Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2005, Qupperneq 40
t. :-é;
"zr,-
JT1 Jf1 ^ t í íJjjj C 0 t Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhrínginn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^jnafnleyndar er gætt. QjQ Q Z) (JlJ (J
SKAFTAHLÍÐ24,105REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910] SÍMÍSS05000 5 690710 111117
i>
>
ý*>
• Kastljós Ríkis-
sjónvarpsins varð
öðruvísi í gær en til
stóð. Amþrúður
Karlsdóttir hafði
verið boðuð í viðtai
vegna þróunar
Baugsmálsins og
mætti hún með töluvert af gögn-
um undir höndum. Þegar til átti
að taka og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson,
umsjónarmaður
þáttarins, var að
hefja kynningu
sína var Arnþrúði
vísað frá og þurfti
hún að yfirgefa
útvarpshúsið í
Efstaleiti. Var Arnþrúður verulega
ósátt, eða eins og hún orðaði það
sjálf í gærkvöldi: „Ég var stoppuð
af vegna þess að ég var með
óþægilegar upplýsingar. Svona
fer þegar maður ætlar að fletta
ofan af pakkinu."
Fítonskraftur
í Hannesi!
Viðskiptajöfurinn Hannes
Smárason, aðaleigandi FL Group,
hefur keypt 50% hlut í eignarhalds-
félaginu Grafít en það á allt hlutafé
í auglýsingastofunum Fíton og
Mættinum og dýrðinni auk Auglýs-
ingamiðlunarinnar. Hannes keypti
hlutinn í gegnum félag sitt Prímus.
Þormóður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Fítons, staðfesti
þetta í samtali við DV í gær en vildi
ekki gefa upp kaupverðið.
Þormóður sagði aðkomu Hann-
esar að fyrirtækjunum ekki vera til-
komna vegna fjárhagsörðugleika,
líkt og þegar Karl Wernharðsson
keypti Gott fólk fyrr á árinu.
„Hann sér tækifæri í þessum
fyrirtækjum og er það mikil viður-
kenning fyrir okkur sem stöndum í
þessu. Þetta er gott fyrirtæki sem
menn sjá sér hag í að kaupa. Menn
þurfa að freifa fjárfestingum sfnum
og þetta sýnir að auglýsingabrans-
inn er atvinnugrein sem skiptir
máli,“ sagði Þormóður.
Hannes hefur verið þekktur fyr-
ir að vera kraftmikill athafnamaður
með mikinn áhuga á útrás en Þor-
móður neitaði því að Fíton ætlaði í
útrás í kjölfar kaupa Hannesar.
„Það er ekkert slíkt á döfinni en því
er ekki að neita að við höfum verið
í sambandi við erlenda aðila. Það
hefur þó eingöngu verið vegna
samstarfs en ekki með hugsanleg
kaup í huga.“
Fíton hefur verið töluvert í um-
ræðunni eftir vel heppnaða aug-
lýsingaherferð fyrir Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur þar sem
fjórir þjóðþekktir einstaklingar,
Egill Helgason, Gísli Marteinn
Baldursson, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir komu fram í gerfi
hins kynsins. Þormóður sagði
Fíton stefna að því að halda áfram
af sama krafti og áður en það væri
vissulega gleðilegt að fá mann eins
Þormóður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Fítons Hæst-
ánægður með aðkomu Hannesar
Smárasonar að fyrirtækinu.
Hannes Smárason, eigandi
FL Group Keypti hlutiauglýs-
ingastofu sem sér um auglýsing
ar fyrir helsta samkeppnisaðil-
ann, lceland Express.
og Hannes Smárason inn í fyrir-
tækið.
Þormóður sagði að Fíton hefði
ekki séð um auglýsingar Icelandair
hingað til og bjóst ekki við að það
myndi breytast þótt Hannes væri
kominn. „Við erum með Iceland
Express í staðinn."
Ekki náðist í
Hannes Smára-
son í gær þrátt
fyrir ítrekaðar
tilraunir.
Fagnaði í vitlausri stúku
og þurfti að forða sér
„Ég gleymdi mér bara
eitt augnablik og fagnaði
óvart þegar þeir skoruðu
seinna markið," segir
Einar Skúlason æsku-
lýðsfulltrúi á Akranesi. Á
laugardaginn fyrir rúmri
viku skellti Einar sér til
Englands að horfa á upp-
áhaldsliðið sitt Chelsea
etja kappi við Charlton.
Einar fékk hins vegar
ekki sæti Chelsea megin í
stúkunni og sat því hjá
stuðningsmönnum Charl-
ton í leiknum.
Leikurinn fór 2-0 fýrir
Chelsea og eins og fyrr segir gleymdi
Einar sér stundarkorn og fagnaði
síðara marki Chelsea, stuðnings-
mönnum Charlton til mikillar reiði.
„Nei, það var ekkert
svoleiðis," segir Einar
um hvort bullurnar hafi
gengið í skrokk á honum
við þetta tækifæri. „Ég
forðaði mér bara í
burtu," bætir hann við
um viðbrögð sín í kjölfar-
ið. Telja má víst að ef
hann hefði ekki gert það
hefði hann lent illa í því,
enda kalla ensku fót-
boltabullumar ekki allt
ömmu sína þegar kemur
að svona málum.
Síðara mark Chelsea
kom á 59. mínútu leiksins
þannig að Einar missti af síðasta
hálftímanum af leiknum, eða einum
þriðja, vegna þessa augnabliksein-
beitingarleysis.
Benni á Porsche Cayenne Bauð öllu starfsfólki Bílabúðar Benna til Þýskalands I tilefni 30
ára afmælis.
100 manns í Þýskalandi
Starfsfólk Bilabúðar Benna hélt til
Þýskalands um síðustu helgi í tilefni
af þrjátíu ára afmæli Bílabúðarinnar.
Benedikt Eyjólfsson, hinn eini sanni
Benni, sagði í samtali við DV í gær að
um 100 manns hefðu farið til Þýska-
lands og skemmt sér hið besta. „Það
er alltaf gaman að fara til útlanda,"
sagði Benni. Starfsfólkið heimsótti
meðal annars höfuðstöðvar Porsche
en Bflabúð Benna er með umboð fyr-
ir þessa þýsku eðalvagna.
<
V)
|
X
„Nýtt matargerðarmusteri“
Jónas Kristjánsson
Matargagnrýnandi DV 4. sept 2005
Salt Lounge Bar & Restaurant,
Pósthússtræti 2, I 0 I Reykjavík.
Borðapantanir í síma 599 1020.
Eldhúsið er opið frá
kl. 12 til 14.30 og 18 til 23.
LOUNGE BAR & RESTAURAN1