Símablaðið - 01.01.1960, Page 31
sam sagt á daginn að kennslan átti að fara fram í frítíma
símvirkjanna. Eða þann tíma, sem skóli var í vinnutíma,
áttu símvirkjar að vinna af sér í aukavinnu.
Frítími símamanna er dýrmætur — hann nota flestir
til þess að drýgja tekjur sínar svo þær hrökkvi fyrir
brýnustu nauðþurftum. Þetta námskeið átti að vera 150
tímar og ef aukavinnutíminn er reiknaður á 50 krónur þá
hefði það gert 7500 kr. að læra, svo Síminn fengi sér að
kostnaðarlausu hæfari starfsmenn.
í tilefni af þessu óskuðu símvirkjar eftir að Síminn
legði að minnsta kosti fram hálfan tíma á við okkur, en
við því fengu símvirkjar þau svör, að þessu yrði ekki
breytt og jafnframt að stjórnendur Símans hefðu engan
áhuga á því að við lærðum, v.ið ættum aðeins kost á að
vera þarna á meðan verið væri að kenna starfsmönnum
þeim, sem unnu við uppsetningu stöðvarinnar í Kefla-
vík, og þ. á m. Svíinn, að lesa teikningar af hinum nýju
stöðvum. Við gætum hætt ef við sættum okkur ekki við
það fyrirkomulag, sem ákveðið hafði verið. (Það, að
stjórnendur námskeiðsins hefðu ekki áhuga á að við
lærðum á þessar stöðvar var sagt undir fjörutíu vitni á
námskeiðinu og verður ekki aftur tekið, sem misskilning-
ur — enda seg.ir saga undanfarinna ára bezt um það).
Sú varð líka raunin á, að flestir hættu á námskeiðinu
nema þeir, sem höfðu efni á því að vera þar áfram.
★ ★ ★
--------LÍFSLÖNGUN----------------------
Það er mikið um það núna, að menn séu að hætta hjá
Símanum — það hætta menn, sem hafa sérmenntað sig
í símatækni — en þeirrar menntunar geta þeir yfirleitt
ekki notið nema innan Landssíma íslands. — Hvers vegna
eru símamenn að leita sér vinnu út fyrir Landssíma Is-
lands, menn, sem eru búnir að fá góða þjálfun í starfinu?
— Þannig gæti aðeins sá spurt, sem ekki hefur unnið
þar. — Þessir menn eru að hætta hjá Símanum vegna
þess að þeir fá betur borgaða vánnu annars staðar. Og
þeir þurfa ekki að leita langt, ekki út fyrir bæjarlækinn
einu sinni. — Símvirki er í X. og IX. launaflokki hjá
Símanum, en ef hann fer til flugþjónustunnar fer hann
í IX. og VIII. launafl. — Símvirkjar t. d. eru skipaðir í
X. launafl. hjá Símanum eftir langt nám, þrjú ár hjá
Símanum, en áður þurfa þeir að hafa lokið gagnfræða-
eða hliðstæðu prófi. Vegna sérþekkingar í viðgerðum á
sem félagið þarf að gefa víð-
skiptavinum sínum, en það
þýðir aukið rekstursfé og
hærri vaxtagjöld.
3) Pöntunarfélög verða nú
að greiða söluskatt og veltu-
útsvar eins og aðrar verzlan-
ir. Það verður því að hækka
álagninguna sem þessum
sköttum nemur.
4) Framkvæmdastjóri fé-
lagsins hafði sagt upp starfi
sínu og var ófáanlegur til að
starfa áfram. Hann skýrði
frá erfiðleikum þeim, sem fé-
lagið hefur orðið að horfast í
augu við í sambandi við
starfsfólk s.l. ár, þar sem það
gat ekki boðið sömu laun og
almennt eru greidd fyrir hlið-
stæð störf.
Að öllu þessu athuguðu og
ennfremur, þar sem greini-
lega kom í ljós, að reksturs-
afkoma félagsins fór versn-
andi, áleit stjórnin að betra
væri að leggja starfsemina
niður í tíma, til að forðast
taprekstur, þar sem augljóst
var, að hallalaus rekstur var
óhugsandi með óbreyttri á-
lagningu eins og rök eru færð
fyrir hér að framan. Álagn-
ingin hefði þvi orðið að verða
sú sama og hjá venjulegum
verzlunum, en þegar svo er
komið taldi stjórnin, að grund-
völlur fyrir áframhaldandi
rekstri væri ekki lengur fyrir
hendi. Stjórnin vinnur nú að
því að koma vörulagernum í
peninga. Þegar því er lokið,
mun hún birta heildarreikn-
inga félagsins í Símablaðinu.
Lars Jakobsson,
Inga Jóhannesdóttir,
Jón Kárason.
★
5ÍM AB LAÐ IÐ