Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2005, Síða 13
• "'FÖSTUD'AG UR 28. OKTÓBER2005 13
J>\ Fréttir
Dómur
þyngdur
í gær þyngdi Hæstiréttur
dóm yfir Þorvaldi Magnús-
syni en hann braust í félagi
við annan mann inn í flug-
stöð Flugfélags íslands þann
sautjánda maí 2004. Héraðs-
dómur dæmdi Þorvald í tíu
mánaða fangelsi en félaga
hans í tólf. Þorvaidur ákvað
að una ekki dómnum og
áfirýjaði til Hæstaréttar. Þar
var dómurinn hins vegar
þyngdur í fjórtán mánuði.
Auk þess þarf Þorvaldur að
greiða allan sakarkostnað í
málinu, samtals tæplega
fjögui' hundruð þúsund.
Meðal þess sem Þorvaldur
rændi voru tölvuskjáir og
önnur verðmæti.
Rændi ræstitækni
Þegar Þorvaldur braust
inn í flugstöðina var hún
ekki mannlaus. Ræstitæknir
var þar við vinnu. Þorvaldur
og félagi hans tóku hann í
gíslingu. Þeir héldu honum
nauðugum í flugstöðinni í
um klukkustund áður þeir
settu hann upp í bíl og óku
honum í HjaUasel, þar sem
honum var sleppt. Að sögn
ræstitæknisins ógnuðu Þor-
valdur og félagi hans honum
með brauðhníf. Þorvaldur
viðurkenndi fyrir rétti að
hann hafl notað hníflnn til
að leggja áherslu á orð sín.
Koma kolleg-
um til hjálpar
í gær lýstu aðildarfélög
innan Starfsgreinasam-
bands íslands og Samiðnar
sig reiðubúin til að gera allt
sem í þeirra
valdi stendur
til að liðka
fyrir málum
erlendra
starfsmanna
starfsmanna-
leigunnar 2b.
Vinnumála-
stofnun synj-
aði í fyrradag
2b, sem er í
eigu Eiðs Ei-
ríks Bald-
vinssonar, um atvinnuleyfi
fyrir 36 Pólverja, sem hafa
verið við störf hjá ýmsum
fyrirtækjum. Félögin ætla
að beita sér fyrir því að Pól-
verjarnir fái atvinnuleyfi
hjá þeim fyrirtækjum sem
þeir starfa hjá eða öðrum.
Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjánna, Stephen H
sem ákvörðunaraðili um framtíð varnarliðsins á í
sinni og nýtir hvert einasta tækifæri sem ho:
11
■
• •
varnar iðio
Stephen Hadley, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna, hefur yf-
irumsjón með viðræðum Bandaríkjastjórnar við íslendinga um
framtíð vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Hann er umdeildur í
Hvíta húsinu og ísland er neðst á lista hans yfir mikilvæg lönd.
A sama tíma og íslensk stjórn-
völd standa í samningavið
ræðum við bandarísk
stjómvöld um framtíð
vamarliðsins vantar
Bandaríkjamenn sár-
lega peninga. Viðvera
bandaríska hersins á
íslandi kostar skild-
inginn. Á ári hverju
eyðir bandaríski herinn
um 250 milljónum doll
ara eða rúmum 15 millj
örðum íslenskra króna í rekst-
ur- Keflavíkurflugvallar. Það eina
sem þeir greiða ekki em laun flug-
umferðarstjóra og viðhald ILS-að-
flugskerflsins.
Vantar meiri pening
Núna er komið að því að
Bandaríkjamenn vilja að íslensk
stjómvöld taki þátt í kostnaðinum
á rekstri flugvallarins. Þá vantar
peninga til að reka stríðið í írak.
Stríðið sem Hadley bjó til.
Ferill Hadleys hófst árið 1972 er
hann starfaði fyrir stjórn Richards
Nixons. Síðan þá hefur hann unnið
sig upp metorðastigann en hann
tók við af Condoleezzu
Rice sem þjóðarör-
yggisráðgjafi.
Ferill
Robert Loftis
Hadleyertalinn
llklegurtil þess
að stjórna hon-
um eins og
strengjabrúðu.
hans er
þó langt
frá því að
vera
glæsileg-
ur.
Loftis ætlar á
næsta fund
„Ég mun halda áfram að leiða
samningaviðræðurnar. Ég fór á
síðasta fund og ætla mér að fara á
þann næsta," sagði Robert Loftis,
formaður samninganefiidar
Bandaríkjanna, á skrifstofu sinni í
Washington í samtali við DV í gær.
Þegar DV hafði samband við
Hvíta húsið tók talsmaður þess
undir orð Loftis. F.n þó hann sé er-
indreki stjómarinnar við samn-
ingaborðið er Hadley yfirmaður
hans og er líklegur til að stjóma
samningaviðræðunum í gegnum
undirmann sinn.
Bjó til klíku sem
bjargaði Bush
Stephen Hadley er í innsta
hring valdaklíku Bush Bandarikja-
forseta. Þegar Bush bauð sig frarn
til forseta Bandaríkjanna árið 2000
fór Stephen HacÚey fyrir hópi
manna, sem talinn er hafa tryggt
honum embættið.
Hópurinn kallaði sig „Vulcans"
og var samansettur af helstu ráð-
gjöfum Bandaríkjanna á sviði ut-
anríkismála. Þar vom nöfn á borð
við Condoleezza Rice, Colin
Powell, Dick Cheney, Donald
Rumsfeld og Paul Wolfowitz. Þegar
sigurinn var í höfn fengu allir í
„Vulcans" vænar stöður innan
Bandaríkjastjórnar.
Stephen orsakaði
Íraksstríðið
Hadley elskar stríð enda er
hann er nátengdur innrás Banda-
ríkjamanna í Irak. Á þeim tíma
starfaði hann sem aðstoðarmaður
Condoleezzu Rice, þáverandi
þjóðaröryggisráðgjafa. Hann kom
þeim upplýsingum til Bush að írak
væri að reyna að kaupa úran af Ní-
ger. Rice óð með það í forsetann
sem nýtti hvert einasta tækifæri til
þess að nota upplýsingarnar sem
eina af aðalástæðunum fyrir innrás
Bandaríkjamanna í Irak.
Þær upplýsingar vom rangar.
Samkvæmt Washington Post sagði
framkvæmdastjóri CIA, George
Tenet, Hadley að ekki væm til
sannanir um úrankaup íraka. Að
þetta væm kjaftasögur og að for-
setinn ætti eldd að nýta sér upplýs-
ingamar. „Ég hefði átt að muna eft-
ir því að deilt væri um upplýsing-
amar um úranið," sagði Hadley
seinna skömmustulegur.
Tengdi írak við 11/9
Sögumar um úrankaup fraka
em ekki einu upplýsingarnar sem
Hadley hefur átt við. Hann var
helsti talsmaður þeirrar hugmynd-
ar að Mohamed Atta, einn af aðal-
flugræningjunum 11. september,
hafi hitt írakskan leyniþjónustu-
mann í Tékklandi nokkmm mán-
uðum fýrir árásimar. Til þess að
skapa tengsl á milli fraks og 11/9
vann Hadley ásamt Dick Cheney
varaforseta kerfisbundið að því að
koma þessum upplýsingum að
stjórnvöldum og afmenningi.
Nú virðist hins vegar sem næsta
mál á dagskrá Hadleys sé að gera út
um mál vamarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli og er því án efa frekari tíð-
inda að vænta frá samningaborðinu.
atli@dv.is
ÁSKRIFT: 515 6100 | WWW.ST002.IS I SKÍFAN | OG VODAFONE
ISLENSKSNILLD
Stelpumar í leikstjórn Óskars Jónassonar laugardaga kl. 20