Símablaðið - 01.01.1960, Síða 28
Gamaldags afgreiðslu lokið.
ur verið starfsmaður Lands-
símans í rúm 30 ár, — fyrst
sem símritari, — en siðan á
aðalskrifstofunni.
Jón hefur nú ráðizt til
Vátryggingarskrifstofu Sig-
fúsar Sighvatssonar.
★
Tveir menn hittust í and-
dyri pósthússins og tóku tal
saman um horfur 1 efna-
hagsmálunum.
Varð öðrum þá að orði:
„Efnahags er ekki gott
ástand vorra tíma.“
Hinn botnaði án tafar:
„Um bað bera virðast vott
vanhöld pósts og síma.“
PRENTVILLUPÚKINN
í „Jólakvæði“ í síðasta
blaði hefur önnur ljóðlínan
fallið niður, en tvær fyrstu
línurnar eiga að vera svona:
„Komdu stubbur, komdu,
Kútur litli minn.“
Símablaðið biður höfund-
inn afsökunar á þessum mis-
tökum, er sjálfsagt má
kenna jólaönnunum.
þróunarsögu stöðvarinnar — enda sjálfvirkastöðin á
næsta leiti.
Ég held, að ekki sé úr vegi að bregða upp smá mynd,
séða af sjónarhóli ritstjóra blaðs okkar Suðurnesjamanna,
Hallgr. Th. Björnssonar. í janúar blað sitt skrifar hann
grein er hann nefndi Nú hringjum við beint. Hann lýkur
greininni á þennan hátt: „... . Já, nú höfum við sem
sagt fengið nýja og glæsilega sjálfvirka símastöð, sem
veitir okkur betri og fullkomnari þjónustu en þekkist
hér á landi og sem þó á eftir að fullkomnast til muna,
þegar aðrar stöðvar á landinu hafa verið gerðar samvirk-
ar henni. Við megum því vel við una, hvað þetta snertir,
og horfa björtum augum á framtíðina.
Ég býst við að allir, sem að þessu máli hafa staðið,
hafi unnið því vel, allt frá ráðherrum og fyrirmönnum
landssímans til iðnaðar- og verkamanna. Og ber okkur
Keflvíkingum vissulega að þakka það. En í þessu sam-
bandi minnist ég þess, að í viðtali við stöðvarstjórann,
Jón Tómasson, vildi hann þakka sérstaklega góðar und-
irtektir fyrrverandi póst- og símamálastjóra, Guðmundi
Hlíðdal, svo og núverandi póst- og símamálastjóra, Gunn-
laugi Briem, en báðir þessir menn hafa staðið að því með
einlægum áhuga, að láta draum okkar hér um sjálfvirka
símstöð rætast. Þá má heldur ekki gleyma því, að yfir-
verkfræðingur landssímans, Jón A. Skúlason, sem hefur
stjórnað þessum framkvæmdum, er borinn og barnfædd-
ur Keflvíkingur og hefur því sjálfsagt verið hans metn-
aðarmál, að gera hlut Keflavíkur sem beztan.
Ég vil svo að lokum geta þess, að fyrir um það bil 10
árum mun núverandi stöðvarstjóri hafa vakið máls á
sjálfvirkri símastöð hér, bæði í Faxa og síðar í Bæjar-
stjórn Keflavíkur, sem hann átti sæti í. Þetta leiddi svo
til nefndarkosningar og til ferða á fundi með póst- og
símamálastjórn. Segja má, að nokkuð langur tími sé lið-
inn frá því þetta var, enda hefur margt gerzt í sögu síma-
málsins á þessu tímabili. Stundum hefur því miðað vel
áleiðis en í annan tíma hafa erfiðleikar og tafir orðið á
vegi þess, en samt hefur alltaf þokað í rétta átt og með
tilliti til þess, að hér var um stórmál að ræða, getur ár-
angurinn í heild talizt mjög góður og lofsamlegur. Um
það geta varla ver,ið skiptar skoðanir.“
Hallgrímur talar hér vafalaust fyrir munn allra Kefl-
víkinga og eru niðurlagsorð hans því tekin hér með til
áréttingar um þakklæti okkar Keflvíkinga. Frh.