Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 Helgarblað DV Helgarblaðið hitti þrjár ungar hæfileikaríkar stúlkur í vikunni sem leið en þær fara með hlutverk í barnasýningunni Annie sem sýnd er í Austurbæ. Þær Thelma Lind sem leikur Annie, og Þórdís og Steinunn sem leika munaðarleysingja sögðu okkur hvernig á því stendur að þær leika fyrir fullum sal af fólki og hvert þær stefna í framtíðinni. Stelpurnar i Annie Þórdls Björk Þorfinrts- dóttir, Steinunn Jóns- dóttir, Ylfa Marin Har- aldsdóttir og Annie sjálf, Thelma Lind Waage. „í Annie leik ég bæði munaðar- leysingjann Maddý sem er elsta stelpan á munaðarleysingjahælinu það er mjög gaman og þá er ég með nokkrar línur, og svo syng ég líka ein,“ svarar Steinunn þegar við spyrjum ungu leikkonurnar hvaða hlutverki þær gegni í barnasýning- unni Annie sem hefur heldur betur slegið í gegn hér á landi, og heldur áfram ánægð: „Það var líka æðislegt að kynnast öllum hinum krökkun- um. Svo leik ég líka þjónustustúlku á heimili Daníels Ólivers sem var líka mjög gaman en á annan hátt því þá er ég að leika með fullorðnu leikurunum og lærði mikið af þeim. Það hefur verið draumur minn frá því ég var lítil að verða leikkona og upp á framtíðina þá stefni ég bara á það að klára MH,“ segir Steinunn sem er á fyrsta ári og bætir við: „svo langar mig til að fara utan í leik- listarskóla, kannski til Ítalíu eða þá Bretlands. Eftir námið reyni ég ör- ugglega bara fyrir mér í leiklistar- heiminum. Fyrst langaði mig alltaf mest að verða kvikmyndaleikkona en eftir allt þetta Annie-ævintýri veit ég að það er líka rosalega gam- an að vinna í leikhúsi." Skemmtilegt að leika, dansa og syngja Við beinum sjónum okkar að Þórdísi sem leikur einn af munað- arleysingjunum: Ég held að það skemmtilegasta við það sé að fá að leika, dansa og syngja með krökk- unum og vera í svona skemmtileg- um hóp. Líka rosalega gaman að fá svona reynslu af því að vinna í leik- húsi því það er margt sem maður getur lært af því. Mig hefur alltaf langað til þess að vera leikkona al- veg síðan ég man eftir mér og ég hef verið á nokkrum leiklistarnám- skeiðum þegar ég var yngri. Söng- leikir hafa líka alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér og mig hefur lengi langað til þess að leika í söng- leik. Vinkona mín Indíana sem leik- ur líka Annie, sagði mér frá nám- skeiði sem var haldið í kringum þennan söngleik og við skráðum okkur. Svo eftir námskeiðið voru haldnar áheyrnaprufur og ég var beðin um að taka þátt og auðvitað var ég til í það, segir hún, geislandi af heilbrigði og jákvæðni. Pabbi hjálpar Annie Thelma leikur Annie en hún er yngst í hópnum. „Ég verð íjórtán ára í febrúar og fermist í apríl," seg- ir hún brosandi og viðurkennir að hún hafi fengið góða reynslu af leiklistinni í Hofstaðarskóla í Garðabæ. „Svo var ég í kórnum en þar var settur upp söngleikur eftir kórkennarann okkar, Hildi Jóhann- esdóttir, sem nefnist Halldóra fór út af sporinu. Ég fékk að leika aðal- hlutverkið, hana Halldóru." Er álag að vera ung leik- kona? „Nei alls ekki. Þetta er eintóm gleði. Pabbi hjálpar mér mikið og allir í fjölskyldunni standa bak við mig. Ég tengi mig við Annie núna en ég átti pínu erfitt með það fyrst því ég er voðalega stillt en Annie er meiri prakkari," segir Thelma hlæj- andi. Vandræðaleg atvik? Þær hugsa sig um og Þórdís tekur af skarið: „Já það var eitt.mjög fyndið sem gerðist. Á frumsýningunni Skemmtilegast hvað félagsskapurinn er æðislegur. þegar við vorum að hneigja okkur þá var Elli, sem leikur forseta Bandaríkjanna, en hann er í hjóla- stól á sýningunni, einn eftir fyrir framan tjaldið þegar það var dregið fyrir. Það gleymdist að hugsa út í að einhver þyrfti auðvitað að aka hon- um út af sviðinu líka. Aumingja hann var yfirgefinn í hjólastólnum. Það var mikið hlegið af þessu." Thelma segir: Ætli það sé ekki skemmtilegast hvað félagsskapur- inn er æðislegur. Það er gaman að leika. Ég stefni á að gera það í framtíðinni. elly@dv.is Dagur B. Eggertsson er mikill áhugamaður um kökur og köku- bakstur. Skemmst er að minnast þegar hann stakk upp á því að af- mælisnefndin fyrir hundrað ára afmæli heimastjórnar legðist í heild sinni í bakstur og „...að það væri miklu skemmtilegra að senda heilsubætandi gulrótarköku með hundrað kertum í hvern [skól- anna] heldur en að halda uppstríl- uð hóf fyrir fáa útvalda. “ Dagur opnar kosningaskrif- stofu sína í Austurstræti á laugar- daginn klukkan þrjú en eins og kunnugt er stefnir hann á fyrsta sætið í prófkjöri Samfylkingarinn- ar fýrir borgarstjórnarkosningarn- ar í vor. „Ég ætla að bjóða upp á skúffukökur af bestu sort á kosn- ingaskrifstofunni. Maður getur ekki boðið fólki upp á hvað sem er. Þetta verður að vera ferskt." sagði Dagur þegar DV hafði samband við hann fyrir helgi. „Ég er einmitt að hita ofninn núna." Dagur segir að boð hafi verið látin út ganga um að það sé sam- keppni í borginni um bestu skúffukökuna og er ansi sigurviss. „Mér er ekki alls varnað í þessum efnum skal ég þér segja. Ég fékk gott uppeldi í skúffukökubakstri. Ég fékk uppskriftina hjá íslend- Stefán Jón Hafstein Hyggstekki baka fyrir kjósendur. ingafélagi í Osló þar sem ég var á leikskóla sem barn. Hinir geta reynt að keppa við mig." segir Dagur kokhraustur. Þegar DV hafði samband við Stefán Jón Hafstein, sem einnig stefnir á fyrsta sætið, og spurði hvort hann hyggðist baka, kvaðst hann ætla að bjóða upp á þjóðleg- ar kleinur á sínum fyrsta stóra fundi sem hann mun halda í næstu viku en hugðist ekki koma nálægt bakstrinum. „Það kemur ekki til greina, ég hef nóg annað að gera. Það eru aðrir miklu betri í því, þótt ég sé góður bakari." rap@dv.is ÍDagur B. Eggerts- son Býður upp á heimabakaða skúffuköku I dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.