Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.09.1962, Page 28

Símablaðið - 01.09.1962, Page 28
(jatnaw ccf altiara í (jutfuAkaiuim Yzt á Snæfellsnesi, um 3 km í suðvestur frá Hellis- sandi, er jörðin Gufuskálar, fornt býli og gagnsamt til lands og sjávar. Þau urðu örlög þessa býlis, sem margra íslenzkra góðjarða, að það lagðist í eyði fyrir um það bil tveimur áratugum. Sjást þar nú fáar leifar fyrri búskapar nema vall- gróinn bæjarbóll. Uppi í hrauninu má sjá grúa af smábyggingum úr grjóti, sem halda sér allvel. Þetta lcalla fróðir menn fiskbyrgi, segja og að i þeim hafi verið fullþurrkuð skreiðin hér fyrr á öldum og muni þessi mannvirki allt að þrjú hundruð ára gömul. Ef athugull skoðandi gengur með sjó fram í laudi Gufuskála, kemur liann auga á leifar af vör, og hefur botn hennar verið lagður með sléttfelldu blá- grýti. I henni miðri má sjá djúpa rás eftir kili skip- anna, sem þar hafa verið sett niður og upp á liðn- um öldum. En haustið 1959 liófst nýtt landnám á Gufuskálum. Bandaríkin höfðu farið þess á leit, að þeim vrði veitt heimild til að reisa hér lóranstöð, er verða ætti hlekkur i hárnákvæmu staðarákvörðunarkerfi, er næði yfir allt Norður-Atlantshaf. Leyfið var veitt og samningar gerðir þess efnis, að eftir að stöðin væri reist, skvldi Landssiminn taka að sér allan rekstur hennar. Síðan var hafizt handa. Byggingarframkvæmdir hófust á Gufuskálum og símvirkjar voru sendir í Ambassador Bandaríkjanna afhendir póst- og símamála- stjóra lyklana. Starfsmaður við vinnu sína. SÍMAB LAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.