Freyr - 01.07.1949, Qupperneq 35
FREYR
241
Helgi Jónsson, Seglbúðum
MINNING
Þann 22. f. m. andaðist í Landsspítalan-
um Helgi Jónsson — Helgi í Segltaúðum.
Með því takmarkaða rúmi, sem Freyr hefir
ráð á til að minnast látinna merkismanna,
verður enginn kostur þess að gera fulla
grein fyrir ævi hans og störfum.
Helgi í Seglbúðum var af skaftfellskum
ættum kominn. Hann var fæddur í Segl-
taúðum 29. apríl 1894. Jón Þorkelsson, faðir
hans, var sonur Þorkels Jónssonar, er bjó
í Hrauni í Landbroti. Kona Þorkels var
Guðríður Magnúsd., Jónssonar á Kirkju-
bæjarklaustri, Magnússonar. Kona Jóns
Magnússonar var Guðríður Oddsdóttir frá
Seglbúðum. Frá Jóni Magnússyni er komin
mikil ætt, sem við hann er kennd. Móðir
Helga er Ólöf Jónsdóttir, Jónssonar frá
Heiðarseli. Jón í Heiðarseli, afi Ólafar, var
bróðir Eiríks í Hlíð. Móðir Ólafar í Segl-
búðum var Katrín Pálsdóttir frá Hunku-
bökkum. Foreldrar Ólafar enduðu búskap
í Seglbúðum og þar bjó hún alla sína bú-
skapartíð.
mýkt golunnar, þyt stormsins, húm kvölds-
ins, árroða morgunsins, leik barnsins,
guðaveig loftsins.
Hafið þið athugað það, að þetta allt og
mikið fleira, hefir íslenzka þjóðin átt í
sveitinni minni og þinni, og á enn lengi,
ef hún vill.
Hver vill skipta á þessu og straumlínu
steinsteypuhallarinnar ?
Hvort mun orka heilnæmar á tilfinninga-
líf vort og sál, glæsivöllur torgsins eða
sveitabólið?
Sagt hefir verið, að þegar hó smalanna
hætti að bergmála í hlíðum dalanna, hafi
hljóðnað strengur í íslenzkri þjóðarhörpu.
Eigum við ekki öll að vinna að því af
heilum hug, að strengjum þjóðarhörp-
unnar fækki ekki um of?
Jóhannes Davíðsson.
O
Ilelgi Jónsson bóndi
Seglbúðum.
Helgi Jónsson var elztur af sex systkin-
um, er upp komust, og aðeins tólf ára er
hann missti föður sinn. Jón Þorkelsson var
framkvæmdarmaður, en lítt efnum búinn.
Hann lagði sig mjög eftir veiðiskap og dró
oft björg í bú. Þennan mikilsverða bjarg-
ræðisþátt — veiðiskapinn — tók Helgi upp
strax við fráfall föður síns og lagði hann
aldrei niður að öllu leyti meðan heilsan
leyfði. Þá vandist hann lestaferðum Skaft-
fellinga frá barnæsku og varð ágætur ferða-
maður, úrræðagóður og kjarkmikill. Þannig
fékk Helgi í Seglbúðum á margan hátt strax
í æsku að kynnast lífsbaráttunni. Hann var
tápmikill og bráðþroska, svo að eldri menn
höfðu hann með í ráðum þegar á unglings
aldri. Yngri menn litu upp til hans og hann
var foringi þeirra. Hann var einn af stofn-
endum Umf. Ármanns í Landbroti og fyrsti
form. þess félags. Ungur maður var hann
kjörinn í hreppsnefnd og til margra trún-
aðarstarfa heima í sveit sinni. Yfir minn-
ingu Helga í Seglbúðum, sem æskumanns,
er mikill glæsileiki, sem ytra útlit og and-
leg gerð áttu jafnan þátt í að skapa. Og
svo vel entist honum æskan, að ábyrgð hins
fullorðna manns, er á hann féll barn að
aldri og þrálát vanheilsa seinni ára, svipti
hann aldrei þeim fögnuði og vorhug, sem
hún varpar frá sér.
Helgi var búfræðingur frá Hvanneyri og
stundaði nám þar á árunum 1914—1916.
Árið 1918 kvæntist Helgi Jónsson ágætri