Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Page 18
18 LAUGARDAGUR 14.JANÚAR2006
Sport DV
Magnús á leið
til Kefla-
víkur
Magnús Sverrir
Þorsteinsson, knatt-
spyrnumaður, er á
leið aftur í sitt gamla
lið, Keflavík. Hann
gekk til liðs við
Grindavík skömmu
fyrir mót í fyrra eftir
að hann lenti í úti-
stöðum við þáverandi þjálf-
ara Keflavíkur, Guðjón
Þórðarson. Magnús tók þátt
í sautján leikjum með
Grindavík í Landsbanka-
deildinni síðasta sumar og
skoraði í þeim þrjú mörk.
Áður hafði hann leikið 56
deildarleiki fyrir Keflavík og
skorað í þeim fimm mörk.
ArnarJón með
Víkingum?
Arnar Jón Sigur-
geirsson, knattspyrnu-
maður úr KR, heftir
undanfarið mætt á æf-
ingar með Lands-
bankadeildarliði Vík-
inga. Þar er við stjórn-
völinn Magnús Gylfason
sem þekkir vel til Arnars frá
sfnum árum hjá KR. Arnar
gat ekkert spilað síðastliðið
sumar þar sem hann gekkst
undir hjartaþræðingarað-
gerð fyrir rúmu ári en er nú
kominn á fulft skrið aftur.
Hann á að baki 90 leiki í
efstu deild með KR og í
þeim hefur hann skorað níu
mörk.
Diabytil
Arsenal
Miðvallarleik-
maðurinn ungi,
Vasiriki Abou Di-
aby, hefur gengið til liðs við
Arsenal frá Auxerre í Frakk-
landi fyrir tvær miUjónir
punda. Gerard Bourgoin,
varaforseti franska félags-
ins, sagði að Diaby hafi
mátt velja hvaða félag hann
gengi til en Chelsea hafði
einnig áhuga á kappanum
sem hitti bæði Arsene Wen-
ger og Jose Mourinho. „En
Wenger var einfaldlega
betri en Mourinho. Það er
aUt og surnt," sagði Bour-
goin um ákvörðun Diaby.
Spánn-Rússland
Spænska knattspyrnusambandið
greindi frá þvf i vikunni að landsliðið
spænska myndi mæta þvi rússneska
þann 27. maí næstkomandi. Eggert
Magnússon formaður KS( hefur áður
greint frá því að hann hafi loforö for-
ráðamanna spænska sambandsins að
liðið muni spila vináttulandsleik gegn
(slandi fyrir HM. Ef yrði af þvi er senni-
legast að sá leikur yröi settur á mið-
vikudaginn 31. mai eða laugardaginn
2. júnf. HM hefst 9. júnf.
„Ég reyndi að hugsa um
þennan leik eins og hvern
annan æfingaleik."
Táningurinn Ding Junhui varð í desember
fyrsti sigurvegari Opna breska meistaramótsins
í snóker sem er ekki frá Bretlandi eða írlandi.
Ding er átján ára og vann á síðasta ári Opna
kínverska meistaramótið. Hann stefnir hrað-
byri á heimsmeistaratitilinn í þessari alda-
gömlu, bresku hefðariþrótt.
Ding Junhui Er
nefndur „Stjarna
austursins" í heimi
snókersins.
Ding kom snókerheiminum í opna skjöldu árið 2002 þegar hann var
einungis 15 ára. Þá vann hann bæði meistaramót Asíu fyrir leikmenn
21 árs og yngri og svo sjálft meistaramótið. Þá vann hann einnig
heimsmeistarakeppni 21 árs og yngri sem fór fram í Lettlandi. Það var
þessi þrenna sem kom honum á kortið og fljótlega var hann kominn á
varir allra spekinga heimsins sem spáðu honum skjótum frama í
íþróttinni.
Hann fékk þó aldrei tækifæri til að
standa undir væntingum árið 2003
þar sem meistaramóti Asíu var aflýst
vegna útbreiðslu bráðalungnabólgu-
vírusins. Hann komst þó í undanúrslit
í heimsmeistaramótsins 21 árs og
yngri var veitt sérstök undanþága af
alþjóða snókersambandinu til að ger-
ast atvinnumaður í íþróttinni. Hann
fluttist til Englands þar sem hann býr
nú ogæfir.
Verður senn heimsmeistari
í febrúar árið 2004 var honum
veittur þátttökuréttur á Masters-
mótinu í Lundúnum sem er talið
virtasta snókermót heimsins að
sjálfu heimsmeistaramótinu frá-
töldu. Hann fékk að taka þátt sem
svokallaður Wild Card-þátttakandi
en forráðamenn þeirra móta bjóða
slíkum leikmönnum að vera með
sem ekki hafa unnið sér þátttökurétt
með hefðbundnum leiðum. Hann
vann Englendinginn Joe Perry í
fyrstu umferð og kom spekingum
talsvert á óvart. Hann tapaði svo
naumlega fyrir Stephen Lee í
annarri umferð 6-5 en mönnum
leyndist ekki þeir miklu hæfileikar
sem Ding býr yfir og spáðu því að
hann yrði heimsmeistari í íþróttinni
fyrr en margir myndu ætla.
Árið 2005 hefur þó verið hans
besta ár en í mars síðastliðnum, að-
eins tveimur dögum eftir átján ára
afmælið sitt, vann hann sigur á opna
kínverska meistaramótinu í snóker.
Hann varð fyrsti Asíubúinn til að
sigra á mótinu síðan að James Watt-
ana, einn af æfingafélögum Ding í
dag, sigraði árið 1995.
Eins og æfingaleikur
Ding var einnig Wild Card-þátt-
takandi á opna kínverska og vann
marga fræga snókerleikara á leið
sinni í úrslitaleikinn. Hann rústaði
til að mynda Ken Doherty í undan-
úrslitum, 6-0, en hann er nú í 11.
sæti á styrkleikalista snókersam-
bandsins. í úrslitunum mætti hann
Stephen Hendry sem er í öðru sæti á
styrkleikalista snókerspilara.
Hendry komst 4-1 yfir en Ding náði
sér á strik og vann átta af næstu níu
römmum leiksins. Hann varð sam-
stundis stórstjarna í sínu heima-
landi en alls horfðu 100 milljónir
manna á úrslitaleildnn í Kína.
„Ég fann ekki fýrir neinni pressu í
dag vegna þess að ég vissi að ég
myndi læra mikið af Stephen þar
sem ég hef aldrei spilað gegn honum
áður. Ég reyndi að hugsa um þenn-
an leik eins og hvern annan æfinga-
leik," sagði Ding eftir sigurinn.
Á opna breska meistaramótinu
vann hann hverja stórstjörnuna á
fætur annarri og mætti svo goðsögn-
inni Steve Davis í úrslitaleik sem
hann vann 10-6.
„Þetta er næst mikilvægasta mót-
ið á mótaröðinni þannig að það var
mjög ánægjulegt að vinna mótið,"
sagði Ding eftir sigurinn. „Þetta er
stórt skref fyrir mig. Ég hef aukið
sjálfstraustið mitt til muna og bætt
tölúverðri reynslu í bankann."
fvikunni hefur Ding verið að
keppa í forkeppni heimsmeistara-
mótsins sem fer fram í mars
næstkomandi. Hann hefur unnið
alla sína leiki og stefnir hraðbyrði á
heimsmeistaramótið þar sem
margir spekingar telja hann lfklegan
til afreka.
eirikurst@dv.is
Dakarrallinu lýkur á morgun en ungur drengur lést í keppni gærdagsins
Annað dauðsfall í Dakarrallinu á aðeins fjórum dögum
Annað dauðaslys varð í
Dakarrallinu í gær aðeins fjórum
dögum eftir að mótórhjólarnaður-
inn Andy Caldecott lést á 9. sérleið
keppninnar á mánudaginn. Að
þessu sinni lést 10 ára gamall
drengur sem var mættur með for-
eldrunum sínum til þess að fylgj-
ast með keppninni. Slysið átti sér
stað í Gúíneu þegar drengurinn
hljóp yfir götuna í þorpi sínu í
Kourahoye og varð fyrir keppnis-
bíl sem kom á fleygiferð. í tilkynn-
ingu frá mótshöldurum kom fram
að drengurinn hafi ekki látist strax
heldur á meðan hann var fluttur
með þyrlu til borgarinnar Labe.
Hann hét Boubacar Diallo en bíll-
inn sem keyrði á hann var lítill
jeppi. Bílarnir voru búnir að fara
um 25 kílómetra af sérleið dagsins
en keppendur keyra 9 þúsund
kflómetra í Dakarrallinu í gegnum
Afríku. Á mánudag lést ástralski
mótorhjólaökumaðurinn Andy
Caldecott þegar hann féll af hjóli
sínu en hann var einn af þekkt-
ustu keppendum Dakar-rallsins.
Þetta er í 28. sinn sem rallið fer
fram og á þessum tíma hafa 52
dáið í slysum tengdum keppninni.
23 af þessum 52 einstaklingum
hafa verið áhorfendur á keppn- inn sem lést í slysi í Dakarrallinu. Senegal á morgun en það hófst í
innienCaldrcottvar29.keppend- Dakarrallinu lýkur í höfuðborg Lissabon 31. desember.
Gengur mikið á Þaö gengur oft mikiö á i Dakar-railinu og slysin geta gerst.