, sem með þurfti. En þegar til kom reyndist ógerningur að fá útflutningsleyfi frá Bandaríkjunum, vegna þess einkum, að herstjórn þeirra hér á landi, lagðist á móti því að það yrði veitt, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, bæði uanríkisráðuneytisins og sendiherra íslands í Washington. Það var því ekki um annað að ræða en að bíða styrj aldarloka og þess, að samband næðist við Norðurlönd, enda kusum við, að ýmsu írekar að fá vélar þaðan, bæði vegna við- halds og varahluta, sem auðveldari myndi þaðan að fá en frá Bandaríkjunum. Teikn- ingar voru þó þegar sendar, á árinu 1944, til sendiráðsins í Stokkhólmi, og það beðið um að leita fyrir sér um tilboð í smíði vél- anna á Norðurlöndum. Strax er styrjöld- inni lauk fór svo Stefán Björnsson, mjólk- urfræðingur, til Danmerkur og Svíþjóðar og kom heim með tilboð í smíði vélanna frá ýmsum helztu verksmiðjum í þessari grein í Svíþjóð og Danmörku. Var þá Jónas Kristjánsson, mjólkurbússtjóri á Akureyri, íenginn til að athuga og velja um vélar þessar og tilboð ásamt Stefáni, og síðan samþykkt að taka tilboðum eftir vali þeirra og ábendingum. Tilboð þessi voru þó öll allmiklum takmörkunum bundin, vegna efnisleysis Dana á þessum tímum og einnig mikilli þörf sjálfra þeirra til endurnýjun- ar á slíkum vélum heima fyrir eftir her- námsárin öll hjá þeim. Afhendingarfrest- ur var langur og óákveðinn í sumum grein- um, og reyndist þó lengri en líklegt var talið í byrjun, og voru allmargar ferðir farnar frá Samsölunni til að reyna að herða á afgreiðslu, eins og frekast væri unnt. Og loks síðastliðið haust í des. voru allar helztu vélarnar hingað komnar. Hef- ir síðan látlaust verið unnið að uppsetn- ingu þeirra undir yfirumsjón Stefáns Björnssonar, en með vélamönnum og verk- fræðingum frá hinum erlendu firmum. Og nú í dag er svo komið, að allt má heita fullbúið þótt sumt megi enn betur í lag færa. Um stærð og afköst hinnar nýju stöðvar er það að segja, að hún ætti að geta af- kastað um 18—20 millj. lítra á ári. Ekkert hefir verið til sparað að hún gæti orðið sem vönduðust og fullkomnust, og þannig sniðinn stakkur, að hann ætti að geta ver- ið vel við vöxt til fyrstu framtíðar a. m. k. Þegar þessum áfanga er náð, að vísu ekki með 30 ára stríði, en þó æði margra ára baráttu, á erfiðum tímum, þá er okk- ur ánægja að hittast hér með sem flest- um, sem stutt hafa að framgangi þessarar miklu framkvæmdar, veitt fyrirgreiðslu, góðhug og skilning, þeim, sem starf henn- ar og hæfni snertir mest. Við tengjum miklar vonir við, að hún valdi stórfelldum breytingum til bóta og hægðarauka á sölu- og dreifingu-neyzlu- mjólkur í bænum og að hún verði traustur hornsteinn þess atvinnuvegar, sem hana hefir reist til að tryggja hann og bæta framleiðslu hans. Og nú þökkum við öllum, sem stutt hafa

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.