Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Ðýrt í
leikskóla
Hæstu gjöld fyrir átta
tíma vistun með fæði á
leikskóla eru í Isafjarðarbæ,
ef borið er saman við
fimmtán fjölmennustu
sveitarfélög landsins að því
er fram kemur á bb.is. í Isa-
fjaröarbæ er almennt gjald
33.050 kr. og fyrir forgangs-
hópa (einstæða foreldra og
námsmenn) 24.213 kr.
Lægsta almenna gjaldið
fyrir sams konar þjónustu
er á Akureyri þar sem al-
mennt gjald er 22.325, og
fyrir forgangshópa er
lægsta verð í Reykjavík eða
13.050 kr.
Árekstrahrina
Það sem helst hefur sett
svip sinn á þessa viku í um-
dæmi lögreglunnar á Álfta-
nesi, í Garðabæ og Hafnar-
firði, er mikill fjöldi um-
ferðaróhappa að því er
fram kemur á vef Víkur-
frétta. Frá því á mánudags-
morgun og til hádegis í gær
höfðu tuttugu og eitt um-
ferðaróhapp verið tilkynnt
til lögreglunnar. í tveimur
þeirra var um slys að ræða.
Ökumaður vörubifreiðar
var fluttur á slysadeild, er
tvær vörubifreiðar lentu í
árekstri á Krýsuvíkurvegi á
miðvikudag.
Kjör
öryrkja?
ÚlfarFinsen nemi og þátttak-
andi í Ástarfleyinu.
„Mér fínnst aö þaö mætti gera
betur í málefnum öryrkja. Ég
er kannski ekki vel að mér í
málum öryrkja en það er eng-
inn vafí aö það er illa komið
fram við þá. Það eralltafeitt-
hvað sem má bæta."
Hann segir / Hún segir
„Mér fínnst kjör öryrkja alveg
hrikaleg, ég hreinlega skamm-
ast min fyrir framgöngu
stjórnvalda. Þetta er fólk sem
hefur lagt mikið á sig fyrir
samfélagið og við ættum að
bera meiri virðingu fyrirþeim."
Helena Stefánsdóttir
eigandi Hljómalindar.
Gísli Marteinn Baldursson hefur ekki setið með hendur í skauti heldur undirbúið
spurningaþáttinn „Tíminn líður hratt“ sem sýndur verður á undan forkeppni RÚV í
Eurovision-söngvakeppninni. Halli 1 Botnleðju er dómari en Heiða úr Unun spyrill.
Gísli lofar þrælskemmtilegri þáttaröð.
Halli og Heiða Dómari
[ og spyrill en bæði hafa
þau tekið þátt ÍEurovision
þó úr óliklegri átt komi.
...og svo Dr. Gunna. „Já, til stendur að hann
muni stíga sérstakan Eurovision-dans sem án
efa mun vekja mikla athygli."
Frægir í Euro-p
Gísla Mar!oi
„Tíminn líður hratt er nafnið á þættinum. Fyrstu orðin sem við
sögðum í Eurovision. „Þá veistu svarið“ var einnig möguleiki,"
segir Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarps- og stjórnmála-
maður. Gísli Marteinn er maðurinn á bak við nýja þáttaröð sem
sýnd verður í Ríkissjónvarpinu í tengslum við forkeppni
Eurovision-söngvakeppnarinnar - þar sem valið verður framlag
fslands til keppninnar. Eins og mönnum er í fersku minni sigraði
fulltrúi Grikklands í Kiev á síðasta ári þar sem íslendingar áttu
fremur slakan dag. Verður því keppnin haldin á Grikklandi í
sumar. En áður þarf að velja fulltrúa.
Bak við tjöldin að þessu sinni
Um er að ræða spurningakeppni
þar sem ýmsir takast á og sýna fram
á þekkingu sína á þessu merka fyrir-
bæri sem Eurovision er. Fram kom, í
tengslum við prófkjörsbaráttu Gísla
Marteins, að hann væri á launum
hjá RÚV samhliða. Og nú er árang-
urinn kominn í ljós. Gísli Marteinn
bregður sér nú í hlutverk framleið-
andans. Hann verður að þessu sinni
bak við tökuvélarnar, er hugmynda-
fræðingurinn á bak við konseptið og
semur spumingamar.
„Þetta verða stuttir þættir og þeir
líða hratt. Þrælskemmtilegir þættir
sem koma á undan forkeppninni
sjálfri. Eiga að vera til þess fallnir að
lengja kvöldið, gera það frábært og
byggja upp stemningu."
Dr. Gunni stígur
Eurovision-dans
Alls er um að ræða fimm
þætti. Fjórir undanúrslita-1
þættir og svo einn úr-
slitaþáttur þar
sem stigahæstu
liðin keppa.
Að sögn
Gísla >
Marteins mun koma fram fullt af
fólki sem ekki var almennt vitað að
væri fróðleiksbrunnar um
Eurovision. Gísli lofar að það muni
koma á daginn að þeir viti furðu
margt á þessu sértæka sviði.
„Þarna keppa Eurovision-hetjur
á borð við Siggu Beinteins, Helgu
Möller, Kristján Gfslason, Sigrúnu
Evu Ármannsdóttur auk manna sem
ekki eru þekktir fyrir Eurovision-
áhuga sinn.“
Gísli Marteinn er þarna að tala
um þá Baggalútsmenn, Trabant-
liða, Sigurjón Kjartansson, sem nú
loks kemst að í þætti hjá Gísla Mart-
eini, og svo Dr. Gunna. „Já, til
stendur að hann muni stíga
sérstakan Eurovision-
dans sem án efa mun
, vekja mikla athygli."
anna.
„Já, Heiða í Unun og Halli úr
Botnleðju. Þau virka mjög vel
saman. Formlega er hann dómari en
hún spyrill en þetta er svona sam-
vinna. Og í einum hluta þáttarins er
keppendum til halds og trausts
stigavörður. Ef liðin geta ekki svarað
geta þau nýtt sér þann
möguleika: Reynir.
reynir. Hann reynir að hjálpa þeim í
átt að réttu svari, svona líkt og var í
Kontrapunkti.“
Gísli Marteinn segir ekkert frum-
legt við sjálft keppnisfyrirkomulagið
sem ber dám af Kontrapunkti,
Popppunkti og Gettu betur. Þrír
menn í liði, hraða- og bjölluspurn-
ingar. „Þá verða menn að sýna fram
á að þeir hafi skilning á dansatriðum
og öðru slíku.“
jakob@dv.is
Halli og Heiða
spyrja og dæma
^ -Q Val Gísla Marteins á
spyrli og dómara er frum-
- legt og snjallt í senn. Heiða
' og Halli sjá um
þá hlið mál- >(9V
C**
- «
Eurovision-unnendur /
þætti Gisla, Halla og Heiðu ■
koma fram gamatreyndar I
Eurovision-kempur I bland við I
óliklegri Eurovision-spekinga.
Gisli Marteinn Gisli bak við
tjöldin: Semur spurningarnar og
hannarþáttinn sem hann segir
ekki frumlegan að formi til.