Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2005, Page 40
j'Y'i't'Í í\jJ ^ 0 í Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^wfnleyndar er gætt. _*-* q r-> Q cj Q
SKAFTAHLÍÐ24,10SREYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMISS05000 5 690710M11117'
• Össur Skarphéð-
insson er orðinn að
einhverjum
beittasta bloggara
landsins eftir að
hann tapaði for-
mannskosningunni
í Samfylkingunni.
Nú síðast beindi hann spjótum
sínum að nýja borgarstjórafram-
bjóðandanum, Gísla Marteini
Baldurssyni, sem hann sagði
hafa trítlað fram á sviðið eins og
Lilli kiifurmús.
Eitthvað fór
beitti pistillinn
hans fyrir brjóst-
ið á eiginkonu
hans, Ámýju
Erlu Svein-
bjömsdóttur
jarðfræðiprófessor. Össur segir
að Árný hafi hreinlega tekið sig í
karphúsið, eða Dr. Arný eins og
hann kallar hana undir þeim
kringumstæðum...
Rangstæðir!
Harrison Ford og landsliðið á Strákana
okkar Clint á eftir að gefa svar
Það verður heldur betur stjörnufans sem
ætlar að mæta á frumsýningu myndar Ró-
berts Douglas, Strákarnir okkar, sem verður
á föstudaginn klukkan átta í Háskólabíói.
Sjálfur Harrison Ford, íslandsvinurinn mikli
sem einmitt er staddur hérlendis um þessar
mundir, hefur boðað komu sína. Að sögn
aðstandenda myndarinnar hefur einnig ver-
ið sent boð til Clints Eastwood og er beðið
svars frá honum. Menn búast fremur við því
að hann þekkist boðið en ekki, enda vafa-
laust forvitnilegt fyrir Clint og Harrison að
sjá hvernig fmmsýning á nýrri íslenskri
mynd fer fram.
Ekki nóg með það að þessar heims-
þekktu kvikmyndastjömur séu á gestalista
heldur hefur allt íslenska landsliðið í fót-
bolta ákveðið að mæta á frumsýninguna.
Þeir eiga einmitt leik við Króatíu á laugar-
daginn og telja þeir Ásgeir Sigurvinsson og
Logi Ólafsson það ákjósanlegt að þjappa
hópnum saman með því að sjá mynd sem
einmitt fjallar um uppgang knattspyrnuliðs
samkynhneigðra einstaklinga.
„Já, em þeir að koma?" spyr Róbert Dou-
glas leikstjóri myndarinnar. „Ég býð bara
minni fjölskyldu og mínum vinum og síðan
Námskeið fyrir fréttaritara
á Ströndum
Vefurinn strandir.is hefur nú verið
starfræktur í átta mánuði og af því til-
eíhi var haldinn ritstjómarfundur þar
sem farið var yfir leiðir til að efla þenn-
an fréttamiðil Strcmdamanna. Meðal
þeirra leiða sem ritstjómin telur vera
heppilega er að bjóða öllum þeim sem
viija vera fréttaritarar fyrir vefinn á
námskeið nú í haust. Námskeiðið á að
vera „harðsnúið, stutt og skemmti-
legt“ eins og segir á vefnum. Vonast er
til að með fleiri virkum fréttaskrifur-
um muni fjölbreytni í fréttaflutningi
aukast. Á námskeiðinu verður farið
yfir hugmyndafræðina bak við vefinn,
fréttamat, skrif og ljósmyndun.
Á ritstjómarfundinum var einnig
farið yfir helstu styrkleika og veikleika
vefsins. Styrkleikar vefsins teljast til að
Strandir Fréttaflutningur af ivæöinu hefurstór-
aukist með tilkomu fréttamiðiisins strandir.is
mynda vera þeir að aðsókn á vefinn er
mikil, fréttaflutningur af svæðinu hef-
ur stóraukist í kjölfarið og vefurinn
hefur nýst vel til markaðssetningar at-
burða og ferðaþjónustu á svæðinu.
Veikleikamir em hins vegar þeir að
vefurinn hefur bilað tvisvar sinnum
illilega, lélegt netsamband á Strönd-
um stendur rekstri hans fyrir þrifum,
ritstjómarvinnan er tímafrek og upp-
lýsingastreymi frá opinberum aðilum
á Ströndum er Mtið sem ekkert.
Skoðaður í bak og fyrir
Knattspyrnukappinn Gunnar
Heiðar Þorvaldsson hefur vakið
gríðarlega mikla athygli á yfir-
standandi tímabili en hann leikur
með Halmstad í Svíþjóð. Gunnar
hefur nú skorað níu mörk í ellefu
- byrjunarliðsleikjum, þar af tvær
þrennur, auk þess sem hann hefur
lagt upp fimm mörk. Þrátt fyrir að
aðeins sé um eitt ár síðan Gunnar
gekk til liðs við Halmstad er þegar
byrjað að orða hann við önnur og
stærri lið.
Ólafur Garðarsson, umboðs-
maður Gunnars, hefur staðfest að
nokkur lið í ensku fyrstu deildinni
hafi áhuga á Gunnari. Eitt þeirra er
taiið vera Ipswich, en útsendarar
frá liðinu fylgdust með honum í
leik nú um daginn. Gunnar olli
þeim að sjálfsögðu ekki vonbrigð-
um og var búinn að skora eftir að-
eins tíu mínútur.
Verði af þeim félagaskiptum
mun Gunnar feta í fótspor annars
Eyjamanns sem gerði garðinn
frægan með Ipswich, en Hermann
Skorar og skorar Gunnar Heiðar Þorvalds-
son hefur vakið athygli enskra liða.
Hreiðarsson lék með liðinu við
góðan orðstír áður en hann var
seldur til Charlton.
eru það framleiðendurnir sem sjá um að
bjóða þeim sem þeir vilja bjóða. Við sjáum
bara til hversu vel þeir þekkja stjörnumar.
Sjálfur þekki ég engar stjörnur."
Eftir Róbert liggja hinar ágætu myndir
„Maður eins og ég" og „íslenski draum-
urinn". fslenska landsliðinu var einmitt
boðið á þá mynd á sínum tíma enda
fjallaði hún öðrum þræði um fótbolta
líkt og Strákarnir okkar. Róbert er mikill
áhugamaður um fótbolta og heldur með
Manchester United. „Allt frá þeim tíma
sem Norman Whiteside spilaði með
þeim. Hann var hetja Norður-íra á
HM ‘82. Sjálfur er ég hálfur Norður-
íri og maður stendur með sínum
mönnum. George Best var náttúr-
lega þaðan einnig."
Róbert gefur ekkert fyrir það hvort
hann sé stressaður fyrir fmmsýninguna.
„Svona hæfilega. Ég er nú ekki... jú, jú...
nei, ég veit það ekki. Þetta er búið að vera
svo langt ferli að ég hlakka bara til að
koma myndinni út og leyfa fólki að sjá
hana," segir Róbert sem nú er líklega að
ftumsýna fyrir langfrægasta hóp frum-
sýningargesta á landinu fyrr og síðar.
Hommarnir í fótbolta
Jónsi, Helgi Björns, Björn
Hlynur og fleiri f hlut-
verkum sfnum.
Róbert Douglas og Björn Hlyn-
ur Leikstjórinn og einn helsti leikari
Strákanna frumsýna fyrir stjörnu-
fans í Háskólabíói á föstudaginn,
Elður Smári Fyrirliöinn
og hans menn þjappa
sér saman fyrir leikinn
gegn Króatlu með þvíað
mæta á Strákana okkar.
Harrison Ford
og Calista
Flockhart Hafa
þekkstboðið og
mæta á frum-
sýninguna.
TOSHIBA
framtíðin hefst núna..
Þú
þarft
ekki
að bíða
lengur !
Nú fúst
örþunn
LCD sjónvörp
í hæsta gæðaflokki
ó einstöku verði!
MARGVERÐLAUNUÐ HÁGÆÐA SJÓNVARPSTÆKI
- æáÉMjiik: ***l>“
Óll tækin má festa á vegg
27WL46
■ns.9oo.tsr.
30WL46
167.900.tst
32WL56
199.000.tor.
17' ICD og 23’ LCD
2x RGB Start
Upplausn 1280x768
Skerpa 400:1
Birta 450 td/m2
17' Mál: 45x37x18 sm | 4.8 kg
23' Mól: 59x47x22 sm| 7.6 kg
27’ LCD og 30' LCD
Svortími 16 ms | Sjónarsvið 170°
Progressive Stan | PiP
Upplausn 1280x768
Skerpa 600:1 | DVI (Non HDCP)
Birta 550 td/m2 | 2x RGB Start
27' Mál: 77x48x23 sm | 13.6 kg
30' Mál: 82x53x23 sm | 15.5 kg
32' LCD
Svartfmi 10 ms | Sjánarsvið 170°
Attivc Vision | Progressive Stan
Upplausn 1366x768
Skerpa 800:1 | HDMI gzn
Birta 500 td/m2 | 2x RGB Start
Mól: 79x58x9 sm | 17.6 kg
r-9-frri
Sound & vision
DVD player of the year
37WL56
37" LCD imS
Svartími 10 ms
Sjónarsvið 170°
Active Vision
Progressive Scan
Upplausn 1366x768
Skerpa 600:1
HDMI
Birta 500 cd/m2
2x RGB Scart
Stærð: 96x65x11
25 kg
299.000 •tflr.
Sjónvarpsskápur ekki innilalinn I voröl. Verö á skáp: 12.600 stgr.
SD 340
DVD spilari
DivX afspilun I PAL Progressive
MP3 & WMA j JPEG I VCD I CD41, CD-RW I DVD-R
RGB Start j Component Video
15.900 »«flr.
YM
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúnl 28 • Símar: 520 7901 & 520 7900 • ef@ef.is • www.ef.is