Freyr - 01.03.1950, Side 18
68
FRE YR
tilraunastöðinni (Sámsstöðum) mátti sjá
yfirburði vissra ræktunaraðferða og fóður-
jurta, en þó höfðu bændurnir í nágranna-
sveitunum ekki heimsótt stöðina til þess að
sjá með eigin augum gildi hinna bættu
ræktunaraðferða.
„Akurdagar" (sýningardagar) á til-
raunastöðvum og sýningarreitir á bænda-
býlum eru í öðrum löndum stór þáttur í því
að koma nýjungum í framkvæmd. Viðlíka
aðferðir ættu einnig að hafa þýðingu á ís-
landi.
11. Enn er þörf mjög' mikilla upplýsinga til
þess að hægt sé að framkvæma áætlanir
um miklar framfarir á sviði íslenzks land-
búnaðar með skynsamlegu öryggi.
Þær upplýsingar, sem fyrir hendi eru og
þær tilraunir, sem gerðar hafa verið á ís-
landi, ættu þó að skapa nægilega traustan
grundvöll til þess að hefjast megi þegar
handa um framkvæmdir á ýmsum sviðum
áætlunarinnar (4 ára áætlun ríkisstjórn-
arinnar, gerð í sambandi við Marshallað-
stoðina). Á sumum sviðum eru rannsóknir
og tilraunastarfsemi, þar með taldar rækt-
unartilraunir, nauðsynlegar til þess að
hægt sé að gera ýtarlegri áætlanir.
★
Rannsóknarviðfangsefni þau, sem vinna
þyrfti að í þessu sambandi, eru sem hér
segir:
1. Kortlagning íslenzks jarðvegs með
dreifðum tilraunareitum, er gæfu hugmynd
um áburðarþörf jarðvegsins og hæfni
landsins til ræktunar.
2. Rík áherzla sé lögð á rannsókn hús-
dýrasjúkdóma og séu í því sambandi rann-
sakaðir möguleikar fyrir innflutningi naut-
gripa til kjötframleiðslu.
3. Rannsökuð sé meðferð jarðVegsins
með tilliti til bættra eðliseiginleika hans
og heftingar jarðfoks.
4. Reyndar séu nýjar tegundir og afbrigði
af erlendum nytjajurtum.
5. Reynd sé fræframleiðsla af æskilegum
j urtategundum.
6. Rannskaðar séu aðferðir við græðslu
sanda og uppblásins lands.
7. Gerðar séu athuganir varðandi hæfi-
lega beit á úthögum til þess að viðhalda
æskilegum jurtategundum og sem mestri
frjósemi.
8. Gert sé yfirlit yfir jurtir, er kunna að
vera eitraðar fyrir búpening.
9. Rannsóknir varðandi votheysverkun.
10. Gerðar séu rannsóknir á notagildi
nýrra véla við íslenzka staðhætti.
11. Framleiðsla nýrra og bættra nytja-
jurta með jurtakynbótum.
12. Grundvallarrannsóknir á hinum ýmsu
sviðum, er snerta líffræði, svo sem: jarð-
vegseínafræði, jarðvegseðlisfræði, jarð-
vegsfrjósemi, jurtalandafræði, erfðafræði,
sjúkdómafræði, lífeðlisfræði og næringar-
fræði, varnarráðstafanir gegn jurtasjúk-
dómum, skorkvikindum, illgresi, nagdýr-
um og dýrasjúkdómafræði.
Á þessum sviðum getur mikið áunnizt
með alþjóðasamvinnu og samböndum við
erlenda sérfræðinga.