Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2005, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST2005
Fréttir DV
ðlafur Hauhur Símonarson
Kostir & Gallar
Ólafur er frjór og hugmynda-
ríkur. Fluggreindur og fyndinn.
Hann er einnig mjög glöggur
á bíla.
Hann heldur að engum þyki
varið íþað sem hann gerir.
Svo virkar hann stundum
fýldur og skapvondur þótt
hann sé það ekki.
„Ólafur hefur mjög marga
kosti. Bæði sem persóna
og höfundur. Hann er frjór
og fljótur að bregðast við
þegar nýjar hugmyndir
kvikna í ieikhúsinu. Hann fær líka
endalausar hugmyndir sjálfur og
vinnur vel úr þeim. Gerir góða
tónlist og texta. Hann er llka
þægilegur I samvinnu og frábær
félagi. Við höfum þekkst iengi.
Mér detta engir gallar I hug. Hann
erbaraÓli."
Þórhallur Sigurðsson leikstjóri.
„Ólafur er algjörlega
fluggreindur maður.
Fljótur að meta hlutina
og átta sig á aðalatrið-
unum íhverju máli. Á
sinn alvarlega og ísmeygilega
máta erhann síðan ótrúlega
fyndinn. Þú finnur heldur ekki
gleggri mann á bíla. Efeinhver
ætlar að kaupa sér nýjan bíl er
hann alltafkallaður til. Hann
heyrir þá anda. Hans helsti galli
er aðhann áttar sig ekki á því
hvað þjóðinni þykir vænt um
hann. Það vefst fyrir honum.
Hann heldur að engum þyki
varið íþað sem hann gerir."
Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri.
„Ólafur kann leikhús. Veit
um hvað það fjallar.
Hann hefur lika svo
mikla reynslu. Mörg verk
á bak við sig. Enda er
hann einn affáum íslenskum
höfundum sem hafa fengið að
vinna eins og fagmenn. Ólafur
hefurþann galla að virka
stundum eins og fýldurog skap-
vondur. Hann erþað þó ekki.
Fólk áttar sig stundum ekki á
því. Ég held að þetta sé afþvi að
hann erfeiminn."
Hlín Agnarsdóttir, leikstjóri og listrænn
ráðgjafi Þjóðleikhússins.
Ólafur Haukur Simonarson fæddist 4. ágúst
1947. Hann er eitt ástsælasta leikskáld
þjóðarinnar og varla líður leikár án þess að
nýtt verk eftir hann sé sett upp. ólafur skrif-
aði verkið Halldór í Hollywood, sem verður
frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins á
næstunni.
í DV fyrir helgi var sagt frá því að 120 börn bíði eftir plássi á frístundaheimili í
Breiðholti. Hluta manneklunnar má rekja til lágra launa sem eru í boði fyrir þessi
störf. Jón Mýrdal hefur starfað á frístundaheimili en hætti vegna lélegra launa.
Jón segir að á meðan launin eru svona lág sé erfitt að ráða almennilegt fólk til
starfa á frístundaheimilum.
Jón Mýrdal starfaði á ffístundaheimilinu við Vesturbæjarskóla
íyrir áramót í fyrra. Hann kunni starfinu vel en ekki laununum.
Þá segir hann samkomulag milli kennara og starfsfólks ffístunda-
heimilisins ekki hafa verið upp á marga fiska. „Það eina sem dug-
ar til að halda í starfsfólkið er að hækka launin," segir Jón.
Launin voru svo lág að það tók
því ekki fyrir Jón að skipta skattkorti
sínu og fékk hann því mjög lítið út-
borgað sem starfmaður frístunda-
heimilisins.
30 þúsund útborguð fyrir
vinnu á frístundaheimili
„Ég starfaði sem kokkur hálfan
daginn og var með allt skattkortið
mitt þar vegna þess að það borgaði
sig ekki fyrir mig að skipta því,‘‘ seg-
ir Jón. Þetta er skýringin á því að út-
borguð laun Jóns voru ekki hærri en
30 þúsund á mánuði fyrir starf á frí-
stundaheimili. „Mér líkaði mjög vel
í vinnunni," segir Jón og bætir því
við að hann hafi eingöngu hætt út
af laununum. Til samanburðar má
geta þess að Jón fékk 200 þúsund
krónur fyrir starf sitt sem kokkur
sem hann sinnti fjóra tíma á dag.
Reyndi að ýta laununum upp
„Ég græddi ekkert á þessu fjár-
hagslega," segir Jón en bætir því við
að hann hafi gert tilraun til að fá
hærri laun. „Það voru gerðar ein-
hverjar bjánalegar tilraunir til að
hælcka launin með því að halda
fundi einu sinni í viku þar sem boð-
ið var upp á kók og kex,“ segir Jón.
Hann segir fundina greinilega hafa
verið haldna til málamiðlunar og að
sínu mati ekki verið nauðsynlegur
liður í vinnunni.
„Það segir sig sjálft að ef launin
eru lág velst vont starfsfólk til
starfa," segir Jón. Hann segist ekki
hafa þurft að skila sakavottorði þeg-
ar hann sótti um starfið hjá frí-
stundaheimilinu og bætir því við að
hann telji starfið á svipuðu stigi og
að smala saman körfum í Hag-
kaupum.
Ósamkomulag við kennara
Jón segir gott fólk hafa starfað á
frístundaheimilinu en að það hafi
verið mikil útskipti á fólki. Jón bæt-
ir því við að það hafi verið mikið af
skólafólki, allt niður í 18 ára aldur.
Þá segir hann fagfólk hctfa verið í
minnihluta í vinnu á frístunda-
heimilinu.
Jón segir kennarana í Vesturbæj-
arskóla ekki hafa borið mikla virð-
ingu fyrir starfsfólki frístundaheim-
ilisins. „Ég missti nær allt álit á
kennurunum á meðan ég starfaði
þarna og þeim virtist slétt sama
þótt nemendur þeirra stæðu í slags-
málum um leið og þeir komust úr
þeirra umsjá," segir Jón. Hann
starfar nú hjá Byggt og búið í
Kringlunni og er sáttari við laun og
vinnuaðstöðu en hann var sem
starfsmaður frístundaheimilis við
Vesturbæjarskóla.
hugrun@dv.is
P CP
Fjölmörg börn biða eftir
plássi á frístundaheimiii
Erfiðlega hefur gengið að
manna stöðurnar.
Jon Mýrdal Hættiað
starfa á frístundaheim-
ili vegna lágra launa.
Riúpnaveiði
leyfð
Rjúpnaunnendur geta
nú tekið gleði sína á ný því
Sigríður Anna Þórðardóttir
umhverfisráðherra tilkynnti
í gær fyr-
irkomu-
lag
rjúpna-
veiða fyr-
ir haust-
ið.
Rjúpna-
veiðar verða leyfðar á ný
eftir tveggja ára bann en þó
aðeins frá 15. október til 30.
nóvember. Sölubann á
rjúpum verður þó enn við
lýði og því verður fólk að
veiða sjálft í matinn eða
treysta á gjaflr frá öflugum
veiðimönnum í fjölskyld-
unni. Stefnt er að því að
ekki verði veiddar fleiri en
70 þúsund rjúpur en það er
veiðiþol stofnsins að mati
Náttúrufræðistofnunar.
Hélt að brennisteinssýran væri áfengi
Litháinn neitar sök
Aðalmeðferð var í máli þrjátíu og
sjö ára gamals Litháa, Thomas Oma-
novas, í gær en hann var tekinn í
Leifsstöð fyrir viku og reyndist vera
brennisteinssýra í tveimur áfengis-
flöskum sem hann hafði á sér. Oma-
novas segist hafa haldið að áfengi
væri í flöskunum.
Ákæruvaldið heldur því fram að
Litháinn sé þátttakandi í skipulagðri
alþjóðlegri glæpastarfsemi og að
brennisteinssýruna hafi átt að nota
við amfetamínframleiðslu. Því neit-
ar Litháinn alfarið. Omanovas hefur
þrisvar sinnum komið hingað til
lands en á hér hvorki vini né kunn-
ingja. Hann segist hafa ætlað að
koma til íslands til að hitta litháíska
vinkonu sína sem hann hitti í Bret-
landi en verið tekinn afsíðis af toll-
vörðum um leið og þeir sáu að hann
var frá Litháen. Þetta segir veijandi
Omanovas benda til þess að að hon-
um hafi verið mismunað á gmnd-
velli þjóðemis. Dómur í málinu
verður kveðinn upp á morgun.
Sigurður Freyr er laus úr einangrun
Sendur á sjúkrahús í gær
Sigurður Freýr Kristmundsson,
sem hefur játað að hafa myrt tvítug-
an dreng í kjallaraíbúð á Hverfis-
götu, er kominn í lausagæslu á Litla-
Hrauni. Gæsluvarðhald yfir honum
var framlengt til 22. nóvember í gær
en hann hefur verið í fjölmiðlabanni
og ekki fengið að hafa samskipti við
neinn nema veijanda sinn, Svein
Andra Sveinsson, síðan 20. ágúst.
Sigurður Freyr var lagður inn á
sjúkrahús í gær en samkvæmt heim-
ildum DV mun hjúkmnarkona á
Litla-Hrauni hafa haft áhyggjur af
blóðþrýstingi hans og ákveðið að
senda hann til Reykjavíkur til nánari
athugunar. Sigurður missti því af
aðalmeðferð sem var í gær í máli
sem lögreglustjórinn í Reykjavík hef-
ur höfðað gegn honum. Það mál
tengist morðinu á Hverfisgötu þó
ekki heldur er um skjalafals og um-
ferðarlagabrot að ræða.
Sigurður Freyr Kristmundsson Hjúkrun-
arkona á Litla-Hrauni hafði áhyggjur af
bióðþrýstingi hans.
Drengurinn sem Sigurður Freyr
myrti, Bragi Halldórsson, var jarð-
sunginn frá Grafarvogskirkju í gær.
andri@dv.is