Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2005, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2005, Side 17
DV Sport MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2005 17 Valsmenn unnu sinn fyrsta stóra titil í þrettán ár þegar þeir unnu Framara 1-0 í úrslitaleik VISA-bikars karla á laugardaginn. Sigurmarkiö kom eftir sjö mínútna leik í seinni hálfleik og Valsmenn héngu á því út leikinn þrátt fyrir að Framarar hafi oft gerst mjög ágengir uppi við markið á lokakafla leiksins. Valsmenn fagna Það var gaman hjá Valsmönnum þegar Ólafur Ragnarsson hafði flautað bikarúrslitaleikinn af. Hér sjást þeir fagna með bikarinn eftir leik. DV-myndir E.ÓI. Baldur Aðalsteinsson tryggði Valsmönnum níunda bikarmeist- aratitil félagsins frá upphafi þegar hann skoraði eina mark bik- arúrslitaleiksins gegn Fram á laugardaginn en sigurmarkið skor- aði hann með skoti lengst utan af kanti. Baldur sjálfur hélt því fram að hann hafi allan tímann ætlað að skora en þetta leit út sem fyrirgjöf af hægri kanti sem (mis)heppnaðist svo vel að bolt- inn sveif yfir Gunnar Sigurðsson í marki Fram og datt inn í fjær- hornið. „Þetta var skot! Ég sá að Gunnar stóð of framarlega þannig að ég tók þá ákvörðun að skjóta," sagði Húsvíkingurinn Baldur Aðalsteinsson strax eftir leik. Baldur skoraði einnig fyrir Skagamenn í 2-1 sigri á ÍBV í bikarúrslitaleik árið 2000. Að þessu sinni kom hann sínum gömlu félögum í ÍA inn í Evrópukeppni á sama tíma og hann tryggði bikarinn á Hlíðarenda. Eftir leiðinlegan og steindauðan íyrri hálfleik fór heldur betur að lifna yfir hlutunum í seinni hálfleiknum. Gunnar Sigurðsson fékk meðal annars æfingu í skotum utan af kanti þegar hann þurfti að hafa sig allan við að verja lúmskt skot Guðmundar Benediktssonar utan af hægra kanti eftir aðeins þriggja mínútna leik í seinni hálfleik. Gunnar lærði ekki af reynslunni og Qórum mínútum síðar náðu Vals- menn hraðri sókn þar sem Garðar Gunnlaugsson gerði vel í að koma boltanum á Sigurbjöm Heiðarsson sem sendi boltann áfram á Baldur sem skoraði eitt eftirminnilegasta sigurmark í bikarúrslitaleik frá upp- hafi. 1 millitíðinni hafði Garðar sjálfúr sloppið einn í gegn en Gunnar varði þá vel frá honum og Garðari tókst því ekki að verða sá fyrsti til að skora í öll- um fimm umferðum aðalkeppni bik- arsins. Valsmenn höfðu verið lakari aðil- inn í fyrri hálfleik og eftír þessa frá- bæm byrjun liðsins í þeim seinni var eins og liðið færi strax að hugsa um að verja þetta eina mark. Framarar tóku völdin á vellinum og vom mikið með boltann en tókst ekki að koma boltanum framhjá Kjartani Sturlu- syni sem áttí mjög góðan leik í marki Valsmanna. Stórskemmtilegt sumar „Það er frábært að taka þátt í þessum leik og ekki leiðinlegt að ná að skora sigurmarkið. Stuðningsmennimir hafa staðið 110% við bakið á okkur og það var mjög gaman að ná að vinna þennan bik- ar fyrir þá. Framar- ar em með hörkulið og þeir sýndu það í dag, eftír að við skor- uðum þá féllum við tíl baka og þeir vom á tíð- um ansi nálægt-því að ná að jafna. Þetta var hörku- leikur en við náðum að skora eina markið og það skiptir máli. Sumarið er búið að vera stórskemmtilegt. Ég hef verið að spila vel á köflum en veit að ég get spilað enn betur," sagði Baldur eftir leikinn. Framarar áttu vissulega meira skilið úr þessum leik og það er ótrú- leg seinheppni sem hefur fylgt liðinu undanfama viku. Það kom kannski í bakið á þeim að öll sú lukka sem hef- ur haldið liðinu í deildinni undan- farin ár var sennilega uppurin. Að þeim sökum máttu Safamýrarpiltar falla úr efstu deild á marki skomðu í uppbótartíma og tapa síðan sjö dögum seinna bikarúrslitaleik á marki skomðu lengst utan af kanti. „Við áttum mikið fleiri færi en þeir og svo kemur ein helvítis fyrirgjöf og hún endar í markinu. Það er alveg ótrúlegt að við skyldum tapa þess- um leik. Við spiluðum virkilega vel og ég er mjög stoltur af framlagi strákanna í leiknum. Mínir menn léku mjög vel og vom miklu betri í leiknum," sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Fram eftir leik- inn. Kollegi hans hjá Val var hins veg- ar kátur það svitnuðu ömgglega fáir leik- menn Valsliðins jafnmikið og Willum Þór Þórsson í leiknum enda var hann á fullri ferð í þjálfaraboxinu allan tím- ann. Viö unnum í stúkunni og á vellinum „Ég upplifði að tapa bikarúrslita- leik sem leikmaður og það er óhætt að segja að þetta sé mjög ólík tilfinn- ing. En stundum þarf maður að upp- lifa taptilfinninguna því sú tilfinning fær mig til að leggja enn harðar að mér.' Það vom margir í hópnum sem aldrei höfðu upplifað svona leik og ég fann allan tímann að menn vom til- búnir í leikinn," sagði Willum Þór. „Þetta var hörkuleikur, þeir pressuðu stíft á mark okkar í seinni hálfleik og auðvitað var lukkan með okkur. Við náðum að brjóta ísinn ög ég hafði það á tilfinningunni að leik- urinn myndi vinnast á einu marki. Það er alveg frábært að vinna með svona hópi og svona félagi. Hér em allir tilbúnir að leggja mikið á sig til að ná árangri. Stuðningsmenn okkar vom frábærir í dag, við unnum leik- inn í stúkunni og á vellinum," sagði Willum Þór sem hefur náð ein- stökum árangri með nýliða í efstu deild. í fyrsta sinn í sögu íslenskrar knattspymu vinnur lið gull og silfur á íslandsmótí og í bikarkeppni á sínu fyrsta ári í efstu deild. ooj@dv.is „Þetta var skotl Ég sá að Gunnar stóð of framarlega þannig að ég tók þá ákvörðun að skjóta „Ég upplifði þennan leik sem dæmigerðan bikarúrslitaleik þar sem baráttan var í algleymingi og hvomgt liðið vildi fá á sig mark. Mér gætí ekki verið meira saman hvort við værum betra liðið eða ekki.'við unnum bikarinn," sagði Guðmundur Benediktsson sem var að vinna sinn þriðja bikar- meistaratitil en hann kórónaði eftirminnilegt tímabil á laugar- daginn. Guðmundur fékk nokkmm sinnum að heyra það frá þjálfar- anum á lokasprettínum. „Þetta er fjórða árið mitt með Willum Þór og maður lærir að heyra ekki ailt og sigta það út sem skiptir máli," segir Guðmundur en sam- an hafa þeir unnið tvo fslands- meistaratítla og einn bikarmeist- aratitil. Guðmundur virtist þó ekkert ætla að yfirgefa völlinn þegar Willum Þór kallaði hann útaf á lokamínúmm leiksins. „Ég átti bara að fara útaf en síðan fékk Mattí skurð í munninn og þá ætluðum við að bíða með skipt- inguna en þetta var ekkert alvar- legt," sagði Guðmundur. Getum spOað góðan bolta Framarinn Bo Henriksen hóf tímabilið með Valsmönnum og fékk að heyra það frá stuðnings- mönnum Valsmanna í bikarúr- slitaleiknum. Bo sem skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri Fram á Val í deildadeik liðanna á dögunum en náði ekki að endurtaka leikinn. „Þetta eru mikil vonbrigði því við áttum að vinna þennan leik. Það sem skipti mestu máli er að við sýndum öllum að við getum spilað góðan fótbolta. Við spiluðum vel í dag og fengum fullt af góð- um tækifærum til þess að skora. Heppninhef- urekkiveriðmeð okkurfsíð- ustutveim- ur leikjum en þannig erfót- boltínn. Þeir gerðu hins vegar bara það sem þeir þurftu til þess að vinna," sagði Bo sem veit lítið um hvemig framtíð hans verð- ur. „Ég fer aftur til Dan- merkur í næstu viku og það veröur síðan bara að koma í ljós hvað kemur upp á borð til mín. Það er búin að vera mjög skemmtileg reynsla að spila hér á íslandi en þetta hefúr samt ekki gengið vel hjá mér því við féUum og töpuðum síðan bikarúrslitaleik en ég get fúllvissað alla um það að ég gerði mitt besta og sýndi að ég kann eitthvað fyrir mér í fótbolta," sagði Henriksen. F,nginn spyr mennskuna „Þetta var frábært. Það skiptir máli þótt að við höfum ekki að spQa okkar besta leik því það spyr enginn um það. Það sem skiptir öUu máU er að . við unniun bikarinn. Þetta var mikill baming- ‘ i færi og svona dæmi- 5ur bikarleikur. Nú tek- urvið smá gleði og svo fer S ég að skoða framtíöina. r" \ ng hef fengið boð um að ' , reynamighjátveim- i . ur liðum og það ’ verður bara að oma í ljós hvemig það fer," seg- : Bjami Ólafúr Eiríksson sem hef- ur leikið vel með Valsmönnum í sumar og vann sig meðal inn í ís- lenska landsUöshópinn. UpplýHtng.-vr I mímtx BOO 2530 Textavarp: Stöö 2 • 150-153 aúv • 281, 203 og 204 Vinnlngstðlur Inttgnrringiiin 24.09. 2005 1 ) 9 ) 22) 26) 34) j6n'u Tvöfaldur 1. vinningur taln- gg\ næsta laugardag . y Jóker tölur vlkunnar Jóker Lú M M M u Fyrsti vinningur gekk ekki út. ■aaonoHQ 15 16 19 37 41 44) Bónustölur Qfurtala 39 46 Jókertölur vikunnar fyrtrveti um prwitveur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.