Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2005, Page 20
20 LAUQARDAGUR 6. ÁGÚST2005
Helgarblaö DV
Róbert Wessman var launahæsti forstjóri íslands á síðasta
ári með rúmlega 20 milljónir í mánaðarlaun. Róbert er 35 ára
og hefur á síðustu árum náð gríðarlegum árangri í starfi sínu
hjá lyfjarisanum Actavis sem hefur vaxið hratt. Hann er
sagður mikill Qölskyldumaður og líður best með eiginkonu
sinni og börnunum tveimur þótt mikill tími fari í ferðalög.
Vilhelm Róbert Wessmann er
fæddur í Reykjavík 4. október árið
1969. Foreldrar hans eru Wilhelm
Wessman hótelstjóri og Ólöf Wess-
man snyrtifræðingur. Róbert er mið-
bam þeirra hjóna en elst er Ólöf mat-
sveinn og yngst Gunnhildur. Fjöl-
skyldan bjó við Álmholt í Mosfellsbæ
sem þá var talsvert fámennari en nú.
Róbert var ákveðinn í að mennta
sig og fór í Menntaskólann við Sund að
loknu grunnskólanámi. Hann var
góður námsmaður en þar kynntist
hann Sigríði Ýr Jensdóttir en þau voru
bæði góðir námsmenn og kepptust
um að vera efst í bekknum á próf-
unum í MS. Síðan hefiir hnífurinn ekki
gengið á milii þeirra en þau giftust
síðar og eiga saman tvö böm.
Engin unglingavandamál
Eftir stúdentspróf fór Róbert í við-
skiptafræði í Háskólanum en Ýr í
læknisfræði. Hún er nú að sérmennta
sig í heimilislækningum en tók sér hlé
frá námi efttir kandídatspróf á meðan
hún átti bömin, þau Helenu Ýr sem
verður sjö ára í haust og Jens Hilmar
en hann er þriggja ára.
Ólöf Wessmann, móðir Róberts,
segir son hennar alia tíð hafa verið
mjög athaftiasaman. „Hann var í öllu,
íþróttum, tónlist og ýmsu tómstunda-
starfi. Hafði alltaf nóg að gera en stóð
sig eigi að síður vel í skóla. Ég þurfti
aldrei að hafa fyrir Róberti, hann var
alltaf jafn þægilegur við að eiga. Man
Jdrei eftir neinum ung-
ingavandamálum í
kringum hann eða vandamálum yfir-
leitt," segir hún og bætir við að þar
sem hann sé miðbam og eini drengur-
inn hafi hún líklega hlíft honum og
kannski vemdað hann dálítið. „Já, ætli
ég hafi ekki sleppt honum við verk
sem stelpumar þurftu hins vegar að
inna af hendi. Óg ég hef ábyggilega
gengið á eftir honum og tínt upp fötin
hans. Hann fékk að njóta þess að vera
strákur og gekk að matarborðinu og
öllu klám. Heimilisverkin lögðust frek-
ar á þær,“ rifjar Ólöf upp.
Hún segir að snemma hafi borið á
metnaði hjá drengnum og hann hafi
lagt sig hundrað prósent fram við allt
sem hann tók sér fyrir hendur. „Róbert
gerði aUt vel, alveg sama hvað það var.
Harrn var duglegur og hafði aUtaf nóg
að gera og átti fjöldann aUan af vinum
sem hann var alltaf eitthvað að vesen-
ast með. Hann var ungur þegar hann
fór að vinna fyrir tekjum en krakkamir
vom reyndar öU snemma farin að
vinna.''
Sparsamt barn
Róbert var ekki hár í loftinu þegar
viðskiptavitið lét fyrst á sér kræla. Ólöf
móðir hans man efdr honum smá-
poUa, leggja inn peninga sem honum
höfðu vérið gefnir til að eyða. Þeir
enduðu þess í stað í sparibauloium.
Hún segir að þau grínist stundum með
það í fjölskyldunni að þegar krakkamir
hafi allir fengið að fara í bíó hafi Róbert
komið fljótlega heim aftur en ekki
stelpumar. Hann vUdi frekar geyma
peninginn sinn en þannig hafi hann
oft haft það. „Hann var líka aUtaf
ánægður með það sem hann fékk á
meðan stelpumar náðu að kría út
meira. Þær vom lunknar við að fá dýr-
ari hluti en hann. Hann sætti sig við
það sem hann fékk og ekld orð um það
meira," segir Ólöf móðir hans.
Snemma var ljóst að Róbert fór
þangað sem hann ætlaði sér. Hann
gafst ógjaman upp við verk sem hann
einsetti sér að vinna. Hann staldraði
frekar við og velti fyrir sér öðrum
leiðum að markmiðinu en ekld að
hætta við svo búið. Móðir hans man
ekki eftír Róbert öðmvísi en ljúfum og
filýjum, skemmtilegum og kátum
strák.
i„-r /SCÍ.
<yldan í Fossvoginum Róbert býr
■iginkonu sinni og tveimur börnum i
u einbýlishúsi i Fossvogsdalnum.
Fluggáfaður
eðalkokkur
i_£LUi_
*s
Róbert með Ólafi Ragnari
í Indlandi
A góðri stund á Indlandi þar
sem Róbert handsalar kaup
IActavis á lyfjaverksmiðium
Lotus.___
ícellency
ignar Gri
Republic of Ic
Laðaðist strax að þessum
myndarlega strák
Eiginkonan, Sigríður Ýr segist
muna eftir Róbertí aUt frá því þau byrj-
uðu saman í MS. Það hafi laðað hana
að honum hve skemmtilegur, mynd-
arlegur og atorkusamur hann hafi
verið. „Hann hafði ótrúlega orku og
hefur reyndar enn og er mUdU
húmoristí. Það var gaman að vera með
honum og við fundum fljótt að við átt-
um sitt hvað sameiginlegt," segir hún.
Ýr segist fljótt hafa gert sér ljóst að
eitthvað yrði úr strálcnum. Hann hafi
verið því marki brenndur að gefast
ekki upp við að ná settu marki, það
hafi sýnt sig í öUu sem hann tók sér
fyrir hendur. „Ég áttaði mig fljótt á hve
velgefinn hann er og mikUl náms-
maður enda vissu það fáir betur en ég,
því við kepptumst að því að vera sem
hæst á prófum, hann var minn aðal-
keppinautur." Hver hafði betur? Það
man ég ekki, en það var milöU keppn-
isandi í honum," rifjar hún JUæjandi
upp.
Róbert var vinamargur og tók þátt í
félagslífinu að fuUum kraftí. Ýr bendir
einnig á að í skóla hafi hann verið
endalaust með skemmtilegar hug-
myndir á prjónunum og í kringum
hann hafi aldrei verið lognmoUa. „Það
var aUtaf eitthvað að gerast, hann sat
aldrei auðum höndum eða lét sér leið-
ast. Gat aUtaf verið að gera eitthvað.
Róbert hafði endalausa orku. Hann
var líka mUdð í íþróttum og er enn.
Ræktar líkamann og finnur sér aUtaf
tíma tíl að fara í ræktina," segir hún.
Trygg og góð manneskja
Yr segir ennfremur að Róbert sé
einn þeirra sem hægt sé að treysta
hundrað prósent. í sambandi þeirra
hafi þau aUtaf farið þær leiðir sem þau
kusu en létu ekki hvort annað hamla
því að þau fengju að njóta sín. Þau
fóru sínu fram og hafa oftar en einu
sinni verið aðskUin, hvort í sínu
landinu. „Það krefst trausts en ég hef
aldrei efast um tryggð hans. Róbert er
einnig húmanisti og afskaplega góð
manneskja," segir Ýr og bætir við að
áhugasvið þeirra og skoðanir Uggi
saman á mörgum sviðum. Það sé ekki
síst það sem hafi gert samband þeirra
gott en vissulega sé það ekki öðruvísi
hjá þeim en öðrum hjónum. Það
sldptist á slcin og slcúrir en uppstytt-
umar séu lengri.
Frjór og fljótur að greina tæki-
færi
í viðskiptaffæðinni í Háskólanum
gekk Róbert vel. Hann tók mUánn þátt
í félagslífinu þar eins og í menntaskóla
og það hafði ekki áhrif á námshrað-
ann. Bragi Rúnar Jónsson var með
honum í viðskiptadeUdinni og starfar
nú með honum hjá Actavis. Hann