Freyr - 01.03.1950, Side 23
FREYR
73
sem vill verka 6 kýrfóður af votheyi, þarf
hlöðu, sem er 4 m í þvermál og 8 m á hæð.
Sá, sem vill hafa rúm fyrir 10 kýrfóður
votheys, þarf hlöðu sem er 4 m í þvermál
og lli/2—12 m á hæð. Til greina getur líka
komið, að hann vilji hafa votheyshlöðu og
þurrheyshlöðu undir sama þaki, en þá er
eðlilegast að votheyshlöðurnar hafi vegg-
hæð eins og þurrheyshlaðan, og séu grafnar
niður fyrir gólf þurrheyshlöðunnar, sé það
hægt vegna grunnvatns, og þá hafðar 5 m
á dýpt og t .d. 3X3 m grunnflötur. Hver
gryfja, af þessari stærð, tekur 2y2 kýrfóður.
Hún getur verið kringlótt, ef mót eru til
af þeirri gerð, og slik lögun er skilyrðislaust
bezt, en annars strend með afstýfðum horn-
um innanvert.
Þess skal enginn ganga dulinn, að efni
þarf miklu meira í fjórar litlar gryfjur
heldur eina hlöðu stóra.
Samanburð á þessu er rétt að gera og
byggja á staðreyndum frá votheysturna-
byggingum frá sumrinu 1949 annars vegar,
en hins vegar hefir Teiknistofa landbúnað-
arins reiknað efnisþörfina miðað við 4 vot-
heysgryfjur, er samtals rúma 10 kýrfóður.
Fyrir hvert kýrfóður (1800 fóðureiningar)
er áætlað 18 rúmmetrar í gryfjunum en í
turni 14 m3 og munu báðar tölurnar svo
nærri lagi, sem komizt verður og byggðar
á vigtartölum við fjölda tilrauna erlendis.
í eftirfarandi tölum er gjaldeyrisþörfin
miðuð við verðið á byggingavörum eins og
það var á síðari helmingi ársins 1949, en
það var sem hér segir:
Portlandcement, danskt ... kr. 115 smálestin
Steypustyrktarjárn, enskt .... — 656 smálestin
Timbur, sænskt eða finnskt . . — 1400 standarðinn
Þakjárn, belgískt nr. 24 . — 1835 smálestin
Slétt járn, galvaniserað; verð svipað og bárujám.
Um verðið á innanlandsmarkaði er að
segja, að farið hefir verið eins nærri um
það og komizt hefir verið og miðað við aðal
markaðsstaðina, en annars er það verð
mjög breytilegt — frá einni verzlun til ann-
arar, og er auðvitað háð innkaupaskilyrð-
um, kostnaði o. fl.
Efniskostnaðurinn er þá sem hér segir:
A. Votheysturn, hœð 12,5 m ■— vídd 4 m
Rúmmál 157 m3
Foðurrými: 11 kýrfóður á 1800 f. e. = 440 hestburðir taða
Ojald- Verð i
eyris- sölustað
Efnisþörf þörf hér
Kr. Kr.
Cement, 8,5 smálestir = 50 tn....... 978 2.700
Iíalk, 1 smálest; Sindrakalk Akureyri.. 400
Steypustyrktarjárn, 0,75 smál........ 490 1.500
Klifurjárn .......................... 180 500
30 teningsfet timbur ................ 255 660
15 fermetrar slétt járn ............. 165 350
Kr. 2.068 6.110
Kostnaður á kýrfóður: ....... 188 556
B. 4. Votheysgryfjur, hœð 5 m — vídd 3X3 m
Rúmmál: 180 m3
Fóðurrými: 10 kýrfóður á 1800 f.e. = 400 hestburðir taða
Gjald- Verð á
eyris- sölustað
Efnisþörf þörf hér
Kr. Kr.
Cement, 18,5 smálestir — 109 tn. .... 2.128 5.735
Steypustyrktarjárn 0,4 smálestir .... 262 790
Timbur, 175 rúmfet .... 1.488 3.850
Þakjárn, 70 fermetrar .... 798 1.825
Kr. 4.676 12.200
Kostnaður á kýrfóður .... .... 467 1.220
Til skýringar skal tekið fram, að reiknað
er með venjulegum afföllum á timbri, við
notkun til steypu, og hagnýting þess að því
loknu í þak undir járnið. Hefir Teiknistof-
an því aðeins tekið í reikningsdæmið það
timbur, sem virkilega er notað en ekki það,
sem afgangs kann að vera og keypt hefir
verið fram yfir þarfir.
Þá skal fram tekið, að í yfirlitinu er ekki
talin með gjaldeyrisþörf fyrir stálmótum,
með tilheyrandi útbúnaði né kostnaður