Freyr - 01.03.1950, Page 30
80
PRE YR
A. P. Jacobsen,
ríkisráðunautur Dana í Þýzkalandi um
um tveggja áratuga skeið, sem nú er aðili i
framkvæmdaráði matvæla- og landbúnaðar-
stofnunar sameinuðu þjóðanna, hefir nýlega
flutt erindi í heimalandi sínu um hvað gera
ber til viðbúnaðar áður en Marshallhj álpin
þrýtur og fóðurinnflutningur þverr að miklu
leyti um leið. Þetta mál er annars mjög rætt
hjá grannþjóðum okkar.
Ráð það, sem Jacobsen sér næst, er að herða
á byggingu votheyshlaöa. „í landinu eru til
um 60 þúsund nothæfar votheyshlöður, en oss
er nauðsynlegt að byggja 100.000 nýjar áður
en Marshallhjálpinni linnir“, hefir hann stað-
hæft á fundum hjá búnaðarsamböndum lands-
ins nú í vetur.
spurningu verður birt í Frey, og nafns höf-
undar getið, nema annars sé óskað.
Dómnefnd skipa:
Eyvindur Jónsson, ráðunautur Bf. Isl.
Gunnar Árnason, skrifstofustj. Bf. Isl.
Gísli Kristjánsson, ritstj. Freys.
Verðlaun verða veitt fyrir 5 þeirra úrlausna,
sem að dómi nefndarinnar eru beztar.
Verðlaun þessi eru:
1. Skýrsla milliþinganefndar Búnaðarþings
1943 ásamt verðlaunaritgerðum. 2 bindi
og Atli, ljósprentaður, eftir Björn Hall-
dórsson.
2. Skýrsla milliþinganefndar með verð-
launaritg. og bókin Kartaflan, með 24
litmyndum.
3. Skýrsla milliþinganefndar með verð-
launaritgerðum, 2 bindi.
4. Atli, ljósprentaður, eftir Björn Halldórs-
son.
5. Kartaflan, með 24 litmyndum.
Svörin þurfa að vera komin til Freys fyrir 25.
apríl n. k.
FREYR
— búnaðarblað — gefið út af Búnaðarfélagi íslanda
og Stéttarsambandi bænda.
Ritstjóm, ajgreiðsla og innheimta:
Lækjargötu 14 B, Reykjavík. Pósthólf 1023.
Sími 8110.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Kristjámson.
Utgáfuneí'nd: Einar Olafsson, Pálmi Einarsson,
Steingrímur Steinþórsson.
Verð kr. 25.00 á ári. Gjalddagi fyrir 1. júlí
Prentsmiðjan Edda h.f.
Danmörk
er stöðugt öruggt vígi samvinnufélagsstarf-
seminnar. Alheimi er kunnug forganga á sviði
mjólkurbúa og sláturhúsa þar í landi. Sænska
fyrirkomulagið með samvinnuþvottahús var
tekið tveim höndum og nú er búið að kerfis-
binda allt landið í því efni svo að alls staðar
á að verða aðgangur að þeim innan fárra ára.
Og nú eru það samvinnu-íshúsin, sem þjóta
upp eins og gorkúlur á haug, en skipulögð þó,
svo að ekki verði þau of mörg og of miklu fé
varið í byggingu þeirra.
Ýmsir óttast offramleiðslu
á landbúnaðarvörum innan skamms tíma.
Það gera sérfræðingar FAO þó ekki. Þeir segja,
að mjólkurþörf heimsins muni tvöfaldast og
þörfin á kjöti og feiti vaxa um 35—50% til
ársins 1960.
Manus
mjaltavélaverksmiðjan í Norrköping í Sví-
þjóð, hefir byrjað framleiðslu á mjólkurmæli,
sem settur er í samband við mjaltavélina og
mælir mjólkina, en samtímis mælir hann
tíma þann, sem mjaltirnar vara.
Eftirlitsfélög í U.S.A.
voru 1426 á síðasta ári en kýrnar 800.00 sem
voru þar undir eftirliti og afurðamælingu.
Meðalnyt þeirra var 2917 kg mjólk með 4.04%
fitu. Svo er sagt að þessi kúahópur sé tæpl. 3%
af kúafjölda landsins.