Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2005, Page 33
Menning DV
Á morgun opnar Ólöf Nordal sýningu á ljósmyndaverkum í
gallerí i8 á Klapparstígnum. Þar dregur hún afbrigðileg dæmi
úr ríki dýranna inn á ný en augljós merkingarsvið.
Ólöf Nordal myndlistarkona
A sýningu hennar eru sjaldséðir
hvítir hrafnar og setjast að með
eftirminnilegum hætti á net-
himnu og I minninu.
DV-Mynd Stefán
Eitt verka Ólafar á sýningunni „Sem snöggvast er engu likara en maður sjái fuglana
fíjúga, en frekari skoðun leiðir I Ijós að sérhver þessara hvitingja er lífvana, liggjandi á annarri
hliðinni með samanbrotna vængi.,,
Ólöf Nordal hefur á síðustu
árum sótt efnivið í myndlist sína í
íslenska menningararfleifð, þjóð-
sögur og sagnir sem eru sprottnar
úr íslenskri náttúru og dýraríki.
Áberandi er könnun hennar á af-
brigðum og frávikum frá hinu eðli-
lega í náttúrunni, en sú nálgun
hennar á síðan beint erindi við
samtfmann og spyr m.a. spurninga
um inngrip mannsins í hið náttúru-
lega.
Á sýningunni íslenskt dýrasafn
birtast ljósmyndir af uppstoppuð-
um dýrum sem eru, eða hafa verið,
í íslenskum náttúrugripasöfnum og
flokkast undir náttúrufrávik, og
sem listamaðurinn hefur tekið og
sett aftur út í náttúruna. Hvítir
hrafnar, tvíhöfða lömb og skoffín
eru allt hluti af höfundarverki
Ólafar.
Fugl á klöpp
Göngumenn við Skerjafjörð
kannast við Geirfugl hennar sem
stendur þar á fjöruklöppum
skammt vestan Nauthólsvíkur. Sá
minnisgripur er í stórum hlutföll-
um, eins konar risavaxin minning
um hvernig okkur hefur farist við
nágranna okkar, fuglana. Síðasta
geirfuglinum stútuðu menn 1844.
í skrifi um myndlistarmanninn í
tilefni sýningarinnar segir Eva
Heisler: „Árið 1996 hélt hún sýn-
ingu í Nýlistasafninu á gifsafsteyp-
um af dýrum sem lýst er í íslensk-
um þjóðsögum og stillti þeim upp
eins og nýklassískum mannamynd-
um. í innsetningu frá 2005 sem hún
nefndi Hanaegg sýndi listakonan
myndbandsverk af fljótandi fóstur-
laga formum með fullþroska brjóst;
sköruðust þar myndrænar frásagn-
araðferðir nútíma læknavísinda og
klámiðnaðarins."
Hvítir fuglar
„Myndröðin íslenskt dýrasafn
samanstendur af stórum ljósmynd-
um af dýrum sem eru eða hafa verið
í íslenskum náttúrugripasöfnum.
Tíu þessara ljósmynda sýna hvít-
ingja sem fundist hafa í íslenska
fuglastofninum. Þar á meðal eru
hvítur hrafn, hrossagaukur, kría,
þröstur og lundi. Fuglarnir svífa í
lausu lofti á miðri mynd og snúa lit-
lausir goggar þeirra til vinstri og
bleikir fætur þeirra til hægri. Bak-
grunnur myndanna er himinninn
yfir Reykjavík, þakinn skýjabólstr-
um. Sem snöggvast er engu líkara
en maður sjái fuglana fljúga, en
frekari skoðun leiðir í ljós að sérhver
þessara hvítingja er lífvana, liggj-
andi á annarri hliðinni með saman-
brotna vængi. Við þekkjum alla
þessa fugla á goggunum, flangan
gogginn á hrossagauknum, snubb-
óttan gogginn á lundanum, en hvíti
liturinn gerir þá yflrnáttúrulega að
sjá. Samanskroppnir búkar fugl-
anna stangast á við ólgandi himin-
inn, þar sem hvítleika fjarveru og
náttúrulegs fráviks er telft gegn
hvítleika sem sprottinn er af nátt-
úrulegri virkni og nærveru..."
Svona er skoffín í sjón
„...Ljósmyndaröðin Islenskt dýra-
safn geymir einnig mynd af upp-
stoppuðu dýri sem talið er vera
Með góðfúslegu leyfi listamannsins og gallerí i8
skoffín, afkvæmi hunds og refs. Þetta
dýr var meðal nokkurra undarlegra
hvolpa sem komu undan tik, stuttu
eftir að hún hvarf af bæ í afskekktum
dal á Norðurlandi. Dýrið var mann-
elskt en sýndi einnig af sér hegðun
sem minnti á ref, til að mynda átti
það til að glefsa í snoppur á kindum.
Einnig þótti óvenjulegt að dýrið gelti
ekki og var náttúrulaust. En vegna
allra sögusagnanna um dularfullan
uppruna og sérkennilega hegðun
dýrsins var fagmaður á staðnum
fenginn til að stoppa það upp eftir að
því var lógað“
Karlmaðurtil áts
Ólöf Nordal sem er fædd 1961
stundaði nám við M.H.Í., í
Hollandi, við Cranbrook Academy
of Art og Yale University School of
Art. Hún hefur haldið fjölda einka-
sýninga og tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum hér á landi og er-
lendis. Þetta er önnur sýninga
Ólafar í i8, en á þeirri fyrri, Corpus
dulcis 1998, sýndi Ólöf afsteypu af
karlmannslíkama úr súkkulaði sem
gestir gátu gætt sér á og vakti sú
sýning mikla athygli.
Torfærukeppni fjarstýrðra bíla verður haldin 4. september á
athafnasvæði Gæðamoldar í Gufunesi. Keppt verður í
Monster Truck, Stadium og Buggy flokkum. Skráning er á
heimasíðu Smábílaklúbbs íslands www.sbki.is.
_____„__. ..
'úmsrumúsio
Nethyl 2, sími 5870600, www.tomstundahusid.is
GRUNNNÁMí
M YNDBANDAVINNSLU
- stafræn klippning og eftirvinnsla
.
AOa GIGTARFELAG
ÍSLANDS
Leikfimi hjá Gigtarfélagi íslands
Haustönn hefst 5. september
Cóð alhliða leikfimi.
Hentar fólki með gigt og önnur
stoðkerfisvandamál. Einnig þeim sem eru að hefja þjálfun og
vilja fara rólega af stað og fá góða leiðsögn við þjálfun.
Bakleikfimi karla.
Hressileg liðkandi og styrkjandi þjálfun fyrir karlmenn.
Sérhæft fyrir einstaklinga með gigt og þá sem þurfa að fara varlega.
Orka og slökun - nýr hópur.
Endurnærandi og rólegir tímar sem henta vel þeim sem vilja byggja upp orku
og minnka streitu og/eða spennu.
Vatnsleikfimi I Sjálfsbjargarlaug. Hátúni 12. Skráning á skrifstofu G.f.
NÝTT - Bætt heilsa með hreyfingu og þyngdarstjórnun.
Hugað er að góðri næringu, hreyfingu, hvíld, þyngdarstjórnun og öðru sem
stuðlar að góðri líðan og heilsu til framtíðar.
Hefst mánudaginn 19. september.
Fagfólk með sérmenntun og langa reynslu sér um alla þjálfun.
Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofu G.I., Ármúla 5, sími 5303600
Ert þú einn afþeim sem átt stafræna upptökuvél og
langar til að læra að vinna efnið oggera það sem
sölumaðurinn sagði að hægt væri að gera?
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á
undirstöðuatriðum myndbandsgerðar allt frá því að breyta
hugmynd í handrit og fínpússa myndbönd með ýmsum effektum.
Nemendur verða að hafa góða almenna tölvukunnáttu og æskilegt
er að nemendur eigi eða hafi aðgang að stafrænni tökuvél.
Kennt er á Premiere klippiforritið
frá Adobe sem er eitt visælasta
forritið á markaðnum í dag.
■ Kvöldnámskeið
Mán. & mið. 18-22
og laugard. frá 13 -17
Byrjar 3. og lýkur 14. sept.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í
SÍMA
. ntv.is =
544 4500 OG Á NTV.IS