Símablaðið - 01.01.1960, Qupperneq 36
-j< 'Jréttir -jc
Fundargerð aðalfundar og nefndakosning-
ar bíða næsta blaðs, sökum rúmleysis. En
það kemur út snemma í júlí.
Stjórn F.l.S. er nú þannig skipuð:
Andrés G. Þormar, formaður.
Agnar Stefánsson, varaformaður.
Sæmundur Símonarson, gjaldkeri.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, ritari.
Fulltrúar F.l.S. í stjórn Lánasjóðs eru nú:
Jón Kárason og Marinó Jónsson.
Fulltrúi F.l.S. í starfsmannaráði ásamt Núverandi stjórn F.I.S.: Saemundur Simonarson, Vilhjálm
formanni er nú Sæmundur Símonarson. ur Vilhjálmsson, Agnar Stefánsson, Andrés G. Þormar.
Nýtt luisnæði
hefur félagið fengið fyrir skrifstofu á 4.
hæð í viðbyggingu símahússins í Thorvald-
sensstræti. Hefur það verið búið hinum beztu
húsgögnum og er ein hin vistlegasta skrif-
stofa i húsinu. Ættu félagar utan Reykja-
víkur ekki að láta hjá líða að líta þar inn,
er þeir eru á ferð í höfuðstaðnum.
Auk félagsstjórnarinnar hafa þarna bæki-
stöð sína: Simablaðið, Byggingarsamvinnu-
félag símamanna og Lánasjóður. Auk þess
halda deildarstjórnir og nefndir þar fundi
sína.
Um stöðu rekstrarstjóra sóttu:
Bjarni Gíslason, stöðvarstjóri.
Bragi Björnsson, lögfræðingur.
Bragi Kristjánsson, skrifstofustjóri.
Jónas Guðmundsson, ritsímavarðstjóri.
Kristján Helgason, símafræðingur.
Páll V. Daníelsson, viðskiptafræðingur.
Ólafur Björgúlfsson, lögfræðingur.
Steingrímur Pálsson, umdæmisstjóri.
Þórður Hjaltason, símstjóri.
Um stöðu aðalbókara sóttu:
Atli Þormar, fulltrúi.
Jón Kárason, fulltrúi.
Oddgeir Þ. Oddgeirsson
Sveinn V. Stefánsson.
Þórður Hjaltason, simstjóri.
Til fyrirmyndar
Félagsdeild símvirkja hefur kosið sér
fræðslu- og kynninganefnd. Eru í henni þeir
Baldvin Jóhannesson og Ágúst Geirsson.
Hafa þeir þegar haldið tvö fræðslu- og kynn-
ingarkvöld og ráðgera fjölbreytta starfsemi
á þessu sviði. Nú hafa þeir í undirbúningi
heimsóknir á símastöðvar í nágrenni Reykja-
víkur til að kynnast afgreiðslu og útbúnaði
þeirra stöðva, sem heimsóttar verða.
Hefur verið leitað samvinnu við póst- og
símamálastjórnina um framkvæmd þessarar
fyrirætlunar, og er vonandi að hún bregðist
þar við af skilningi. Vænta má, að þetta sé
upphaf að víðtækri kynningu milli hinna
ýmsu stöðva, sem hafa myndu góð áhrif í
þá átt, að auka áhuga viðkomandi starfs-
manna, og þekkingu.
SÍMABLAÐIÐ
er gefið út af Félagi ísl. símamanna.
Ri.tstjóri: A. G. Þormar.
MeSritstjóri: Ingólfur Einarsson.
Félagsprentsmiðj an.
._____________________________________
5ÍMABLAÐIÐ