Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Page 28
28 LAUGARDACUR 14. JANÚAR 2006
Helgarblað DV
DfV Helgarblað
LAUGARDAGUR 14.JANÚAR2006 29
piÉlpi ■
Fallegt heimili Jara
hefur breytt og bætt i
einbýlishúsi þeirra
G eira í Kópavoginum.
Jara og Alexandra
| Katrín Mæðgunum finnst
gott að kúra saman á dag-
inn þegar Alexandra Katrín
er búin i skólanum.
Geiri á Goldfinger Ofthef-
ur gustað um Geira en Jara
lætursér fátt um finnast og
stendur með sínum manni.
Jaroslava Davíðsson er ekki ein af „stelpunum hans“ Gesra á Goldfinger. Hún er hins vegar
eiginkona hans, kemur frá Eistlandi og hefur búið með honum í tæp sjö ár. Saman eiga
þau sex ára dóttur, Alexöndru Katrínu. Jaroslava hefur aldrei verið dansmær á súlustöð-
um Geira þó áð margir haldi það. Hún hefur hins vegar unnið með honum við afgreiðslu.
Jara og Geiri kynntust í Eistlandi.
mMí > ^ //,Ty í. II j'f ■ L W f Jl J
? „••• —y af* ' ■
Jara opnar heimili sitt upp á gátt
fyrir blaðamanni og býður brosandi
til sætis í eldhúsinu. Rjúkandi sterkt
og heitt kaffið yljar í vetrarkuld-
anum. Dóttirin Alexandra Katrín
sýnir blaðamanni stolt svörtu kisuna
sína sem heitir Expresso og kan-
ínuna sem fær nýtt nafn á hvequm
degi. „í dag heitir hún Lolly,“ segir
Alexandra, sem er nýkomin úr tal-
kennslu því hún á erfitt með að segja
r. „Ég segi það svona eins og í Frakk-
landi,“ segir hún og myndar hljóðið.
„Þess vegna langar mig að læra
frönsku."
Alexandra Katrín er þó þegar
tvítyngd og svarar í nýja gemsann
sirm á rússnesku.
Hélt að Geiri væri Rússi
Jara er frá Eistlandi en talar bæði
eistnesku og rússnesku. Hún er fædd
í borginni Keila í Eistlandi en ólst
upp í Tallin með foreldrum sínum og
systur. Systirin er lfka gift íslendingi
og býr í Tælandi. Það finnst Jöru hið
besta mál enda gott að hafa vísa gist-
ingu í Tælandi. En hvað er það sem
heillar þær systur í fari íslenskra karl-
manna?
Jara segist brosandi ekki geta
svarað fyrir systur sína, en sjálf féll
Fjölskyldan á góðri stund Jara leggur
mikið upp úr rólegu fjölskyldullfi og hefur
gjörbreytt llfsstll Geira.
hún fyrir Geira næstum við fyrstu
sýn.
„Ég var að vinna á matsölustað í
Eistlandi þegar ég sá hann fyrst. Ég
tók eftir honum um leið og hann
kom inn og var alveg viss um að
hann væri rússneskur. Það er eitt-
hvað rússneskt við Geira. Við fórurn
svo að tala saman, sem var ekki auð-
velt í byrjun því ég talaði litla sem
enga ensku, en það gerðist strax eitt-
hvað á milli okkar.“
„Ég hefverið með
manni sem var jafn-
gamallmér en mér
fannst hann alltaf
hálfbarnalegur. Þá
vil ég frekar eldri
mann sem ég get
talað við og er á
sömu bylgjulengd og
ég. Þannig er Geiri."
Jara ákvað fljótlega eftir að hún
kynntist Geira að stíga skrefið til fulls
og yfirgaf heimaland sitt til að vera
hjá honum á íslandi. Þau giftu sig
með pompi og prakt í Kópavogs-
kirkju í september árið 1998.
„Fyrst þegar ég kom til íslands var
ég að vinna á Hafnarkránni sem
Geiri rak þá. Það var ekki auðvelt,"
segir Jara og hlær. „Mér var kastað út
í djúpu laugina og varð bara að
bjarga mér. Geiri var reyndar oftast
innan seilingar í bakherberginu á
kafi í pappírum. En mest þurfti ég að
Jara og Cappuccino Jara er mikill dýravinur og á heimitinu eru tveir persneskir kettir,
Expresso og Cappuccino, og kanlna sem skiptir um nafn daglega.
bjarga mér sjálf og hafði bara gott af
því,“ segir hún á mjög góðri íslensku.
Eldri menn eru þroskaðri og
skemmtilegri
Jara lauk prófi í viðskiptafræðum
í sínu heimalandi, en eftir námið fór
hún að vinna á veitingastað sem
yfirmaðuryfir 150 starfsstúlkum. Það
var einmitt veitingastaðurinn sem
Geiri rambaði inn á þegar þau sáust
fyrst.
Jara er 19 árum yngri en Geiri, en
henni finnst aldursmunurinn ekki
skipta neinu máli. „Ég vil frekar eldri
mann, eldri menn eru þroskaðri. Ég
hef verið með manni sem var jafn-
gamall mér en mér fannst hann alltaf
hálf barnalegur. Þá vil ég frekar eldri
mann sem ég get talað við og er á
sömu bylgjulengd og ég. Þannig er
Geiri."
Jara tekur ekkert nærri sér að oft
gusti um Geira í sviðsljósinu og að
umfjöllun um hann og súlustaðina
hans sé ekki alltaf á ljúfu nótunum.
„Hann gerir bara það sem hann
gerir og ég skipti mér ekkert af því. Ég
hef þó unnið við afgreiðslu bæði á
Maxims og Goldfinger og núna er ég
hálfgerður umsjónarmaður með
stelpunum sem dansa hjá honum.
Þær eru um það bil fimmtíu og búa
niðri í bæ. Þær hringja í mig ef eitt-
hvað er að, stundum þarf að gera við
eitthvað eða lykill er týndur og
þvíumlíkt. Það er oft svoh'tið kvabb
en þeim finnst gott að geta rætt
málin á sínu móðurmáli. Ég er samt
fyrst og fremst heimavinnandi hús-
móðir og finn mig mjög vel í því."
Skipaði Geira að hætta að
drekka
Jara rak um skeið bamafata-
verslunina Lenne á Laugaveginum,
þar sem hún bauð upp á finnskar
vörur, en hún lokaði versluninni á
síðasta ári. „Það var bara ekki nóg að
gera," segir hún. „Laugavegurinn er
ekki góður staður fyrir verslunar-
rekstur, að minnsta kosti ekki af
Jara hans Geira Kom með Geira frá Eistlandi fyrir sjö árum og líður mjög vel á Islandi.
þessu tagi, og lítið að gera þar nema
veðrið sé gott. Það getur vel verið að
ég reyni fyrir mér í einhveijum
rekstri í framtíðinni, en það er ekkert
ákveðið í augnablikinu."
Jara er sjálfstæð og ákveðin ung
kona og viðurkennir aðspurð að hún
hafi heimtað að Geiri hætti að
drekka og hagaði sér eins og maður.
„Hann drakk alltof mikið og ég
gat bara alls ekki þolað það. Ég barði
í borðið og setti honum úrslitakosti
og nú er hann nánast alveg hættur.
Hann er mjög breyttur og miklu
heimakærari núna þótt hann vinni
mikið og sé oft að fram á nætur. Við
eigum rólegt og ljúft heimilislíf en
Geiri er miklu félagslyndari en ég og
hefur meiri þörf fyrir að umgangast
fólk. Ég virði það og finnst að þótt
fólk sé gift þurfi það ekki að eiga
hvort annað með húð og hári. Ég lifi
sjálfstæðu lífi og sinni mínum hugð-
arefnum og hann sínum."
Brúðkaup á (slandi Jara og Geiri giftu sig iKópavogskirkju með pompi og prakt.
„Hannátti fyrir sam-
tals sjö börn með fjór-
um konum, en það er
bara eitthvað sem
getur fylgt með í
kaupunum þegar
maður giftist eldri
manni."
Þolir ekki mannþröng í versl-
unarmiðstöðvum
Jara hefur lagað sig mjög vel að ís-
landi og íslenskum siðum og segist
langt í frá þjást af heimþrá. „Ég fer
heim tvisvar á ári og það er mjög fi'nt,
en ég bý hér og kann því vel. Ég held
þó í ýmsa siði ffá mínu heimalandi
og við höldum til dæmis bæði ís-
lensk og rússnesk jól og áramót.
Rússnesku áramótin er þremur
tímum á undan þeim íslensku og jól-
in höldum við 6. janúar. Núna fórum
við á rússneskt jólaball þar sem Faðir
Frosti skemmti bömunum og rúss-
neska „grýlan" kom og hræddi h'ftór-
una úr þeim," segir hún og hlær.
Hún tekur þó ekki þátt í látunum
sem einkenna fslendinga fyrir jól og
er búin með öll jólainnkaup í
nóvember. „Ég þoli ekki að vera í
mannþrönginni í verslunarmið-
stöðvum fyrir jól, það er bara ekki
hægt. Við Alexandra Katrín tökum
því rólega í desember, bökum og
undirbúum jólin í rólegheitum."
Peningakassinn hrímaður í
frostinu
Jöm finnst veðurfarið á íslandi
ffemur þreytandi en hún er vön
miklu meiri kulda á vetuma og
almennilegum, heitum summm.
„Þijátíu stiga frost er ekki óal-
gengt í Eistlandi," segir hún. „Þegar
ég var að vinna á veitingastaðnum
kom fyrir að ég var með lúffur við af-
greiðsluna og peningakassinn var
hrímaður af frostinu. Það var nú
reyndar við innganginn þar sem
vom stórar glerrennihurður, annars
er yfirleitt ekki svo kalt í húsum í
Eistlandi. Hér finnst mér hins vegar
hálfgert veðurleysi árið um kring."
Myrkrið fer ekkert illa í Jöm, enda
finnst henni kósí að láta fara vel um
sig við kertaljós í skammdeginu. Hún
segist vera kósf týpa og heimilið ber
þess greinileg merki. Jara hefúr líka
verið dugleg við að breyta og bæta í
einbýlishúsi fjölskyldunnar í Kópa-
voginum og vflar ekki fyrir sér að
taka rösklega til hendinni. „Ég
sparsla og mála, en hef enn ekki
flísalagt," segir hún hlæjandi. „Ég
gæti það samt ömgglega. Geiri er bú-
inn að kaupa lóð uppi við Vatnsenda
og hver veit nema við fömm að
byggja þó ég sé ekkert sérstaklega
spennt fyrir því eins og er. Það er
auðvitað mjög fallegt þar og ég á vin-
konu sem býr þama upp frá. En
Alexandra Katrín er ánægð í skólan-
um hér í Kópavogi og hefur eignast
fullt af vinum. Hún er eins og pabbi
hennar, mjög félagslynd."
Sjö börn með fjórum konum
Geiri á Goldfinger er þekktur
maður í íslensku þjóðfélagi og á sér
að sjálfsögðu fortíð. Jara kippir sér
þó ekkert upp við það. „Hann átti
fyrir samtals sjö börn með fjórum
konum, en það er bara eitthvað sem
getur fylgt með í kaupunum þegar
maður giftist eldri manni. Ég er í fínu
sambandi við bömin hans og alveg
sátt við hann eins og hann er og allt
sem honum fylgir."
Hún segist þó aðspurð ekki ætla
að eignast fleiri börn. „Þetta er mjög
fi'nt svona, mér finnst gott að eiga
bara eitt bam sem ég get sinnt vel og
Geiri er bara nokkuð góður í pabba-
hlutverkinu," segir hún hlæjandi.
„Hann er natinn við að hjálpa
Alexöndm Katrínu með skólalær-
dóminn og eiga með henni góðar
stundir þegar hann er heima. Þetta
gengur mjög vel og við emm ánægð
með þetta eins og það er."
edda&dv.is
Jara og Geiri Hamingjusöm á ferðalagimeð fjölskylduna.