Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2005, Side 25
I
►
DV Sálin
Geðsjúkir oftar
fórnarlömb
Meira en fjórðungur einstakinga með al-
varieg geðræn vandamál varð fyrir of-
beldi á síðustu árum. Þetta kemur fram í
nýjasta tímariti Archives ofGeneral
Psychiatry sem fjallar um málefni geð-
sjúkra. Dæmi um þá glæpi sem fólk með
geðraskanir varð oft fyrir voru nauðganir,
kynferðisleg áreitni, rán og líkamsmeið-
ingar. Talsmenn rannsóknanna segja þá
geðsjúku oftmun varnarlausari gagn-
vart ofbeldisfólki. Oftglími þeir þar að
auki við fátækt og hafi ekki fastan sama-
stað sem eykur enn hættuna á því að
verða fyrir árásum. Sérstaklega virðist lit-
að fólk með geðvandamál eiga á hættu
að verða fyrirglæpum.
Jón Bjarní Jónsson segirmjög
erfitt fyrir fólk með félagsfælni
| að haida áfram í námi vegna
þeirrar vanlíðunarsem gripur
það i fiöimenni.
að vandamál. Hann telur þó alla
umræðu til mikilla bóta enda sé
sjúkdómurinn mun alvarlegri en
margir gera sér grein fyrir. Oft eiga
börn með fælnina mjög erfitt með
að fara í skóla og taka þátt í tóm-
stundum með öðrum bömum. Það
hendir þvf oft að þau verða fómar-
lömb eineltis og útilokunar enda
hafa rannsóknir sýnt að almennt er
skólaganga þessara bama mun
styttri en annarra og því líkur á að
þau nái minni starfsframa en aðrir á
fullorðinsárum.
„Ég man vel eftir fyrstu dögum
mínum í skóla," segir Jón, sem seg-
ist hafa kviðið mikið fyrir og þurft að
fá systur sína til að leiða sig þangað
í fyrstu. „Mér tókst þó að ljúka raf-
virkjun í Iðnskólanum en þegar ég
fór í Tækniskólann gafst ég upp
vegna þess hve mér þótti erfitt að
vera innan um fjölda fólks, jafnvel
þótt mig hafi mikið langað til að
halda áfram."
Fólk er ekki eitt
Jón Gunnar Hannesson læknir
segir gleðilegt að fólk geri sér al-
mennt betur grein fyrir tilvist þessa
sjúkdóms og að fleiri úrræði séu að
verða til þótt enn megi gera miklu
meira. Hann segir mikið um sjáffs-
morð meðal fólks með félagsfælni
og nefnir að auki að á meðan al-
mennt sé talið að 6-7% fólks í þjóð-
félaginu glími við alkohólisma sé
hlutfall þeirra meðal þeirra félags-
fælnu allt upp í 25%.
„Fólk er að reyna lækna sjálft sig
og grípur þá tif þess að drekka, en
„Fólk er að reyna
lækna sjálft sig og
grípur þá til þess að
drekka en það ekki
það sem það þarfn-
ast,"
það ekki það sem það þarfnast,"
segir Jón Gunnar, en hann telur
reynsluna hafa kennt sér að al-
mennt séu þessir sjúklingar við-
kvæmt og gott fólk sem þurfi að vita
að það er ekki eitt sem glímir við
þennan vanda.
Nauðsynlegt að njóta lífsins
Báðir segja þeir að mikilvægt sé
fyrir fólk að gera eitthvað í sínum
málum eigi þeir við þennan vanda
að stríða og hvetur Jón Bjarni fólk tif
að koma á fund og ieita sér aðstoð-
ar. „Það er þannig að maður gerir
sér ekki alveg grein fyrir ástæðum
vandans. Oft kemur fyrir að féfags-
fælni er greind sem þunglyndi, enda
er algengt að það fylgi í kjölfarið
enda algengt að maður fyllist algeru
tilgangsleysi og lífsleiða," segir Jón
Bjarni sem segir samkennd f hópn-
um hafa hjálpað sér mikið í gegnum
vandann.
Aðalatriðið sé að fólk njóti ekki
lífsins eins og það ætti að gera og því
sé mikilvægt að viðurkenna vand-
ann og opna sig og að aðrir í samfé-
laginu taki því af fordómaleysi og
með skilningi. karen@dv.is
Rannsóknir sýna fram á mikilvægi
sj álfshj álparhópa
Sjálfshjálp mikilvæg
ungu fólki
Heimasíður og kynning á geðrænum vandamálum hjálpar mikið ungu fólki sem
glímir viö þessi vandamál, eftirþvísem fram kemur i nýlegum rannsóknum. Tals-
maður rannsóknanna segir umfjöllum og fræöslu afar gagnlega fyrir fólk sem
gerir sér ekki almennilega grein fyrir ástæðu vanlíðunar sinnar. Það sé því lík-
legra til að leita sér aðstoðar og lausna á vanda sínum fyrr en ella auk þess sem
fræðsla dragi úr fordómum almennings. Jafnframt kemur það fram að þó áhrif
sjálfshjálparhópa hafi verið talsvert rannsökuð meðal fullorðins fólks hefur lítið
verið litið til þess hvaða þýðingu þeir hafa fyrir þá sem yngri eru. Niðurstöður
þessara rannsókna renni þó stoðum undir þær kenningar að það sé ekki síður
mikilvægt fyrir ungt fólk aðfinna til samkenndar meðal fólks sem á við svipuð
vandamál að etja þar sem unglingsárin reynist þeim oft mjög einmanaleg.
Stæltar stelpur kl. 07.30 og 19.35 mán mið og fös
Mömmumorgnar kl. 09.45 þri og fim
Sti'gðu skrefið kl. 16.15 og 19.35 mán mið og fös
í FORM EFTIR 50 kl. 17.20 þri og fim og 11.30 laug
ÁFRÓ nÁmskeið kl. 18.30 þri og fim
Meðgöngujóga kl. 20.40 mán og rnið
Stæltar stelpur kl. 06.30 og 19.35 mán mið og fös |
TÖFFARAR í TAKT kl. 18.30 mán mið og fös
AfrÓ NÁmskeið kl. 17.30 þri og fim |
Þrekraun kl. 06.30 mán, mið, fös og 18.00 þri og
fim og 09.00 laug.
Stæltar Stelpur kl. 07.35,16.20,17.25 og 18.30
mán mið oq fös
Stæltar stelpur kl. 07.30 mán mið og fös
STÆLTAR STELPUR kl. 19.30 þri fim og kl. 10.00 laug
BETRUNARMUSIÐ
SPORTHUSIÐ
Skráning er hafin í síma 561 5100
og með tölvupósti; simi(a)isf.is
stöðvar
BAHHUSIi)
BBTRUNARHÚSIJJ
Si’ORTHÚSJÐ
ÞREKHÚSH)
SIMI 561 5100 WWW.ISF.IS
m i 1 1
II
*