Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2005, Page 13
DV Fréttir
LAUGADAGUR 6. ÁGÚST2005 13
Vel gengur að
safna fyrir
Kjalvegi
Sunnlendingar og Norð-
lendingar standa um þessar
mundir fyrir sö&iun í þeim
tilgangi að fjármagna heils-
ársveg yfir Kjöl. Um tólf
milljónir króna hafa safnast
norðan heiða, samkvæmt
Ríkisútvarpinu, og er ætl-
unin að Sunnlendingar
leggi fram átta milljónir. Þá
er gert ráð fyrir því að Kjal-
vegur verði einkafram-
kvæmd.
Fornleifaþing
í Hjaltadal
Næstkomandi laugardag
verður haldin á Hólum í
Hjaltadal ailfjölmenn ráð-
stefna fornleifafræðinga
um fornleifar og rannsókn-
ir þeim tengdar. Gert er ráð
fyrir að 90 innlendir sem
erlendir fornleifafræðingar
mæti á ráðstefnuna. Hún er
hins vegar öllum opin og
má finna dagskrá hennar á
slóðinni
www.holar.is /fornleifar.
Fleiri ósáttir
við stríðið
Samkvæmt nýrri
könnun AP-frétta-
stofunnar hafa aldrei
fleiri Bandaríkja-
menn verið óánægð-
ir með frammistöðu
George W. Bush for-
seta í íraksstríðinu.
Einnig telja sífellt
færri að forsetinn sé heiðar-
legur. Það sem af er árinu
hafa á milli 40 og 50 prósent
Bandaríkjamanna verið
sáttir við frammistöðu
Bush, en nú eru þeir ein-
ungis 38 prósent, sem er
sögulegt lágmark. Traustur
meirihluti þjóðarinnar telur
enn að Bush sé sterkur og
viðkunnanlegur leiðtogi.
Könnunin sýndi að það var
einna helst var ungt og lítið
menntað fólk sem var
óánægt með Bush.
Tíu þúsund manns eru án heimilislæknis á höfuðborgarsvæðinu. Einkarekin heilsu-
gæslustöð í Salahverfi getur tekið 6000 sjúklinga í viðbót. Sjúklingar sem þangað
leita greiða sama verð og á öðrum heilsugæslutöðvunum. Þessi heilsugæslustöð er
tilraunaverkefni á vegum heilbrigðisráðuneytisins og hefur mælst vel fyrir.
Tíu liúsund án heimilislæknis
n höfuðborgarsvæðinu
Þeir sem eru án heimilislæknis á höfuðborgarsvæðinu geta val-
ið um að fá heimilislækni strax á einkarekinni heilsugæslu í
Salahverfi eða leitað á náðir Upplýsingamiðstöðvar heilsugæsl-
unnar sem sérhæfir sig í að leiðbeina fólki um úrræði í heilbrigð-
iskerfinu. „Þörf er fyrir fjölbreyttari þjónustu heilsugæslunnar til
þess að koma til móts við mismunandi þarfir fólks,“ segir Uggi
Agnarsson hjartalæknir.
Áhöfuborgarsvæðinu eru 10 þús-
und manns án heimilislækns, þar af
6-7 þúsund í Hafnarfirði. „Þeir sem
eru án heimilislæknis leita gjarnan
beint til sérfræðinga
ogkostaþjóðfé-
lagið mun
meira," seg-
ir Lúðvík
Ólafsson,
lækn-
ingafor-
stjóri
heilsugæsl-
unnar.
Fólk án heimilislæknis þarf
að borga meira
Uggi Agnarsson, hjartalæknir í
Læknasetrinu Mjódd, segist ekki
hafa tölur yfir það hve margir sjúk-
ingar leiti til hans vegna þess að þeir
séu án heimilislæknis. „Hjartavernd
hefur líka tekið á móti fólki utan
kerfis, en þá þarf fólk að borga fyrir
sig fullu verði," segir Uggi. Uggi seg-
ir ekkert í kerfmu koma í staðinn fyr-
ir heimilislækni, en nýlega var sett á
stofn Upplýsingamiðstöð heilsu-
gæslunnar fyrir fólk án heimilis-
læknis, þar sem fólk getur leitað sér
ráða vegna veikinda.
Lúðvík Ólafsson Lækn-
ingaforstjóri heilsugæsl-
unnar, segir fólk án heimil-
islæknis gjarnan leita beint
til sérfræðinga en það
kostar þjóðféiagið meira.
Þörf fyrir fjölbreyttara
kerfi
„Það er til skammar að fólk
fái ekki heimilislækni og kerfið
þyrfti að vera fjölbreyttara,"
segir Uggi. Hann segir fólk hafa
mismunandi þarfir eftir aldri og ijöl-
skyldustærð. „Þannig hentar fjöl-
skyldufólki betur að leita til heilsu-
gæslunnar, þar sem bæði er ung-
barna- og mæðravernd, en ein-
hleypu og eldra fólki hentar betur að
leita til sjálfstætt starfandi heimilis-
læknis," segir Uggi.
Allirfá heimilislækni á
einkarekinni heilsugæslu-
stöð í Kópavogi
„Við getum tekið við 6000
sjúklingum i viðbót," segir I-Iauk-
ur Valdimarsson yfirlæknir á
heilsugæslunni í Linda- Sala- og
Vatnsendahverii í Kópavogi.
Haukur segir þetta vera tilrauna-
verkefni sem heilbrigðisráðuneyt-
ið stendur fyrir.
„Núna eru 6.500 manns á skrá
hjá okkur og við gerum ráð fyrir að
milli 11-12 þúsund manns verði
skráðir á stöðina þegar hverfið verð-
ur fullbyggt," segir Haukur.
Haukur segir að eng-
um sem til þeirra leitar
verði vísað frá og allir fái
heimilislækni
sem þess óska.
„Það er
svolítið u
að fólk komi til okkar af því það fær
ekki heimilislækni í Reykjavík," segir
Haukur. Þeir sem óska eftir heimilis-
lækni á einkareknu heiisugæslu-
stöðinni borga sama komugjald og á
öðrum heilsugæslustöðvum.
hugrun@dv.is
Haukur Valdimarsson
Yfirlæknir einkarekinnar
heiisugæsiustöðvar I Kópa-
vogi, segir alla sem koma
fá heimilislækni.
Hvattirtil að
sofaívinn-
unni
Listi yfir sex staði sem fólk getur leitað til ef það er án heimilislæknis
Hvert getur fólk án heimilislæknis leitað?
Austurríski bankinn
Sparkasse hefur gripið til
þess ráðs að hvetja starfs-
fólk sitt til að blunda í
vinnunni. Taugafræðing-
urinn og svefnvísinda-
maðurinn Manffed Walzl
hefur greint fr á því að
þriðjungur Austurríkis-
manna þjáist af svefn-
leysi, sem veldur syfju og
mönnum verða á fleiri
mistök. í ljósi þessa býður
bankinn starfsfólki sínu
að halla sér í 20 mínútur
eftir hádegismatinn. End-
anleg ákvörðun um fyrir-
komulagið verður tekin
þegar ljóst verður hvort
blundurinn auki sannan-
lega ffamleiðni starfs-
fólksins.
lýsingar um forvarnir og réttindi
sjúklinga og kappkosta að vísa fólki
rétta leið í kerfinu.
2) Heilsugæslustöðin í hverfinu
þínu. Þótt margar stöðvar geti ekki
útvegað fastan heimilislækni er á
mörgum þeirra boðið upp á þjón-
ustu lækna sem eru í námi í heimil-
islækningum. Opið á dagvinnutíma,
komugjald 700 kr.
Ef þú ert einn af þeim 10 þúsund
höfuðborgarbúum sem hefur ekki
heimilislækni eru nokkrir staðir sem
hægt er að leita til.
1) Upplýsingamiðstöð heilsu-
gæslunnar, símaþjónusta. Sími:
1700, opið á dagvinnutíma aila virka
daga. Ókeypis símaþjónusta fyrir
fólk án heimilislæknis. Þarna starfa
hjúkrunarfræðingar sem veita upp-
Heilsugæslur hverfanna Hægt að fá við-
tal hjá læknum án þess að hafa heimilis-
lækni.
3) Einkarekin heilsugæslustöð á
Salavegi 1, Kópavogi. Þar geta allir
fengið heimilislækni, biðtími eftir
tíma hjá lækni er einn sólarhringur.
Sími: 590-3900. Opið frá 8-18, komu-
gjald 700 krónur. Frá 16-18 er komu-
gjald 1.750 krónur fýrir fuliorðna.
4) Læknavaktin Smáratorgi 1.
Sími: 1770. Opið frá 17-23.30 virka
daga og 9-23.30 um helgar. Komu-
gjald er 1.750 krónur. Vitjanir eru
alla virka daga frá 17-08 og allan
sólahringinn um helgar.
5) Domus Medica, Egilsgötu 3.
Einn af nokkrum stöðum í borginni
þar sem sérfræðingar hafa aðsetur.
Sími: 563-1000. Opið ffá 9-17. Bið
eftir tíma hjá sérfræðingum er yfir-
leitt mun lengri en þegar leitað er
beint á heilusgæslustöðvarnar.
Komugjald er í kringum 3000 krónur
en getur farið upp í 18 þúsund krón-
ur eftir því hvað þarf að gera.
6) Bráðamóttakan á Landspítal-
anum við Hringbraut eða í Fossvogi.
Sími: 543-1000 (skiptiborð Land-
spítalans). Opið allan sólahringinn
alla daga ársins. Komugjald 3.320
krónur.
hugrun&dv.is
Bráðamóttaka Landspítalans Opin alian
sólahringinn allan ársins hring.