Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1950, Blaðsíða 7

Freyr - 01.03.1950, Blaðsíða 7
FRE YR 57 Votheyshlaðan í greinargerð þeirri, eftir Dr. Olaf S. Aa- modt, er birtist á öðrum stað í þessu hefti Freys ,er bent á ýmislegt það á vettvangi íslenzka landbúnaðarins, sem vinna ber að á næstunni. Munu flestir geta undirstrikað þau ummæli í aðaldráttum. Eitt þeirra atriða, sem þar er talið, stang- ast þó algjörlega við staðreyndir þær og niðurstöður tilrauna og athugana, sem gerðar hafa verið á Norðurlöndum um síð- ustu tvo áratugi, og einkum þó síðan 1940, en það er álit hans um votheysgeymsluna. Dr. Aamodt tekur réttilega fram, að vot- heysgeröin hefir ýmsa yfirburði fram yfir allar aðrar fóðurverkunaraðferðir, en segir í því sambandi um votheyshlöður: „Yfirleitt þarf að byggja meira af skurð- gryfjum, niðurgröfnum gryfjum og vot- heysturnum á íslenzkum sveitabýlum. Skurðgryfjur og niðurgrafnar gryfjur eru stórum ódýrari en votheysturnar. Stofn- kostnaður votheysturna, viðhald og rekstur, getur orðið ofviða fjárhagsgetu minni býla.“ Hér er bent á atriði, sem athuga ber, og það skal þá sagt strax ,að fyrir liggja svo margar staðreyndir, er segja hið gagn- stæða því, sem hér er haldið fram um stofnkostnað, viðhald og rekstur, að mót- mæla verður staðhæfingum þessum. Það er auðvitað og eðlilegt, að votheys- hlaðan sé að stærð við hæfi þess fóður- magns, sem á býlinu er framleitt og ætlað til verkunar sem vothey, en hún skal byggð fyrir býli framtíðarinnar og ekki liðna tímans. Þetta þýðir, að smábýlið — einyrkjabú- ið — ber að miða við áhöfn, 15—20 stór- gripi, eða sem því svarar af öðru búfé, og að um % af fóðurfengnum verði verkaðir sem vothey. Og þáð er líklegt, að ekki verði þess iangt að bíða, að þetta takist. Ef skurðgröfurnar, jarðýturnar og aðrar vélar, sem landbúnaðurinn hefir fengið til afnota, fá þessu ekki orkað á tiltölulega fáum árum, þá er eitthvað í ólagi við rekst- ur þeirra og skipulagningu framkvæmda. En þegar verka skal að minnsta kosti 12 kýrfóður votheys á hverri jörð, þá ber vissulega að gera sér grein fyrir hvert fyr- irkomulag skal hafa um fóðurverkun og þá um leið hvernig votheyshlaðan skal vera. Hann sneri sér til mjólkurbússtjórans, rannsakaði málið, og fékk þá frétt, að þessa daga var með öllu ómögulegt að sýra rjóm- ann hvernig sem að var farið. Og ekki nóg með það. Undanrenna og áfir voru eitthvað svo einkennilegar líka, en skýring á fyrir- brigðinu var engin fundin. Kom þá dýralækninum til hugar, að hér gæti verið um að ræða íblöndun mjólkur frá penicillinkúm. Hann rannsakaði málið strax og fann sökudólginn. Á bæ einum höfðu 17 kýr fengið penicillinlækningu og mjólkin úr þeim var send til búsins tveim dögum eftir sprautun. Þetta má ekki eiga sér stað. Penicillinið eyðileggur alla þá gerla í mjólkinni, sem mjólkuriðnaðurinn hefir til aðstoðar við framleiðslu osta og smjörs. Það eyðileggur ekki aðeins streptococca þá, er júgurbólg- unni'valda heldur og alla aðra gerla. Og sér- staklega eru vandkvæði á ferðum ef gera skal ost úr mjólkinni. Ostur, gerður úr penicillinmjólk, verður allra líkastur sóla- leðri. Þess vegna: Mjólkina úr „penicillinkúm“ má ekki senda á mjólkurbú fyrri en 4 dög- um eftir síðustu lækningu.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.