Símablaðið - 01.01.1960, Side 32
radíóbúnaði eða sjálfv. stöðvum fá þeir svo 5015 krónur
á mánuði. — Næstum hver, sem er (ef hann er nógu
stór líkamlega), getur orðið lögregluþjónn, og fær þá
laun samkv. IX. launafl., sömuleiðis slökkviliðsmaður.
Póstafgreiðslumaður fær laun samkv. IX. launafl. og
þarf þó ekki að sérmennta sig hjá sinni stofnun í fleiri
ár á litlu kaupi í starfið. Bílstjóri hjá S.V.R. fær laun
samkv. X. launafl. X. launafl. virðist því vera lágmarks-
launafl. yfirleitt nema hjá Símanum, þar eru þó undan-
skildir þeir launafl., sem búnir hafa verið til, til þess að
setja kvenfólk í, til þess að halda því á lágum launum.
Línumaður er skipaður í XI. launaflokk hjá Símanum.
Hann fær ekki aldurshækkun eftir 10 ára starf. Hann er
því dæmdur til þess að vera í XI. launafl. æfilangt —
nema hann hætti hreinlega brauðstritinu og fari t. d. til
Strætó og gerist þar bílstjóri í X. launaflokki, og fái þar
að auki yfirborgun fyrir vaktir og þ. u. 1. — eða þá rútu-
bílstjóri á Suðurnesjum með yfir sex þús. kr. lágmarks-
kaup á mánuði í stað fjögur og ,sjö á mán. hjá Símanum.
Línumenn hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur hafa frá ein-
VÍSUR
Við hreingerningu í skrif-
borðsskúffunni, rakst ég m. a.
á meðfylgjandi vísur, sem
urðu til þegar ég loksins fékk
símann, en það var fyrir 13—
14 árum. Það var Frímann
Ingvarsson, sem annaðist
lögnina.
Sendi ég yður þetta svona
til gamans.
Virðingarfyllst
Jökull Péturssoon.
★
1 horngrýtis símahrEiki
ég hef verið þar til í dag.
1 stöðugu stímabraki
ég stóð til að fá þetta í lag.
Og loks var hinn langþráði
þráður
lagður svo hvergi var töf;
aldrei ég þáði áður
aðra eins náðargjöf.
Já, sannlega hafa þeir símann
sett á borðið hjá mér.
Og fyrir þitt handtak, Frí-
mann,
færi ég lofgjörð þér.
Ég raula og ríma í næði,
þó rödd mín sé heldur veik,
og þráfalt á símaþræði
ég þakkarsónötu leik.
★
um til tveim launafl. hærri
hjá Símanum. — Þ. Ó,
SMÁVEGIS
Á kosningardegi fyrir
nokkrum árum hringdi einn
atkvæðasmalinn í númer eitt.
Lítill drengur kom í simann.
„Lofaðu mér að tala við pabba
þinn eða mömmu,“ bað hann
drenginn.
„Þau eru ekki heima,“ svar-
aði drengurinn.
„Er nokkur annar, sem ég
get fengið að tala við?“
„Systir mín,“ sagði dreng-
urinn.
„Lofaðu mér að tala við
hana.“
Eftir langa þögn kom
drengurinn aftur i simann og
sagði:
„Ég get ekki lyft henni upp
úr vöggunni."
laun en starfsbræður þeirra
★
Ef eitthvað ber útaf í bæ
eða byggð, t. d. náttúruham-
farir eða þjóðleikhúsið að
sýna Kardimommubæ, þá
þjóta allir í símann, við það
verður álagið svo mikið, að
næstum því enginn fær sam-
band. Viða erlendis er sá hátt-
ur hafður á, að í svona tilfell-
um er svokallað „line load
control“ notað, sem tekur úr
sambandi vissan fjölda síma-
tækja, þannig að það er ekki
hægt að hringja frá þeim en
þau geta aftur á móti tekið á
móti hringingum.
Síðan eru ef til vill aðeins
um 10% númeranna, sem val-
in eru af öryggisástæðum,
starfhæf á báða vegu og hægt
að nota á eðlilegan hátt.
★
S í M A B LAÐ IÐ