Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.09.1962, Side 22

Símablaðið - 01.09.1962, Side 22
AFMANNAR OPINBER REK- STUR STARFSFÓLKIÐ? Eftir Ólaf Gunnarsson sálfræðing. Allskonar opinber rekstur er snar þátt- ur í þjóðlífi okkar íslendinga og því ekki nema eðlilegt, að spurning um áhrif hans á starfs- fólkið leiti á hugi hugsandi manna. Ef til vill kom- umst við næst réttu svari, ef við reyn- um að setja okkur í spor ungs manns, sem að loknu námi hefur starf á einhverjum vinnustað. Ungi maðurinn er, ef allt er með felldu, bjartsýnn og fús til að gera sitt bezta í starfi, væntanlega með einhvern frama í huga, sem þegar stundir líða geti tryggt honum og fjölskyldu hans lífvænlega að- stöðu í lífinu. Allar rannóknir, sem gerðar hafa ver- ið á manninum og vinnustaðnum hafa leitt í ljós, að mjög miklu máli skiptir, að mað- urinn byrji vel, sem kallað er, þ. e., að hann hefji ekki starfsferil sinn á því að bíða ósigra né verða fyrir óhöppum, sem ef til vill mætti rekja til vankunnáttu hans. Hvernig þessi byrjun gengur, veltur að vísu, að miklu leyti á manninum sjálf- um, en vinnuveitandi hans eða verkstjóri á þó oft mikinn þátt í hvernig tekst. Góður verkstjóri bíður ekki eftir því, að starfsmaðurinn geri skyssur, þvert á móti gerir hann sér far um að leiðbeina nýliðanum, benda honum á hvers hann þurfi að gæta og hvað hann þurfi að forð- ast. Góður verkstjóri ræðir við byrjand- ann um starfið almennt, kosti þess og galla og hugsanlegar leiðir til að vinna starfið betur en áður, spara óþörf hand- tök með bættu skipulagi. Sýni nýliðinn áhuga og dugnað í starfi, er það blátt áfram skylda vinnuveitandans, hver svo sem hann er, að launa það sem vel er gert bæði með viðurkenningu í orðum og bættum launum. Við erum þarna strax komin að kjarna málsins, sem er sá, að vöxtur og viðgang- ur fyrirtækja, hvort sem þau eru opinber eða einkafyrirtæki, fer fyrst og fremst eftir því, hvernig þeim er stjórnað. í þeim löndum, sem mesta áherzlu hafa lagt á góða stjórn fyrirtækja er það sjálfsagður liður í menntun allra forstjóra að nema öll grundvallaratriði félagsfræði og vinnu- sálfræði. Tæknimenntun ein veitir engum manni þann grundvöll, sem geri hann hvað menntun snertir hæfan til að stjórna stóru fyrirtæki, þar sem fjöldi fólks starfar, fólk, sem er ólíkt að skapgerð, gáfum og menntun. Sum fyrirtæki hafa reynt að leysa þessa hlið málsins með því að ráða annaðhvort vinnusálfræðing eða félagsfræðing sem einskonar ráðunaut um öll mannleg vanda- mál fyrirtækisins. Þetta getur verið gott, það sem það nær, en hefur þó þann aug- ljósa vankant, að illt er að þjóna tveim- ur herrum. Það er erfitt að leiðbeina yfir- mönnum og starfsfólki samtímis án þess að vera æðsti maður stofnunarinnar; er þá hætt við að annaðhvort starfsfólkið eða yfirmennirnir treysti ekki sem bezt slík- um ráðgjafa, nema vantraust beggja komi til. Virðist því einsýnt, að hvert það fyrir- tæki, sem vill vanda val yfirmanna og starfsfólks, verði a.m.k. að tryggja, að æðstu mennirnir bæði kunni að velja hæfa menn til starfa og stjórna þeim. Það ætti að vera hverjum manni aug- ljóst, að ef ungur maður, sem hefur vinnu hjá fyrirtæki fær ekkert nema afskipta- leysið og sama lélega mánaðarkaupið fyrir

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.