Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Side 39
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 39
I Hin með börnin Herdísþorir
I lítiö að hugsa um framtfðina
I eftir lát eiginmannsins en hún er |
I öryrki og sex barna móðir.
'"íf. v'
11 faðmi fjölskyldunnar Þegarþessi
1 mynd var tekin höfðu veikindin sett
I verulegt mark á Árna Jón. Herdls eigin-
I kona hans, börnin Einar Karl, Sigríður
| Ragna, Sólveig Lára, Guðmundur, Heigi
I Sven og PéturAtli standa þó þétt við &■»-' f
I bakið á honum.
Hann hafði samt mjög gaman af
þessu fyrir utan áhyggjur hans af
því að undirhakan á honum yrði of
áberandi á myndunum," segir Her-
dís og hlær góðlátlega.
„Hann var deyjandi en hann var
ekki búinn að missa húmorinn."
Eldri dóttirin í fótspor pabba
Herdís segist sakna barna sinna
sárt en þau eigi eftir að týnast heim
í vetur. Það hafi þó verið ósk Áma
að eldri dóttir þeirra fengi að ljúka
skólagöngu fyrir austan þar sem
hún dvelur nú og fengi að fara í
skólaferðalag með bekkjarsystkin-
um sínum. Þegar hún snúi heim
fari hún svo í framhaldsskóla. „Það
var heitasta óska Áma að börnin
okkar myndu mennta sig,“ segir
Herdís og segir hreykin af að stúlk-
an hennar sé mjög klár. Enn frem-
ur finnst henni ánægjulegt að hún
ætli að læra bílasmíði en það var
iðn sem Áma dreymdi um að læra
en gat ekki vegna þess hve les-
blindur hann var.
„Hún hefur sagt lengi að bfla-
smíði sé það sem hana langi til að
læra. Ég hélt þó að það myndi eld-
ast af henni en það er greinilegt að
svo er ekki. Hún ætlar að feta í fót-
spor föður síns nema hún ætlar að
hafa próf og stofna verkstæði," seg-
ir Herdís augljóslega stolt af
stúlkunni sinni.
Erfitt að þiggja hjálpina
„Ég vil ekki eyða orku minni í
reiði ég nóg annað við hana að gera
núna,“ segir Herdís en viðurkennir
að hún verði að vera óhrædd við að
þiggja hjálp annarra ef framtíðin
eigi að ganga upp hjá herini og
börnunum hennar. „Get ég nokkuð
annað ef þetta á að ganga upp hjá
okkur? Þetta er erfitt og erfiðast er
þetta fyrir Guðmund son minn sem
nú er níu ára.
Við emm búnar að tala saman í
dágóðan tima en frostkenndri rign-
ingunni úti virðist ekki ætla slota.
Áður en hún fer dregur hún
ffam mynd af Árna Jóni frá því áður
en veikindin settu mark sitt á hann.
Hann er myndarlegur og ekki að
undra að Herdís horfi ástúðlega á
myndina fyrir framan sig. „Ég vissi
að hann var deyjandi en maður á
aldrei von á þessu. Þegar hann
vaknaði daginn sem hann dó virtist
hann síður en svo vera að fara. Ég
verð samt að sætta mig við þetta og
þakka fyrir þann tíma sem ég fékk
að njóta með honum."
karen@dv.is
Þeim sem vilja styrkja Herdísi og
böm hennar á þessum erfiðu tím
um er bent á að það er hægt með
því að leggja inn á reikning
537-15-545, kt. 100767-4229