Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2005, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2005, Blaðsíða 18
78 FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005 Sport DV Yao samdi viö Houston Kínverski risinn Vao Ming hef- | ur undirritað nvjan saniningvið 1 louston Rockets í NBA-deMinni, sem nær til ársins 2011 ef marka má nýjustu t'réttir frá Bandirríki- unum. F.kki hei'ur enn verið greint irá þvi hve hár satnningur hans verður, en talift er að hann muni í'a tun 12,5 milljónir dollara í árs- lamr á fyrsta áti sanmings- ins. sem tekur giidi á t næsta ári. hessi tíðindi " * hafa vakið mikia athygli b-' vestra, því núkið A y* \ fjaörafok er jahtan í 2 Á ~ i kring um það þegar .fP^' ieikmenn á borö JL Wiingem ' ■ meö íausa samninga hjá aðflækja hlutina og fiaug heint tilBandaríkj- | anna ti! að undimta samtriuginn þegar hann var bitinn að spila æfingaleitóna við íslenska Itutdsliðið á dögumin. Los Angel- es Iakers er eitt þeirra liða sem höfðu hugsað ser að krtekja f Yao Ming þegar samningur htms synni iit, en nú er Ijóst að ekkert verður af því. Vijay Singh er meiddur Kylfingurinh knái, Vijuy Stngh á Ifklega eftir að halda sig við goíf- íþróttina í framtíðinni, því £ gær kom í Ijós að hann yrði ekki með á næsta stórmóti í golfi eftir að hann meiddist i bató þegar harur \tir að leika borðtennis með syrd sínnin. „Eg er vanur að verja titla mína á PGA-mótarööinni, þannig að þetta er mikið áfaU fyrir mig,“ sagði Singh, sem sigraði á Deutsche Bank-mótinu í fyrra, en þarf nú að dxaga sig úr keppni eft- ir þessa grátbroslegu uppákomu. „t’etta raót er mér mjög kært og því er ég strax farinn að hlakka tii að ttika þátt í því á næsta ári,“ sagöi hirm sehiheppni íþrótta- maöur. Fimm ára áætlun ]o$e Jose Mourinho hefur gefiö út timni ára áætiun um að gera Cltelsea að stórveldi í knatt- spyrnuheiminum og hefur sett stefnuna a að vinna þrjá meist- aratitla á Englandi og einn meist- aradeildartitil á þeim fjórum árunt sem hann á ei'tir af samn- iugi sínuin við félagið. „Éger að reyna að koma iiui meistarahug- arfari hjá öllum setn koma nálægt liðinu og þegar núverandi samn- ingi mínum við félagiö lýkur, vil ég að við verðum komnir með fullt borð af bikurum og verðum búnir að festa Chelsea í sessi sem stórlið í Evrópu. Þrátt fyrir gott , gengi í fyrra eigum víö enn i nokkuð í land með að 'síCV- verða stórveldi og það er 'p ) eittafþvísemégvil 'v . koma í kring á meðan yf á veru mimú stend- i } ur," sagði sá portú- ;r"' gaiski. Kjartan Henry Finnbogason, framherji Celtic, hefur gert það gott með félagi sínu í skosku knattspyrnunni síðan hann gekk til liðs við félagið fyrir um ári. Hann hef- ur ekki verið valinn í U-21 landsliðið í síðustu leikjum, en missir af komandi leikj- um gegn Króatíu og Búlgaríu vegna meiðsla. Kjartan Henry Finnbogason gekk til liðs við skoska stórliðið Celtic fyrir síðasta tímabil og hefur staðið sig vel með unglinga- og varafiði félagsins. Hann er óánægður með að hafa ekki feng- ið tækifæri með U-21 landsliði íslands í meira en ár, en engir ungu strákana sem leika í Skotlandi eru valdir í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Króatíu og Búlgaríu. að ekki skuli vera útskýrt fyrir hon- um hvers vegna hann er ekki valinn í liðið. „Það væri gott að fá að heyra hvað það væri sem ég þyrfti að laga og þá myndi ég bara fara í að bæta þá hluti hjá mér." Landsliðsfyrirliðinn undrandi í fyrra æfði Kjartan Henry með sínu gamla félagi, KR. Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði A-landsliðsins, mætti einnig á æfingar hjá KR í sum- arfríinu og spurði Kjartan hvers vegna hann væri ekki að mæta með U-21 landsliðinu þegar landsliðs- mennirnir kæmu saman. „Ég sagði honum bara eins og var, að ég hefði ekki verið valinn. Hann spurði mig hvers vegna það væri og ég sagði vitanlega að ég vissi ekki af hverju það væri." Eyjólfur fylgist með honum Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 landsliðsins, segist hafa fylgst vel með Kjartani að undanförnu og á von á því að hann standi sig vel í framtíðinni. „Ég valdi Kjartan ekki í hóp inn fyrir leik- ina gegn Króatíu og Búlgaríu þar sem hann er meidd- ur og getur ekki leikið á næstunni. Hann hefur alltaf verið inni í mynd- inrú hjá mér og ég kem til með að fylgjast vel með honum á næstunni, eins og ég hef gert hingað til. Strák- arnir sem eru gjaldgengir í U-19 ára landsliðið, til dæmis Bjami Viðars- son hjá Everton og Theodór Bjarna- son hjá Celtic, spila með því liði. Það em margir góðir ungir strákar í U-19 ára liðinu sem hafa gott af því að spila saman. Ég held að það sé gott fyrir þá að vera saman í liði þar sem þetta em framtíðarleik- menn í aðalliði lands- liðsins og samæfing þeirra er mikilvæg fyrir íslenska knattspyrnu." Spennandi verður að sjá hvort Kjartan Henry fær tæki- færi með U-21 landsliðinu þeg- ar hann verður orðinn leikfær. magnush@dv.is Kjartan í búningi Celtic Kjartan áeflaust eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni en hann hefur byrjað vel hjá Celtic. Það finnst mörgum undarlegt að Kjartan hafi ekki verið valinn í lands- liðshópinn í síðustu verkefnum liðs- ins, og skilur hann sjálfur hvorki upp né niður í því hvers vegna það er. „Ég er ósáttur við að hafa ekki fengið fleiri tækifæri með U-21 landsliðinu, það liggur í augum uppi. Ég var valinn í hópinn fyrir leik á síðasta ári á móti Eistlandi og var þá í byrjunarliðinu. Síðan var ég á varamannabekknum í leik gegn Ungverjalandi skömmu síðar. Ég var að spila þá með KR en er nú orðinn atvinnumaður og leik með Celtic, sem er stórlið. Ég hef bætt mig mik- „Það væri gott að fá að heyra hvað það værí sem ég þyrfti að laga ið sem leikmaður, enda vinn ég við að spila fótbolta og get því ekki ann- að.“ Engar skýringar fengið Kjartan hefur ekkert heyrt frá for- ráðamönnum KSÍ hvers vegna hann hefur ekki verið valinn þar sem hann hefur spilað virkilega vel hjá Celtic. „Ég skoraði fjórtán mörk í sextán leikjum á síðustu leiktíð með ung- linga- og varaliði Celtic, sem að mínu mati var besta frammistaða mín á knattspyrnuvellinum til þessa. En það dugði ekki. Ég er nú ekkert að kvarta undan því að vera ekki valinn, mér finnst það ekki vera rétta leiðin en samt sem áður er ég ósáttur við þetta. Núna verð ég bara að fá mig góðan af þessum smá- vægilegu hnémeiðslum sem eru að hrjá mig og reyna að standa mig áfram vel með Celtic." Kjartan undrast hiour inmii v,«„j—---------- af Kjartani þegar hann æfði með honum hjá KR og undraðist það að hann væri ekki d þeim tímapunkti i U-21 landsliðinu. Eyjólfur Sverrisson Kveðst fylgjast vel með Kjartani hjá Celtic. Rúrik Gíslason skrifaði undir samning við enska úrvalsdeildarliðið Charlton í gær: Kaupa Rúrik á tuttugu milljónir íslenskra króna Á heimasíðu Charlton í gær kom fram að félagið væri í skýjunum yfir því að tilkynna um kaup á framtíð- arstjörnu félagsins, hinum sautján ára gamla Rúrik Gíslasyni úr HK í Kópavogi. „Rúrik er mjög hátt skrifaður leik- maður og hefur verið gríðarlega eft- irsóttur af mörgum stórliðum í Evr- ópu,“ sagði Peter Varney, stjórnar- formaður Charlton á heimasíðunni, þar sem hann þakkar ekki síst Her- manni Hreiðarssyni fyrir að hans milligöngu í málinu, en Hermann leikur sem kunnugt er með liði Charlton. „Ég verð að nota þetta tækifæri og þakka Hermanni fyrir hjálpina við að sannfæra Rúrik um að koma til okkar, hann átti stóran þátt í því,“ sagði formaðurinn. Rúrik hefur verið við æfingar hjá ungmennaliði Charlton undanfarið og sagði Steve Gritt, þjálfari yngra liðsins, að Rúrik hefði verið besti maður liðsins í æfingaleik sem það spilaði við Feyenoord í byrjun mán- aðarins. „Hann er frábær leikmaður og sérstaklega tók ég eftir því hvað hann berst vel og var fullur af orku. Hann var að mínu mati besti leik- maður okkar í leiknum við Feyen- oord um daginn,“ sagði Steve Gritt. Á heimasíðunni kemur einnig fram að evrópsku stórliðin Ajax, Bayern Múnchen og PSV Eind- hoven hafi sýnt mikinn áhuga á að fá Rúrik til sín og því sé Charlton mjög ánægt með að fá hann til sín á aðeins um 20 milljónir króna. baidur@dv.is Framtíðin á Valley Miklar vonir eru bundnar við komu Rúriks Gistasonar til Charlton. DV-mynd Valgarður „Hann varað mínu mati besti leikmaður okkarí leiknum við Feyen- oord um daginn."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.