Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2005, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2005 Fréttir DV Ályktun um framhalds- skóla Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu var haldinn sl. miðvikudag. Þar var samþykkt ályktun sem sneri að stofnun framhalds- skóla í Borgarnesi. Þeirri hugmynd er fagnað að rekt- orar Landbúnaðarháskóla íslands og Viðskiptaháskól- ans á Bifröst að stofnaður verði framhaldsskóli í Borg- amesi. Ályktunin er í fúliu samræmi við stefnu Fram- sóknarflokksins um að efla nám á framhaldsskólastigi í landinu. Fundað um fatapeninga Trúnaðarmenn stuðn- ingsfulltrúa hafa verið boð- aðir á fund hjá Stéttarfé- lagi í al- mannaþjón- ustu vegna næstu skrefa í fatapeninga- málinu svokallaða. Eins og DV greindi frá þann fimmt- ánda september hafa stuðningsfulltrúar á sam- býlum fyrir fatlaða ekki fengið greidda fatapeninga eins og kveðið var á um í síðustu kjarasamningum. Hver starfsmaður á nú inni rúmar tíu þúsund krónur í fatapening. Ámi Stefán Jónsson framkvæmdastjóri Stéttarfélags í almanna- þjónustu útilokar ekki að málinu verði skotið fyrir fé- lagsdóm. Víkurskarði lokaðvegna ófærðar Nokkur umferðaróhöpp urðu á norðanverðu land- inu í gær vegna óvæntrar snjókomu. Leiðindafærð var víða á vegum og þurfti meða annars að loka vegin- um um Víkurskarð tíma- bundið vegna ófærðar. Á laugardagskvöldið fór að snjóa all hressilega fyrir norðan og virðist sem öku- menn hafi ekki verið undir það búnir og flestir enn á sumardekkjum. Um fimm tii tíu sentimetra jafnfallinn snjór er nú á Akureyri og hvetur lögreglan fólk til að gæta ítmstu varúðar í akstri. Björn Leifsson, líkamsræktarfrömuður í Laugum, neitar því að hann sé ósanngjarn við einkaþjálfara í stöð sinni en hann hyggst auka gjaldtöku á þjálfurunum frá og með áramótum. Björn hyggst taka prósentur af hverjum kúnna í stað fasts aðstöðu- gjalds áður. Sanngjarnt nn í takt við bað sem genst erlendis Líkamsræktarfrömuðurinn Björn Leifsson þvertekur fyrir það að nýjar reglur hans um gjaldtökur á einkaþjálfurum séu ósann- gjarnar. Eins og DV greindi frá síðastliðinn mánudag þá hélt Björn fund með einkaþjálfurum í síðustu viku þar sem hann skýrði frá nýrri tegund gjaldtöku á þjálfarana. Einkaþjálfararnir hafa hingað til borgað fast aðstöðugjald sem nemur um 40 þúsund krónum á mánuði. Björn hyggst fella þetta gjald niður og taka í staðinn pró- sentur af hverjum kúnna þjálfar- anna. Margir einkaþjálfarar eru afar ósáttir við þetta og staðfesti Björn sjálfur í samtali við DV f gær að það hefði verið þungt hljóðið í mannskapnum þegar hann til- kynnti breytingarnar. Sanngjarnt „Þessar breytingar eru sann- gjarnar og í takt við það sem gerist erlendis. Auðvitað voru einhverjir þungir og daufir en þetta er ekkert nýmæli. Ég bendi á að Hreyfing hefur staðið fyrir sambærilegri gjaldtöku undanfarin þrjú ár. Það voru engin læti á fundinum en ég viðurkenni að ég fékk fullt af spurningum,“ sagði Björn og benti á að allir aðrir sem leigðu sér aðstöðu víðs vegar um þjóðfélagið borga mun hærri gjöld fyrir að- stöðuna heldur en einkaþjálfarar gera. „Þessar breytingar eru sanngjarnar og í takt við það sem ger- ist erlendis. Auðvitað voru einhverjir þungir og daufir en þetta er ekkert nýmæli." Ódýrt ef eitthvað er „Ég bendi á að tannlæknar, hárgreiðslukonur og aðrir þeir sem leigja aðstöðu borga oft á tíð- um 40 til 50% tekna sinna í að- stöðugjöld. Það má því eiginlega segja að þetta sé ódýrt hjá mér ef eitthvað er," sagði Björn sem ætl- ar að taka 25 til 35% af hverjum kúnna þjálfaranna. „Þeir fá topp- aðstöðu hjá mér og fyrir þá sem hafa fæsta kúnna verður gjaldið svipað og áður. Þeir sem eru með fleiri kúnna borga aðeins meira en það er ekki mikið," sagði Björn. Óttast ekki flótta Þeir einkaþjálfarar sem DV hef- ur talað við segjast vera að hugsa sín mál og eru flestir ósáttir. Björn sagðist ekki óttast flótta einka- þjálfara úr stöðinni um áramót þegar ný gjöld taka gildi. „Þeir hafa tíma til að hugsa sig um. Þetta gerist ekki fyrr en um ára- mótin. Það getur vel verið að ein- hverjir hætti en það heldur ekki fyrir mér vöku,“ sagði Björn. Að tala við hesta og Svarthöfði er mikill dýravinur. Svarthöfði hefur verið alinn upp við hunda og ketti alla sína hunds- og kattartíð. Svarthöfði hefur lengi talað við gæludýrin sín, með misjöfnum ár- angri þó og það er ekki fyrr en núna á síðustu árum sem heimilishundurinn er farinn að skilja Svarthöfða. Það er dásamleg tilfinning að geta talað við dýrin sín og þess vegna gladdist Svarthöfði mjög þegar hann sá að til er maður sem getur talað við hesta. Monty Roberts heitir maðurinn og hann er á leiðinni til íslands. Monty þessi getur Svarthöfði talað við hesta líkt og eiginkonu sína og þykir ótrúlegasti tamningamaður hestaheimsins. Nú þegar Svarthöfði hefur náð valdi á tungumáli hund- anna er ekki úr vegi að heflsa upp á Monty og læra hestamál. Svarthöfði las í DV að Lilja Pálmadóttir, sú al- rómaða hestakona, hefði kynnt sér aðferðir Montys og gleðst yfir því. Lilja er byrjuð að tala við sína hesta líkt og Svarfhöfði talar við hundinn sinn Hvernig hefur þú það Ég hefþað bara mjög gott, “ segir Baldur Ingimar Aöalsteinsson sem skoraði sigurmark- ið fyrir Val um hetgina. „Ég er bara að taka því róiega og njóta dagsins. Sigurinn er mjög Ijúf tilfinning og það var fagnað fram eftir kvöldi í herbúðum Valsara á laugardagskvöldið. Fögnuðurinn tókst mjög vel og svo komu stuðningsmenn okkar seinna um kvöldið. I næstu viku á ég von á mínu fyrsta barni og er að vonum mjög spennturyfirþví líka. Á eftir fer ég kannski í stuttan göngutúr en annars ætla ég bara að siappa af." önnur dýr í framhaldinu gæti Svarthöfði síð- an sest að í sveit og byrjað að tala við kýmar, svínin og kindumar. Þegar Svarthöfði er búinn að læra að tala við hesta, hunda og öll hin húsdýrin þá liggur beinast við að fara í Dýragarð- inn í Kaupmannahöfn. Þar gæti Svarthöfði rætt við apana, páfuglana og ljónin. Allt em þetta vænstu skinn sem Svarthöfða hefur alltaf fundist hann eiga rneiri samleið með en mönnum. - Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.